Vísir - 15.04.1966, Síða 2
SíÐAN
„Má ég bjóöa yður upp f dans?“
— að að fá slíkt tllboð frá
heimsfrægum ballettdansara.
Nureyev í villtu „shake"
Zak Starr á Lundúnaflugvelli
^ak Starr er nú orðinn sex
mánaða gamall, en eins og
flestir minnast gekk ekki svo
lítiö á þegar hann var í þennan
heim borinn. Pabbi hans er nefni
lega enginn annar en táninga-
dýrlingurinn hann Ringo Starr.
Þótt Zak litli sé ekki gamall,
hefur hann þegar fengið að
finna, að það er ekki tekið út
með sitjandi sældinni að vera
frægur. Fyrir nokkrum dögum
kom hann á flugvöllinn í Lond-
on ásamt mömmu sinni Maur-
een Cox og ætluðu þau að taka
flugvél til Liverpool. Beið
Maureen með Zak litla í her-
bergi ætluðu mæðrum með
börn með sér. En einhvem veg
inn fór tilkynningin um brott-
för vélarinnar fram hjá Maur-
een — og hún missti af vélinni
og varð að bíða eftir næstu vél.
Biðin varð þriggja klukku-
stunda löng.
Úti fyrir biðu ljósmyndaram
ir tilbúnir að „skjóta á“ Maur-
een og Zak þegar þau birtust —
Maureen frétti af því og bað
fyrir skilaboð til þeirra um að
hún gæfi þeim rækilega „á
hann“ ef þeir voguðu sér að
reyna að taka mynd af henni eða
Zak.
En þegar tími var kominn til
fyrir Maureen að ganga út í
flugvélina þá var hún alltof upp
tekin af Zak litla til aö mega
vera að því að dangla í Ijós-
myndarana, hún leyfði þeim að
taka myndir en gætti þess vel
aö líta ekki upp og vera byrst
á svip eins og sjá má.
s Jjað þekkja allir Rudolf Nur-
eyev, rússneska ballettdans-
arann, sem „hoppaði af“ í Par-
ís, þegar dansflokkurinn sem
hann var í var þar á ferð og
baðst hann hælis sem pólitískur
flóttamaður. Hefur hann siðan
haldið sig að mestu í London,
þar sem hann hefur veriö ball-
ettdansari númer eitt og mjög
dáður.
Fyrir nokkru var ung brezk
stúlka, Talitha Ppl með vini sin
um Paul Getty í Rome's hippy
Piper Club. Þau sátu við borð
og skyndilega kom Rudolf Nur-
eyev inn í klúbbinn, aleinn og
gekk hann rakleitt aö borði Tal
ithu og bauö henni upp í dans.
Og hvað segir stúlka annaö en
já, þegar heimsfrægur ballett-
dansari biður hana um að dansa
við sig. Þau tóku til við all-
hressilegt „shake" og smituðu
út frá sér svo að innan stundar
iðaði allt dansgólfið af „shake-
andi" fólki og undir lokin vissi
enginn hver var að dansa við
hvem — en það gerði ekkert
til, þeim nægði að fá að dansa
hópdans með Nureyev.
Það getur verið erfitt að vera sonur Ringo Starr.
Kári skrifar:
Nureyev og Talitha í villtu „shake.“
jyú er páskafríið afstaðið og
munu margir hafa notið
góðrar hvíldar og tilbreytingar
frá daglegu amstri þessa frl-
daga. Fjöldinn allur notfærði sér
góða veðrið, sem var víðast
hvar um allt land. Skíðaskálar
og hótel vom troðfull af gestum
sem vora þar til lengri eða
skemmri dvalar.
Allt lokað
Nú hafa ferðalangar aftur
snúið til síns heima, sællegir
eftir útiverana. En ekki áttu all
ir þvl láni að fagna að fara í
feröalög og héldu margir kyrru
fyrir heima í rólegheitum með
fjölskyldunni. Eins og allir vita
þá mun varla gefast rólegri tími
á árinu en um páskana, allir
þessir venjulegu skemmtistaðir
lokaðir og hefur fólk fátt sér
til afþreyingar. Margir eru því
fegnastir að vera lausir við fjöl
miðlunartækin eins og blöðin í
nokkra daga, en þó kemur að
því að þeir fá nóg af rólegheit-
unum og þá kemur til kasta
Ríkisútvarpsins að stytta út-
varpshlustendum stundimar. Og
hvað hafði sú ágæta stofnun
upp á að bjóða um páskana?
Heimakær heimilisfaðir segir:
— í stuttu máli, endurtekið efni.
Endurtekið efni
Á skírdag var útvarpshlust-
endum boðið upp á endurtekna
efnið „Semjum óperu." Ætlað
fyrir ungt fólk. Þetta endur-
tekna efni stóð yfir í einn og
hálfan tíma eöa frá kl. 5.30. til
kl. 6.
Á föstudaginn langa var það
Samband bindindisfélaga í
skólum sem hélt uppi þættinum
um endurtekna efnið. Var sú
dagskrá flutt í Ríkisútvarpinu
þann 1. febrúar sl. eða fyrir
rúmum tveim mánuðum síðan.
Stóð þessi þáttur yfir frá kl.
17.15-18.00
Laugardaginn hinn 9. apríl
brá svo viö, að þátturinn end-
urtekið efni var ekki í dag-
skránni, hins vegar var hann á
sínum stað á sunnudaginn kl.
16.40 og stóð þá yfir til kl. 17.30
Hafði þeim þætti verið útvarpaö
1. marz. Enn fannst útvarpinu
sem ekki veitti af að hressa upp
á brigðult minni hlustenda sinna
á annan í páskum og flutti end-
urtekið efni, að þessu sinni leik
rit, sem áður var útvarpað þann
19. febr. sl.
Eftir upptalninguna stóð
heimilisfaðirinn nær á öndinni
en bætti þó við að útvarpið
hefði gert vel viö tónlistarunn-
endur þar sem það flutti nær i
síbylju tónlist frá öllum tíma-
bilum tónlistarinnar í heiminum
og væri það út af fyrir sig á-
gætis uppfræðsla fávísum út-
varpshlustendum, sem ættu að
vera farnir að venjast þessum
tiltæka dagskrárlið.