Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 8

Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 8
Desember 1992 Netin þróast í samkeppni og samvinnu framleiðenda, notenda, mismunandi tenginga og sam- skiptahátta. Þróunin er frá búnaði sem einn framleiðandi ræður, vegna þess að enginn einn framleiðandi nær að vera stöðugt í fararbroddi, samvinna er nauðsynleg. Fram- farir í tölvutækni og fjarskiptum verða m.a. með þeim hætti að framleiðendur opna öðrum að- gang að búnaði sem þeir hafa þróað einir eða í samvinnu við aðra og afsala sér valdi yfir hon- um til þess að fá fleiri til þess að leggjast á sveif með þeirn í þró- unarstarfinu. Ethernet er dæmi um slíka þróun. Unix staðlarnir þróuðust um tíma sem rannsókn- arverkefni íjármagnað af Banda- ríkjaher og öðrum stórum notend- um vestanhafs. Þegar framleið- endur reyna að halda þétt utan um búnað sem þeir hafa þróað sem hluta af "sínu" kerfi verða þeir a.m.k. að bjóða samskipta- leiðir yfir í annan búnað til þess að einangrast ekki og dragast aftur úr. Opinn búnaður byggist á stöðl- um, annaðhvort á opinberum stöðlum, eða stöðlum í reynd sem verða til með þeim hætti að ákveðinn búnaður nær út- breiðslu og lýsing á grundvallar- eiginleikum hans er gefin út, þannig að aðrir framleiðendur geti unnið með og keppt við frumkvöðlana. Dæmi um slíka staðla eru í prentarastýringum, svo og ýmis algeng skráaform, sem mörg forrit geta lesið beint. Þegar talað er um opinn búnað er átt við að búnaður frá einum framleiðanda sé opinn gagnvart því að vinna nreð búnaði frá öðrum og búnaður frá öðrum geti jafnvel komið beint í staðinn, án þess vera háður framleiðslu- leyfi hins aðilans. Þróunin í netkerfum hefur verið í átt til opinna kerfa. Sem dæmi um opinn búnað má nefna marga hluta pc-heimsins og enn frekar marga hluta Unix heimsins. Mikilvægirhlutarpc-heimsinseru þó háðir framleiðsluleyfum og þar með ekki opnir, örgjörvarnir frá Intel og sjálft stýrikerfið frá Microsoft. Dæmi um kerfi sem eru mjög lítið opin eru Macintosh, Vax og IBM stórtölvur. Frá Orðanefnd Sigrún Helgadóttir, formaður Orðanefndar SÍ í októberhefti Tölvumála skrifaði ég um þýðingar á print preview og previewer. Þar var lagt til að kalla print preview prentsýn og previewer prentsýni. Skömmu eftir að blaðið kom út var mér bent á að í WordPerfect rit- vinnsluforritinu sé til aðgerð sem á íslensku hefur fengið heitið prentskoðun og er það sama aðgerð og print preview. I ný- legri kennslubók um WordPerfect fyrir Windows er orðalisti og þar er print preview þýtt með “forskoða, prentun” en ég fann ekki prentskoðun. Þar er hins vegar til viewer sem er kallaður kíkir. Ég hef notað WordPerfect í mörg árog íslenski orðaforðinn ersennilegaorðinn mérsvotamur að ég setti prentskoðun ekki í samband við print preview. I tilefni af þessari ábendingu fór ég að leita víðar þar sem hug- búnaður hefur verið íslenskaður. í íslenskri handbók fyrir Macintosh kerfi 7 fann ég sögnina preview sem þar er þýdd með skoða. Nú fer það eftir því hvort þessi aðgerð er séð frá sjónarhóli forritsins eða notandans hvor þýðingin er heppilegri. Forritið ‘sýnir’ en notandinn ‘skoðar’. Sennilega er gott að hafa báðar þýðingarnar og láta samhengi hverju sinni ráða hvor er valin. Mér finnst samt að previewer ‘sýni’ texta en ‘kíki’ ekki á hann og af þeirri ástæðu sé prentsýnir heppilegri þýðing en kíkir. Sunium gæti líka fundist óþægi- legt dönskubragð að sögninni kíkja. Ég vil gjarnan fá viðbrögð lesenda við þessum hugleið- ingum. 8 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.