Vísir - 11.09.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 11.09.1962, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 11. september 1962. Sertdiherra i Finnlandi Hans G. Andersen, sendiherra afhenti föstudaginn 7. sept. 1962, forseta Finnlands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Finn- landi með búsetu í Stokkhólmi. Húnvetnsku ámnr báru ufíluxveiði „Ekki er hægt að segja annað en laxveiðar hafi gengið mjög vel í sumar, en veiði hefur verið mjög svipuð og hún var í fyrra sumar, sagði veiðimálastjóri Þór Guð jónsson, þegar Vísir hringdi til hans og spurð ist fyrir um gang lax- veiða í sumar. Eftir þeim upplýsingum að dæma virðast húnvetnsku árnar vera f fararbroddi hvað veiði- feng snertir og eru flestir lax- veiðimepn farnir að mæna á þær miklum löngunaraugum. Laxveiðitímabilinu er þó ekki alveg lokið og því liggja ekki fyrir endanlegar skýrslur frá öll um ám. Veiðum lýkur eftir að- eins níu daga eða þann tuttug- asta þessa mánaðar f síðustu ánum. Góð veiði í húnvetnsku ánum. Veiðimálastjóri hafði aðeins nýlegar tölur frá sjö ám. I Elliða ánum er veiði lokið, en nú er þar stunduð sjóbirtingsveiði neðst í ánum. Þar hefur veiði verið ágæt í sumar og betri, en í fyrra sumar. Þegar veiði lauk höfðu verið dregnir á land um 850 laxar, en á sama tíma í fyrra höfðu veiðzt þar 744 lax- ar. Veiðin í Laxá í Kjós var mjög svipuð og í fyrra. I sumar veidd ust um 1000 laxar, en f fyrra 1047. Veiðin f Norðurá var heldur meiri í sumar, en í fyrra. Þar Framhald á bls. 5. Myndin of Jóni biskup Vidnlín Frásögnin af uppgreftri beina Jóns biskups Vídalín og myndin af höfuðkúpu hans, sem birtist í blað- inu í gær, hefir vakið fádæma at- hygli. Það er nú fullljóst orðið, sem blaðið grunaði fastlega, að það hefir farið fram hjá öllum al- menningi að bein meistara Jóns voru grafin upp í Skálholti. Fólk virðist beinlínis ekki hafa haft hug mynd um það og láta ýmsir segja sér þessar fréttir tvisvar. Á því leikur ekki hinn minnsti vafi að hér er um bein Vídalíns að ræða, skjöldur með nafni hans & kistulokinu er óyggjandi sönn- un fyrir því. Hér birtir blaðið mynd af Vída- lín. Þetta mun vera eina mynd- in, sem til er af meistara Jóni, að líkindum teiknuð af honum er hann hlaut biskupsvígslu sína í Kaupmannahöfn. Myndin birtist fyrst í Nýjum félagsritum og síðar með Vídalínspostillu og í Biskupa- sögunum. Menn geta nú borið myndina saman við rannsóknir þær og mælingar á beinum meist- ara Jóns, sem frá er skýrt í blað- inu í gær samkvæmt upplýsingum Jóns Steffensen prófessors, er hef ir annazt þessa rrannsóknir. Þegar Óli blaðasali kom niður á homið sitt með Vísi voru blöðin rifin út úr höndunum á honum. ÞEGAR VÍSIR RAUFHIÐ LAHGA BLAÐALEYSI Þegar dagblaðið Vísir kom út um kl. 2,30 í gær dag mátti sjá að Reyk- víkingar hafa ekki unað því vel að vera dagblaða lausir í heila viku og geta ekki fylgzt með því sem er að gerast í land- inu. Vísir kom út fyrst dagblaðanna í Reykja- vík eftir verkfallið og var ásókn bæjarbúa eft- ir að fá blaðið sem fyrst, mikil. Við afgreiðslu Vísis í .gólfs- stræti safnaðist talsverður mann fjöldi og fólk stillti sér upp f biðröð til þess að kaupa blaðið. Og þegar blaðasöludrengirnir komu út á götuna mátti heita að blaðið væri rifið út úr hönd- unum á þeim. Auk hinna al- mennu frétta vakti mikla at- hygli hin sögulega mynd og frásögn um fund hauskúpu Jóns biskpus Vídalíns. Blaðið var nú prentað í stærra upplagi en nokkru sinni fyrr eða næstum því tuttugu þúsund eintökum, en venjulega annars í um 14 þúsund eintök- um. Víða seldist blaðið upp á skömmum tíma. Hinn mikli á- hugi almennings á Vísi er blaðinu hvatning að halda á- fram á sömu braut með snörum og ýtarlegum rréttaflutningi. Enginn má skorust ár leik Umfangsmikil Um þrettán þúsund bíl eigendur á svæði því sem nær yfir Reykjavík, Álftanes, Hafnarfjörð, Kópavog, Seltjarnarnes og Mosfellssveit, eiga að gerast þátttakendur í umfangsmestu umferðar i könnun, sem fram þefur farið hér á landi til þessa. Auk allra bíleig- enda á ofangreindu svæði, verða allir þeir sem með almennings- vögnum ferðast þátttak- endur í könnuninni. Með hverju árinu vex tala bifreiða hér í landinu og fólk- inu fjölgar, tala árekstra og annarra umferðarslysa vex einnig, ríður því á miklu að um ferð sé vel skipulögð og greið og götur vel lagðar. Hver sá sem gerist þátttakandi í könn- umferðarkönnun uninni leggur því sinn hlut fram til þessara mála, auk þess sem hann getur átt von á að hreppa fimm þús. kr. verðlaun sem Félag ísl. bifreiðaeigenda hefur gefið. Einnig hefur Umferðar- nefnd Reykiavíkur gefið 10 þús. kr. verðlaun og verður dregið úr rétt útfylltum spjöldum. Umfangsmikil könnun. Eins og fyrr segir er þetta lang umfangsmesta umferðar- könnun sem hér hefur verið framkvæmd og undirbúningur hennar hefur staðið yfir í lang an tíma. Könnun þessi er fram kvæmd á vegum skipulagsyfir- valda ríkisins og bæjar- eða sveitafélaga á fyrrgreindum svæðum. Hefur öllu svæðinu verið skipt niður í 110 reiti Meðan á könnuninni stendur verður umferðin talin á 35 stöð um á svæðinu. Mikill undirbúningur. Umferðarkannanir svipaðar þessari hafa verið framkveemd- ar víða um heim og krefjast þær mikils undirbúnings. Und- irbúningur fyrir könnunina hér hófst í byrjun júnímánaðar og hefur mikill fjöldi starfskrafta Framh. á bls. 5. [Áskrifendasöfnun á Akureyri Áskrifendasöfnun Vísis er nú hafin á Akur- eyri og hafa undirtektir Akureyringa hvarvetna verið mjög góðar. Hafa Vísi þegar bætzt 200 nýir áskrifendur á Akureyri. Áskrifendasöfnun- inni verður haldið áfram næstu daga og geta / þeir sem vilja gerast fastir kaupendur hringt í síma 1947 á Akureyri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.