Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 13

Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 13
Kennslustofa framtíðar Kennslustofa framtíðar Torfi Hjartarson Nú má vera a<3 jbess verði ekki ýkja langt að bíða að skólar tölvuvæðist í stórum stíl eða að nemendur komi að heiman með einhvers konar tölvur í farteskinu líkt og vasareikni eða blýant I kennslustofu framtíðar var reynt að svara áleitnum spurningum um nám og kennslu á upplýsingaöld með lifandi dæmum Hvaða breytingum tekur skólastarf fyrir áhrif upplýsingatækni? Hvernig fer kennslan frarn þar seni tæknin hefur skotið rótuni og hvað hafa nemendur fyrir stafni? Hver verður kennslufræðin og hver hlutverkin í kennslustofunni? Hvaða hugbúnaði verður beitt og í hvaða skyni? Hvernig verða tækin og tengingar við umheiminn? Hvað um húsbúnað og umhverfí? Hvernig verður kennslustofa framtíðar? Á ráðstefnunni UT99 fjölluðu tugir fyrirlesara um upplýsingatækni og skólastarf, sölu- og þjónustuaðilar kynntu tæknilausnir og hundruð gesta ræddu ntöguleika tækninnar og takmörk. Á meðan þessu fór fram fékkst hver hópur- inn á fætur öðrum við kennslu og nám með hjálp upplýsingatækni í bjartri stofu sem alla jafna er notuð til að kenna hagfræði við Menntaskólann í Kópavogi. Þar stóð í tvo daga kennslustofa framtíðar. Gestir fóru um stofuna að vild og margir tóku nentendur eða kennara tali. í kennslustofu framtíðar var reynt að svara áleilnum spurningum um nám og kennslu á upplýsingaöld með lifandi dæm- um. Nemendur og kennarar voru á ýmsum aldri og af öllum stigum allt frá leikskóla til háskóla. Fóstrur af Seltjarnarnesi riðu á vaðið með átta 5 ára gömul börn, svo kont heill bekkur af 7 ára krökkum ásamt kenn- ara úr Melaskóla, þar næst ungt fólk í framhaldsskóla við Ármúla, unglingar úr Árbæ og Kópavogi og þannig koll af kolli. Af námsgreinum sem komu fyrir í stofunni má nefna erlend tungumál, stærð- fræði, móðurmál, raungreinar, verslunar- fræði, iist- og verkgreinar. Grunnskóla- kennari í norsku og sænsku hafði sam- skipti við fjarstadda nemendur um netið, lektor í smíðurn sýndi hvernig gera rná þrívíð líkön í tölvu, sérkennari lét nokkra nemendur sína kljást við lestur og ritun. I nálægri eðlisfræðistofu gaf að líta ótal mælitæki og lilraunabúnað tengdan við tölvur. Geisladiskar frá Námsgagnastofnun með margmiðlunarefni fyrir yngstu nent- endurna og til enskukennslu fyrir þá eldri vöktu verðskuldaða athygli og ýmis spenn- andi forrit frá stofnuninni kornu við sögu. Kennaraháskóli íslands leiddi þessa dagskrá ásamt Árbæjarskóla, Fjölbrauta- skólanum við Ármúla og Námsgagna- stofnun í samvinnu við vinnuhóp urn ráðstefnuna UT99. Aðrir sem áttu þátt í dagskránni komu úr Borgarholtsskóla, Hjallaskóla, Melaskóla, Menntaskólanum í Kópavogi og leikskólanum Sólbrekku. Ný- herji lagði til tækin, sex fartölvur frá IBM auk öflugrar tölvu frá Apple fyrir kennara sem þess óskuðu. Skjávarpi og stafræn myndbandstökuvél voru einnig til taks. Nú má vera að þess verði ekki ýkja langt að bíða að skólar tölvuvæðist í stórum stíl eða að nemendur komi að heiman með einhvers konar tölvur í far- teskinu lfkt og vasareikni eða blýant. Sjónvaip verður stafrænt og netin fara í loftið og ljósleiðara. Á hinn bóginn er þess að gæta að skólana skortir fé og svo hins að skólar eru í eðli sínu stofnanir sem taka hægum breytingum. Því þótti rétt að hafa tölvurnar í kennslustofu ekki allt of fjar- lægrar framtíðar iieldur færai en fleiri; ekki sextán,svo að dæmi sé tekið, heldur sex. Fartölvurnar sex voru með rafhlöðum og þráðlausu netsambandi. Það voru engar snúrur! Fyrirferðarlítil loftnetsspjöld sem smeygja má í fartölvur gáfu samband við lítið loftnet úti við vegg. Því var aftur stungið í samband við venjulegt nettengi á veggnum. Þennan búnað allan er því eng- inn vandi að taka í í fangið eða leggja á vagn og flytja í aðra stofu að kennslustund lokinni. Að auki leyfir þráðlaust samband kennurum og nemendum að konia sér fyrir eins og best hentar í hverri stofu; það er hægt að stokka upp á augabragði og koma borðum, sætum og námshópum fyrir á ótal vegu án þess að tapa sambandi við net og vefi. Þessi framtíðarsýn hlýtur að vekja margar spurningar um aðferðir í kennslu og nárni. Við sem stóðum að kennslu- stofunni erum þeirrar skoðunar að með Tölvumál 13

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.