Vísir - 29.08.1962, Blaðsíða 3
-------------------------:------- VISIR
Miðvikudagur 29. ágúst 1962.
1 tilefni af hundrað ára af-
mæli Akureyrarkaupstaðar birt-
ir myndsjá Vísis í dag fimmtíu
ára gamlar myndir, teknar af
Hailgrími Einarssyni, konung-
legum hirðljósmyndara. Mynd-
irnar eru báðar teknar í Hafn-
arstræti og eru merkilegar heim
ildir um daglegt líf í höfuðstað
Norðurlands í kringum árið
1910.
Stærri myndin sýnir okkur
norður Hafnarstrœti, hluta af
Ráðhústorgi og neðsta hluta
Brekkugötu. Fremst á myndinni
til hægri er Braunsverzlun, ein
elzta verzlun á Akureyri. Klæða
burður fólksins sést greinilega,
kona ber heim vatn eftir miðri
götunni og rétt hjá er gamall
maður að aka kolapoka í hjól-
börum. Vinstra megin við þau
vappar hæna hjá gömlum
hverfisteini og olíubrúsa. Þar
sem báturinn er á miðri mynd-
Framhald á bls. 2