Vísir - 25.08.1966, Blaðsíða 5

Vísir - 25.08.1966, Blaðsíða 5
V'íiS I R. Fimmtudagur 25. ágúst 1966. 5 morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd Flugmálaráð Bandaríkjanna vill lækkun fargjalda á al- þjóðaflugleiðum Fréttir frá Washington í gær- kvoldi herma, að flugmálaráð Eandaríkjanna hvetji flugfélög he'ns til að lækka fargjöld á Norður-Atlántshafsflugleiðum, Norður- og Mið-Kyrrahafsleiðum og á flugleiðum milli Bandaríkj- anna og Mexico. Ráðið (United States Civil Aeronautics Board) segir lækkanir réttlætanlegar og í almennings þágu. Ráðið hefir birt greinargerðina til þess að skýra afstöðu sína til málanna. IATA (International Air Trans- sport Association) kemur saman til fundar í Honoluln. Á IATA-ráðstefnunni verður reynt að ná samkomulagi um far- gjöld tfl tveggja ára. ...a i.íUiyzoti Jí wm- \ Erhard mun halda velli en bíða álitshnekki Þriðji vestur-þýzki hershöfðing- inn baðst lausnar í gær og verður æ augljósara, að deilan er harðn- andi milli leiðtoga hersins og stjómarinnar. 1 fréttaauka í brezka útvarpinu í gær var talið, að deilurnar væru ekki einvörðungu sprottnar út af Starfighterslysunum, — ræturnar lægju dýpra — til langvinnrar niðurbældrar gremju liðsforingja yfir, að vestur-þýzki herinn 'skuli ekki skipulagður og agaður á fyrri tfma þýzka hemaðarvísu og jafn- vel litið á hermenn nú sem „borg- ara klædda einkennisbúningum". Benti fyrirlesarinn á, að deilan kæmi á tíma, er fyrst væri farið að votta fyrir efnahagserfiðleikum í V.-Þ., en stjórn Erhards myndi halda velli til næstu kosninga a. m. k. þótt hún biði álitshnekki vegna þessara mála. Sniðning — saumaskapur Óskum að ráða nú þegar stúlkur vanar kjóla- , og kápusaumi, overlock og sniðningu á kven- og barnafatnaði. Kvöldvinna gæti komið til greina. Uppl. á saumastofunni Skipholti 27 2. hæð kl. 4-6 e.h. De Gaulle I hnattferð De Gaulle lagði af stað í dag frá París í þriggja vikna hnatt- ferð sína. Hann fer til Afríku fyrst, svo til Kyrrahafs og Karíbahafs, og verður á beiti- skipinu De Graaf 12. sept. á Kyrrahafi, er Frakkar sprengja þar kjamorkusprengju. Afgreiðslutími apóteka í Reykjavík Almennur afgreiðslutími apótekanna í Reykjavík verður framvegis sem hér segir: Mánudaga fimmtudaga kl 9.00 — 18.00 föstudaga kl. 9.00 — 19.00 laugardaga kí. 9.00 — 12.00 aðfangadag og gamlársdag kl. 9.00 — 12.00 Kvöld- laugardaga- og helgidagavarzla á tveim apótekum sem hér segir: Mánudaga föstudaga til kl. 21.00 laugardaga til kl 16.00 helgidaga og almenna frídaga kl.10.00 — 16.00 aðfangadag og gamlársdag til kl. 16.00 Næturvarzla vérður alltaf á sama stað að Stórholti 1 og á tímum sem hér segir: Mánudaga föstudaga kl. 21.00 — 9.00 næsta morgun laugardaga kl. 16.00 — 10.00 næsta morgun helgidaga og almenna frídaga kl. 16.00 — 10.00 næsta morgun aðfangadag og gamlársdag kl. 16.00 — 10.00 næsta morgun APÓTEKIN í REYKJAVÍK ÚTSALAN Rauðorórstíg 20 heldur áfram. — Fatnaður á börn og fullorðna. M. a. á börn: Skyrtur, gallabuxur, terylenebuxur, mjaðmabuxur, peysur, úlpur. Á fullorðna: Peysur, skyrtur, nærföt, sokkar, kven- mokkasíur og strigaskór karlmanna. Útsalan Rauðarárstíg 20 (homi Njálsgötu og Rauðarárstígs). Sjónvarp til sölu Philips 23 tommu selst á kr. 10 þúsund. Einnig enskt píanó lítið notað. Verð kr. 20 þús. Uppl. í síma 23273. Byggingarfélag verkamanna Reykjavlk TIL SÖLU tvær þriggja herbergja íbúðir í II. byggingar flokki. Þeir félagsmenn, sem neyta vilja for- kaupsréttar, sendi umsóknir sínar í skrifstofu félagsins Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi mánudaginn 5. september n.k. Stjórnin. Staða forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Laun skv. 26. fl. launa- samþykktar Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur er til 25. sept. n.k. og ber að senda umsóknir til skrifstofu minnar, Aust urstræti 16, fyrir þann tíma. Borgarstjórinn í Reykjavík, 23. ágúst 1966. Afgreiðslutími KÓPAVOGS APÓTEKS og HAFNARFJARÐ AR APÓTEKS verður framvegis þannig: mánudaga-föstudaga kl. 9—19 laugardaga kl. 9—14 helgidaga kl. 14—16 Ath. Þessi apótek eru ekki opin á öðrum tímum. Næturvarzla (neyðarvakt) fyrir Reykjavík* ur-, Kópavogs- og Hafnarfjarðarlæknishéruð er í Stórholti 1, Reykjavík kl. 21—9 (alltaf á sama stað). Kópavogs Apótek Hafnarfjarðar Apótek Tilkynning frá Áfengis- og tóbaksverzlun rikisins Húsnæði óskast til kaups eða leigu í Vest- mannaeyjum og Keflavík fyrir væntanlegar útsölur vorar. Æskileg stærð 130—200 ferm. á götuhæð. Tilboð, er greini leigu eða söluskilmála ásamt lýsingu á húsnæði, sendist skrifstofu vorri Borgartúni 7 fyrir 5. sept. nJc. Áfengis- og tóbaksverriun rikíslns

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.