Vísir - 25.08.1962, Blaðsíða 4
VISIR
Laugardagur 25. ágúst 1962.
Passamynd send til Japan
r
Nú geta Islendingar látið
mála af sér mynd austur í Japan
fyrir furðulftinn skilding, og
það sem er meira um vert að
þeir þurfa ekki einu sinni að
fara þangað sjálfir til að sitja
fyrir, heldur aðeins að senda af
sér ljósmynd.
Frá þessu skýrði Jóhannes
Bjarnason eigandi Rammagerð-
arinnar í Hafnarstræti um leið
og hann sýndi blaðamanni Vísis
málaða mynd af gullfallegri
stúlku með blá augu og ljós-
rautt hár. Sú mynd var máluð í
Japan.
— Stúlkan er nú raunar
brúneyg og dökkhærð, sagði Jó-
hannes, en Japanamir eiga enga
sök á þvf. Það láðist einfaldlega
að gefa þeim upp augna- og
háralitinn um leið og myndin
var send. Það er að sjálfsögðu
nauðsynlegt.
Ódýrir
listamenn.
— En hvers vegna að láta
mála Islendinga austur í Jap-
an? Við eigum nóg af andlits-
málurum og listamönnum hér
heima sem gætu tekið þetta að
sér.
— Jú, að vísu, sagði Jóhann-
es, en ég held bara að Japan-
amir séu ekki eins dýrseldir á
þessa vinnu sína, eða list, eða
hvað maður á að kalla það.
— Hver fékk þá hugdettu f
hausinn að láta mála íslendinga
austur f Japan?
— Ég sjálfur. Ég skrapþ til
Japan f fyrra og var þar í
nokkra daga, m. a. til að kynna
mér gerð minjagripa og komast
f ýmiss konar verzlunarsambönd
við Japani, því framleiðsla
þeirra er á flestum sviðum ó-
dýrari heldur en meðal vest-
rænna þjóða.
Stórar
vinnustofur
í þessari ferð kom ég m. a.
inn í vinnustofu eða verkstæði
nema þeim séu gefnar nokkuð
nákvæmar upplýsingar um lita-
valið. Með andlitsmyndir er
þetta ekki neitt vandamál, því
þar er ekki annað en senda af
sér ljósmynd og gefa jafnframt
upplýsingar um háralit og
augnalit, og eins lit á fötum ef
— Nei, engan veginn. Þetta
eru málverk eftir ljósmyndum,
sem ýmist eru málaðar á silki
eða striga.
— Og þú segir að þetta sé
ekki ýkja dýrt?
— Nei, Japanir eru ekki dýr-
seldir á vinnu síná, hvorki þetta
Málverk
fyrir
Ijósmynd
Vinstra megin er ljós
mynd af íslenzkri stúlku
sem var send til Japan,
- hægra megin er mál-
Ferk, það er í stærðinni
30x60 cm og í fullum lit-
um.
þar sem fjöldi fólks gerði ekki
annað en mála myndir eftir
ljósmyndum.
— Voru þetta eingöngu and-
litsmyndir sem málaðar voru í
þessari „málningafabrikku"?
— Nei, það voru hvers konar
myndir, hópmyndir, landlags-
myndir og fleira af því tagi. Sá
galli er þó á því að málararnir
renna blint í sjóinn með liti,
þess er. óskað. Ef, íslendingar
vildu hins vWMlía
landslagsmyndir • úth" f•- Japan,
væri það naumast hægt hema
að senda þá jafnframt litaðan
lappa með eða þá litskugga-
mynd.
84. kr. á haus.
— Er hér þá ekki um litaðar
ljósmyndir að ræða?
né annað. Andlitsmynd í stærð
20 x25 cm kostar 268 krónur,
í stærð 25.5 x 30.5 cm 353 krón-
ur, 30x40 cm 450 kr. og 50 x
60 cm eða það sem ljósmynd-
arar kalla heilörk kostar 967
krónur. Þetta verð er miðað við
það, að aðeins eitt andlit sé á
myndinni. Séu andlitin fleiri
bætist 84 króna aukakostnaður
við hvern „haus“. Framangreint
verð miðast einnig við það að
málað sé á silki, en verðið
hækkar um það bil um helming
ef málað er á striga.
— Hefur þér, Jóhannes, dott-
ið í hug að Islendingar muni
sækjast eftir því að láta mála
sig austur f Japan?
— Víst kom mér það í hug
og þess vegna fékk ég af hálfu
Rammagerðarinnar umboð fyrir
þetta fyrirtæki hér á landi. Og
íslendingar eru ekki heldur
fyrstu útlendingarnir sem láta
mála sig í Japan. Þeir mála ó-
grynni af allra þjóða fólki, ekki
sízt Hollywoodmeyjum og öðru
Bandaríkjafólki.
Tekur mánuð.
— Hvað tekur það langan
tíma að fá málaða af sér mynd?
— Sú litla reynsla sem við
höfum fengið, bendir til þess
að það muni taka um það bil
mánuð frá þvf Ijósmyndin berst
okkur í hendur af viðkomandi
persónu og þar til málverkið
kemur frá Japan. Öll viðskipti
fara fram flugleiðis og fyrir
bragðið verða myndirnar örlítið
dýrari en ella, en burðargjaldið
fram og aftur er innifalið í
verðinu sem ég nefndi áðan
svo að þar er ekki um neinn
aukakostnað að ræða.
— Býstu við talsverðum við-
skiptum á þessu sviði?
— Auðvitað geri ég það,
enda hafa fjölmargar fyrir-
spurnir borizt og myndir verið
sendar inn eftir að það tók að
spyrjast út að unnt væri að láta
mála mynd af sér í Japan.
☆
og stórt málverk kemur til baka
BM
SKATTFRJALSIR
SUMARHAPPDRÆTT! DRE6IÐ 31.Á6ÚST