Tölvumál - 01.05.2000, Page 32

Tölvumál - 01.05.2000, Page 32
Þráðlaus net Tölvuvæðingin hefur bylt kennslu og námi í háskólasamfélaginu Notendur netsins hjá Bifröst eru um 160 og tengjast u.þ.b. 90% þeirra kerfinu þ ráðlaust starfsfólk og nemendur mynda um hið nýja tölvukerfí heilstætt þekkingar- og upplýsingasamfélag á Bifröst sem er al- gjörlega einstætt hérlendis. Þráðlausa netið á Bifröst Netið hjá Bifröst byggir á þráðlausum samskiptum. Fartölvur nemenda eru með netkorti með áföstu loftneti sem tengist netinu um loftnet/senda skólans. Miðlar- amir keyra stýrikerfíð Microsoft Windows NT Server 4.0 og vinnustöðvamar keyra Microsoft Windows 98. Póstkerfíð keyrir á Microsoft Exchange Server 5.5 og notend- ur tengjast því með Microsoft Outlook 2000. Notendur netsins hjá Bifröst em um 160 og tengjast u.þ.b. 90% þeirra kerfínu þráðlaust. Þetta þráðlausa net kemur frá Icecom, sem setti það upp í samstarfi við Opin kerfi hf. Bókhaldsforritið Navision Financial er notað bæði til kennslu og bókhalds fyrir skólann. Einnig er verið að byggja upp gagnagrunn í kerfinu til að halda utan um ýmsar upplýsingar varðandi nemendur og námskeið. Mynd 1 sýnir nákvæma saman- setningu kerfisins. • NT-miðlaramir tengjast Intemetinu í gegnum 512 Kb/s leigulínu til AkNets. Þessi tenging fer í gegnum „CISCO Switch K 2900“ og öll netsamskipti frá fartölvum og vinnustöðvum fara í gegnum NT-miðlarana. • Flestir nemendur og allir kennarar em með fartölvur sem tengjast þráðlaust við netið og póstkerfið. Þessi þráðlausa tenging fer í gegnum 10 loftnet sem era á lóð Bifrastar. Hraði þessarar tenging- ar er 3 Kb/s pr. sendi/útstöð. • Ýmsar vinnustöðvar í kennslustofum, bókasafni og á fleiri stöðum tengjast enn á venjulegan hátt (ekki þráðlaust) við netið á Bifröst. Gert er ráð fyrir að þær verði að mestu lagðar af næsta haust. • Allar tölvur sem tengjast netinu (þráð- laust og ekki þráðlaust) geta prentað á þá prentara sem eru tengdir netinu víða í byggingum háskólans. • Microsoft Exchange Server er notaður fyrir póstkerfi háskólans. Notendur hafa aðgang að póstinum með Microsoft Outlook og geta einnig haft aðgang að póstinum utan skólans á vefnum með Web Outlook. Runólfur Agústsson, cand. jur. er rektor Samvinnuháskólans á Bifröst. Ninir Elmo, cand scien. kennir upplýsingafræði við Samvinnuháskólann á Bifröst og er ráðgjafi háskólans í upplýsingatæknimálum. Hann starfar jafnframt hjá Reiknistofnun bankanna. Mynd 1: Net á Bifröst • 2 NT-miðlarar: o Annar þeirra inniheldur: ■ Microsoft Exchange Server (póstkerfí) ■ Heimasvæði notenda ■ Ýmis forrit o Hinn inniheldur: ■ Vefinn ■ Fjamám 32 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.