Vísir - 12.06.1968, Page 1
«5*
VISIR
58. árg. - Miðvikudagur 12. júní 1968 - 127. tbl.
Dansað aftur á Torginu!
— Hátiðahöldin
Laugardal og
Hátíðahöld vegna þjóðhátíö
arinnar 17. júní verða með
breyttu sniði frá því í fyrra.
17. júni bæði i
i miðborginni
Þá fóru hátíðahöldin fram að
öllu leyti f Laugardalnum og
þótti enginn glæsibragur vera
yfir þeim. A8 þessu sinni
verða hátíðahöldin í Laugar-
dal eftir hádegið, en um
kvöldið verður dagskráin
flutt á sinn gamla stað í mið-
bænum, og þykir mörgum
það vel. Mjög fjölbreytt ^ag-
skrá hefur verið samin og
mikið til hennar vandaö.
Geta nú Reykvfkingar fengið
sér snúning á Lækjartorgi og
stigið dansinn fram eftir
nóttu. Formaður þjóðhátfðar-
nefndar Reykjavíkur er EIl-
ert Schram lögfræðingur,
skrifstofustjóri borgarverk-
fræðings.
Gísli Árni með yfir 100
tonn á Grænlnndsmiðum
— Skipum fjólgar þar á linuveiðum
r* i? isps' '' , ;
' » \ r '■tjs ■*
‘ . ;-í,:
Bloin gróðursett
fyrir þjóð-
• Þegar siðast fréttist af línu-
veiðurunum fslenzku við Græn-
land, var Gfsli Árni kominn með
um 100 tonn og mun hann vænt-
anlegur heim innan tíðar, en
hann er búinn að vera um 3 vlk-
ur á veiðum. Ásbjörninn kem-
ur til Reykjavíkur frá Grænlandi
á morgun með 50 tonn, en hann
hefur verið úti síðan um mán-
aðamót.
Fjórir Reykjavíkurbátar að
minnsta kosti hafa stundað þessar
140 skammbyssum skilað
hófíðardaginn \ Morðið á Kennedy virðist hafa aukið strauminn
Nú sem endranær er stefnt,
I að þvi að hafa borgina sem
i snyrtilegasta og fallegasta á I
þjóðhátíðardaginn og vinnur liú |
fjöldi ungmenna víðs vegar um ,
I bæinn við að gróðursetja blóm
I sem síðan verða í fullu skrúði1
um 17. júni. Þessi skrúðgarða-
vinna er á vegum borgarinnar, (
I og hófst um síðustu mánaðamót.
I Unnið er nú af kappi við að gróð 1
ursetja blóm á Austurvelli, |
1 Miklatúni, I Hallargarðinum, |
l mæðragarðinum og Einarsgarði,
svo að eitthvað sé nefnt. Þessi1
mynd vár tekin í morgun af |
stúlkum við skrúðgarðavinnu á |
Miklatúni.
Þetta er sami ljúfi straumurinn,
sagði Bjarki Elíasson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, þegar Vísir
spuröist fyrir um það í morgun,
hversu mikið hefði borizt af skamm
byssum og öðrum óskrásettum skot
vopnum til lögreglustöðvarinnar.
Um 140 skammbyssur hafa borizt
frá upphafi og leyfi hefur verið
gefið um fyrir 500 byssum.
Það er ekki frítt við, að straum-
urinn hafi eitthvað aukizt, eftir
að skotið var á Robert Kennedy,
sagði Bjarki. — Það er þó erfitt
að henda reiður á því, því að hann
var skotinn rétt eftir hvítasunnu-
helgina, en fyrir hana var frestur
til að skila skotvopnum framlengd
Það hafa komið allmargar
skammbyssur inn að undanförnu,
sem við vissum um, en við vitum
enn um nokkrar skammbyssur
sagði Bjarki.
ísland í 7. sæti
Einkaskeyti til Vísis frá Stefáni
Guðjohnsen í Deauville.
í gærkvöldi urðu úrslit þau, að
island vann Þýzkaland 18:2 og Suð
ur-Afriku 20:0. Hins vegar unnu
Frakkar okkar sveit 17:3. Þau tíð-
indi urðu í gær, að Filippseyingar
unnu heimsmeistarana 16:4 og
Jamaicamenn unnu Bandaríkja-
menn. Eftir 15 umferðir er staða
efstu þjóða þessi: 1. Ítalía 226.
2. Holland 216. 3. Ástralía 216, 4.
Bandaríkin 214, 5. Kanada 213, 6.
Sviss 204, 7. island 186, 8. Finn-
land 180. AIls taka 33 þjóðir þátt f
mótinu.
Islenzka sveitin í olympíumót-
inu í bridge stóð sig með mestu
prýði í gær. Hún sigraði Þýzkaland
W-H 10. síðu.
Norðurlandalæknar ákærðir fyrir
manndráp ef þeir flytja hjörtu?
— og aðgerðin misheppnast. — Þessi spurning og fleiri til umræðu
á þingi norrænna brjóstholsskurðlækna hér i Reykjavik
Fyrstu norrænu lækna-
ráðstefnu, sem haldin
hefur verið hér á landi,
lauk í gær, en þar var
Félag norrænna brjóst-
holsskurðlækna á ferð.
Um 70 erlendir sérfræð-
ingar frá öllum Norður-
löndunum í þessari grein
sóttu ráðstefnuna, auk
nokkurra íslenzkra þátt-
takenda. Auk þess sótti
ráðstefnuna einn sér-
fræðingur frá Hollandi.
Sjálft fundarhaldið stóð í tvo
daga og fluttu 30—40 læknar
erindi. Fyrri daginn var fjallað
um skurðaðgerðir í lungum, sér
staklega að því er varðar
krabbamein, einkenni þess og
hvenær hægt er að gera skurö-
aðgerð með von um árangur
Höfu'vandamálið i sambandi
við skurðaðgerðir vegna krabba
meins er hve seint sjúklingar
koma til skurðaðgerða, en oft er
vonlítið að skera upp vegna
þess. Það er eilíft vandamál,
uvernig hægt sé að komast að
sjúkdómnum nægilega fljótt
sagði Hjalti Þórarinsson, lækr,
ir, sem var forseti ráðstefnunn-
ar í viðtali við Vísi í morgun.
Seinni daginn var rætt um
hjartaskurðaðgerðir. Vandamál-
ið þar er að velja fólk til að-
gerðanna, t.d. þegar gamalt fólk
á hlut að máli. Það er oft höfuð
vandamálið hvort það þolir
skurðaðgerðina. F.inn erlendur
sérfræðingur minntist á hjarta-
flutninga. Var greinilegt að sér
fræðingar á Norðurlöndum eru
mjög varkárir í sambandi við
hugsanlega hjartaflutninga, þó
að tæknilega séö væri hægt að
framkvæma þá hvenær sem er.
Það er bæði frá læknislegu
sjónarmiði sem og réttarlæknis-
og lögfræðilegu sjónarmiði, sem
þeir eru mjög varkárir. Það kom
fram að læknar mættu eiga von
á því að vera ákærðir fyrir
manndráp, ef þeir framkvæmdu
slíka aðgerð og hún misheppn-
aðist.
Það var síður en svo að hjarta
flutningar væru fordæmdir á
ráðstefnunni, sagði Hjalti. —
Við hér á Norðurlöndum verð-
um þó líklega að bíða og sjá
hvernig til tekst í öðrum lönd-
um, áður en farið verður út i
þá á Norðurlöndum.
Flutningar á líffærum milli
manna verða teknir fyrir sér-
staklega á næsta þingi brjóst-
holsskurðlækna. Verður vænt.an
lega fjallað um þau mál frá lög
fræðilegu og læknisfræðilegu
sjónarmiði.
veiðar við Grænland, einn Grinda-
víkurbátur, Þórkatla er farin á-
leiðis á Grænlandsmið og Keflvík-
ingur mun fara þangað á næstunni,
auk þess stunda nokkrir Vestfirð-
ingar þessar útileguveiöar. Aflinn
er mjög misjafn. Dæmi eru til þess
að skip hafi fengið 10 lestir á 20
bjóð, sem er mjög góður afli, en
stundum er aflinn enginn eftir lögn
ina.
Einn bátur er ennþá á lúðuveið-
um með haukalóð úti undir Græn-
landskantinum, Arnfirðingur, og
var hann búinn að fá um 10 lest-
ir af lúðu þegar seinast fréttist af
honum.
Einn Vestfjarðabátur, Helga Guð-
mundsdóttir, er nú á netum við
vesturströnd Grænlands, um 700
mílna leið frá Reykjavík og er
færeyskur fiskilóðs um borð, en
ekkert hefur ennþá frétzt af afla
hennar.
Tilraunir með
silungseldi á
sveitabæjum
Á annaö hundrað þúsund göngu-
seiöum er sleppt f ár landsins á
þessu ári og koma bau frá hinum
ýmsu u ' oeldisstöðvum. Laxeldis-
stöðin í KoIIafirði afgreiðir yfir
40.000 gönguseiöi á þessu ári (ekki
4000 eins og misritaöist í Vfsi um
daginn), en alls framleiðir stöðin
um 65 þúsund gönguseiði.
1 Kollafiarðarstöðinni fara nú m.
a. fram athuganir á silungsrækt
með tiliiti til þess að hægt verði
að koma upp silungsrækt í smáum
stfl við sveitabæi. Á nfundu sfðu
blaðsins í dag er viðtal við veiði-
máiastjóra um ýmsa þætti fisk-
ræktar og um hættuna, sem veiði
f ám og vötnum stafar af mengun
vatnsins.
78 dauða-
slys 1967
Umferðarslys algeng-
asta orsók dauðaslysa
• Dauöaslys á síðasta ári urðu
78 samtals samkvæmt samantekt
Slysavarnafélags íslands. Flest
dauðaslysin urðu á fólki 25 ára
og eldra, eða 45, þá létust 17 á
aldrinum 16—25 ára, 7 á aldrinum
8—15 ára og 5 yngri en 7 ára.
Algengasta orsök dauöaslysa var
árið 1967 eins og fyrri ár umferð-
arslys. Alls létust 29 af völdum
umferðarslysa. Næststærstl flokk-
urinn voru drukknanir, en 21
drukknaöi við land og á hafi úti.
Vinnuslys voru 7, dauðaslys vegan
hruns eða byltu voru 7 og flugslys
voru 6. 5 létust af völdum voða-
skota, 1 af bruna, 1 af sprengingu
og einn varð úti.