Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1991, Blaðsíða 18

Tölvumál - 01.12.1991, Blaðsíða 18
Desember 1 991 Fjarskipti, tölvur framtíðar Halldór Kristjánsson, verkfræðingur Eríndi flutt á 50 ára afinælisráðstefnu RVFÍ, 8.11.1991 Inngangur Ég hefi kosið að þreyta lesendur ekki með upptalningu á stöðlum og flóknum tækniatriðum en leggja frekar í almennum orðum út af hugtakinu fjarskipti - tölvur framtíðar. Munégfyrstrekjaað nokkru þróun tölvusamskipta en síðan reyna að skyggnast fram á við - hvers má vænta. Fyrstu tölvurnar Fyrstu tölvurnar voru stór tæki sem kröföust mikillar orku, mann- afla og viðhalds svo þær mættu vinna. Búnaður til samskipta manns og tölvu var mjög frum- stæður ámælikvarðaþeirratölva sem við nú þekkjum þó þær hafi verið bylting á sfnum tíma. Vegna hins gífurlega kostnaðar við smíði og rekstur þessara tölva voru þær á fárra færi. í skýrslu sem unnin var fyrir EBM á þessum árum var komist að þeirri niðurstöðu að þörfum mannkyns fyrir tölvur um ókomna framtíð yrði fullnægt með nokkrum stórum tölvum af þeirri gerð sem þá var verið að vinna að. Annað hefur sem betur fer komið í ljós! Inn- og úttak þessara fyrstu tölva var með þeim hætti að aðeins var á fárra færi að stjórna þeim. Mikilvægi þeirra sem kunnu á þær var því að sama skapi mikið. Það er ekki fyrr en með tilkomu Teletype lyklaborðsprentara og tenginga þeirra við tölvurnar sem möguleikar á aðgangi margra að tölvuafli opnast. Þessi þróun hélst í hendur við þróun tenginga og skilgreiningu samskiptastaðla sem ætlað var að tryggja að tölvan og jaðartækið ynnu snurðulaust saman Skjáir mikið stökk Víðtækari breyting varð þegar hinir hægvirku prentarar viku fyrir skjám sem gátu á tiltölulega hraðvirkan hátt birt textann á skjá í stað pappírs. Samhliða varð aukning á samskiptahrað- anum þannig að unnt var að senda 500 - 1.000 tákn til skjásins á hverri sekúndu. Fram komu mismunandi táknróf frá tölvuframleiðendum sem gerðui samskipti á milli ólíkra tölva erfiðar auk þess sem í sumum tilvikum voru búin til sérstök samskiptamál til þess að stjórna staðsetningu og útliti tákna á skjánum. Tölvuafl lækkaði þó lítið í verði og enn um skeið var miðlæga tölvuvinnslan eina hag- kvæma lausnin á tölvuvæðingu. Fjarvinnsla kemur til sögunnar Með tengingu lyklaborðsprentara og skjáa við tölvur verður Qar- vinnsla mikilvægari en þá eru notaðar Ifnur um langan veg til aðgangs að tölvum, um mótald, frá stöðum sem ekki eru í næsta nágrenni við tölvuna. Tölvuffamleiðendur skilgreina nú samskiptastaðla til notkunar við Qarskipti á milli tölva og tölvu og skjás. Þessir staðlar eru ólíkir frá mismunandi framleiðendum og því enn aukið á erfiðleika á samskiptum á milli ólfkra tölva. Sala á reikniafli Tími sölu á reikniafli og vinnslu var nú runninn upp og spruttu upp fyrirtæki sem lifðu á því eingöngu að selja öðrum aðgang að reikniafli, vinnslu og forritum. Með þróun í tölvutækni og gífurlegri lækkun á kostnaði við öflun tölvukrafts dagaði þessi fyrirtæki uppi á altari tímans. Engu aö síður hafa nokkur þessara fyrirtækja lifað fram á þennan dag en víst er að hlutverk þeirra mun breytast gífurlega á næstu árum ef þau eiga þá nokkra framtíð fyrir sér. Ethernet mikil bót Með tilkomu Ethernet 1981 verður næsta stóra stökkið og þá opnast möguleiki á því að tengja saman marga skjái og prentara með háhraðatengingu við mið- læga tölvu - staðarnetshugtakið verður til. Þrátt fyrir þetta er reikniaflið ennþá miðlægt og hraðinn milli skjás og tölvu eykst ekki að marki. Fjarvinnslan er ennþá bundin af þeim hraða- takmörkunum sem voru á venjulegum símalínum eða eitt til tvö þúsund tákn á sekúndu. Engu að sfður var hér einn áfanginn í þeirri þróun sem síðar átti eftir að hafa mikil áhrif á uppbyggingu tölvukerfa. A þessum tíma eru samskipti á milli tölvu og notanda á því formi að skjárinn birtir það sem ffá tölvunni kemur og lyklaborðið er notað til að senda tölvunni nýjar upplýsingar og skipanir. Engin greind er til staðar í vinnustöðinni. 18 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.