Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1991, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.12.1991, Blaðsíða 6
Desember 1991 byggingunni (hlutverk aðgerðar- hnappao.s.frv.) Þegar notendur fara sfðan að vinna í OS/2- umhverfí og á einmennings- tölvum þurfa þeir einungis að kynna sér: * Hvernig nota á aðgerðir viðkomandi forrits. * Hvernig gluggar virka. * Hvernig mús er notuð auk hefðbundins hnappaborðs. Reynslan sýnir að þegar notendur hafa vanist OS/2-umhverfmu er erfitt fyrir þá að hverfa aftur að stafaskjástöðvum. Fólk kann vel við myndræna framsetningu og liti og ekki er síður mikils virði að geta haft mörg verk í gangi samtímis og auka þannig afköstin. Það getur verið örðugt að fara að vinna aftur í umhverfi þar sem aðeins er hægt að vinna eitt verk í einu. 3. Munu samrœmd notendaskil hafa áhrif á hönnun tölvukerfa og vinnu forritara og kerfis- frœðinga? Já, samræmd notendaskil koma til með að hafa áhrif á hönnun hugbúnaðar. í framtíðinni verður hönnun notendaskilanna aðskilin frá hönnun hugbúnaðarins að öðru leyti. Astæðurnar fyrir þvf eru eftirfarandi: * Hægt verður að fylgja þróun tækninnar í forrits- grunninum, til dæmis að því er varðar gagnasöfn og samskipti, án tiilits til framsetningarinnar á skjástöðinni. * Auðveltverður að þýðaforrit á önnur tungumál. Hugbúnaður er í dag venjulega hannaður fyrir alþjóðlegan markað en ekki eitt land. Hægt er að halda kostnaðinum og tímanum sem fer í þýðingarnar innan skynsamlegra marka ef notendaskilin, sáhluti forritsins sem er þýddur, eru aðskilin frá forritsgrunninum, sem verður að virka eftir forskrift án tillits til hvaða tungumál er notað. Samræmd notendaskil gera tölvuumhverfið manneskjulegra. Tilgangurinn með þeim er að hylja margbrotið eðli kerfísins fyrir notandanum. Þetta er afar ögrandi viðfangsefni fyrir forritara og kerfisfræðinga. í samræmdum notendaskilum er það samkvæmni sem máli skiptir en ekki nákvæmni. Með sam- ræmdum notendaskilum er komið til móts við tölvunotendur og þörfum þeirra sinnt á því tungumáli sem þeir nota í starfí, á einfaldan, ljósan og samræmdan hátt. 4. Hvernig eiga samrœmd notendaskil eftir að þróast? Lögð hefur verið áhersla á það í kynningu á samræmdum notenda- skilum að þau boði ekki stöðnun heldurþróun. Þó að uppbygging grunnútgáfu notendaskilanna (Basic) verði hin sama í framtíðinni þá er þróaðri útgáfa þeirra (Advanced) í stöðugri endurskoðun. I þróaðri útgáíunni er unnið að því að breyta meðhöndlun teikna eða "íkona" og gera hana enn myndrænni. * Nú er eitt teikn (skrárteiknið) dregið að öðru teikni (prentarateikninu) og aðgerð fer í gang (skráin er prentuð). * Þetta mun breytast þannig að tvö teikn (skrárteiknið og prentarateiknið) renna saman í eitt. Skrárteiknið fer í gegnum prentarateiknið á meðan prentunin stendur yfir en þegar henni lýkur skiljast teiknin í sundur og verða aftur tvö. Verið er að rannsakabæði tal- og snertitækni í sambandi við samræmd notendaskil. í fram- tíðinni verður hægt að: * Nota hefðbundið hnappa- borð. * Snerta skjáinn með fingrinum til að koma af stað aðgerð. * Nota mús. * Tala til tölvunnar og segja henni fyrir verkum. Gagnavinnsla framtíðarinnar verður í fáu lík gagnavinnslu liðinna ára. Hvernig ætti það 1 íka að vera þegar PS /2, gerð 70, í framtíðinni verður hönnun notendaskilanna aðskilin frá hönnun hugbúnaðarins að öðru leyti er sambærileg að afli við þær tölvur sem töldust stórtölvur fyrir aðeins 10-15 árum. Það ótrúlegasta við samanburðinn er að PS/2, gerð 70, kemst fyrir á skrifborðshorni notandans en stórtölvan þurfti sérhæfðan tengibúnað, sérstakt gólfefni og stóran gólfflöt. Framundan eru spennandi tímar. Verið er að brúa bilið milli manneskjulegra þátta og tækninnar og þar með gera okkur kleift að njóta hennar. 6 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.