Vísir - 12.06.1968, Qupperneq 9
VÍSIR . Miðvikudagur 12. júní 1968.
9
LAXINN stiklar nú sem óð-
ast flúðir og fossa upp í ár
landsins. Forsjálir laxveiði-
menn eru löngu búnir að
finna stund og stað til þess
að mæta honum í sumar.
Menn draga fram stígvél sín
og stengur, prófa maðk og
flugur — nýjar og nýjar tál-
beitur fyrir þessa lostætu
bráð — og ævintýri kyrr-
setumann: .. heitum sum-
ardögum. — Kannski verð-
ur það norður í Norðurá,
í Laxá í Döium, kannski
reyna menn fyrir sér í Sog-
inu ellegar þeir eru svo lán-
samir að komast í Elliða-
ámar.
Þór Guðjónsson veiðimálastjóri við klakkerin í Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði.
'C'ramtíð Elliðaánna sem lax-
veiðáa hefur verið mjög
umrædd undangengnar vikur.
Ýmsir telja þýðingarlaust að
halda veiðinni í ánum, hún
verði að víkja fyrir aukinni
byggð og auknum úrgangi og
óhreinindum af hennar völd-
um. Þannig hefur farið fyrir
Sementsverksmiðjunnar, ég veit
það ekki, en þetta þyrfti aö
athuga.
Það þyrfti að friða svæðin
beggja 'vegna árinnar og gera
þetta að skemmtigarði. Vatna-
svæði Elliðaánna er eitt feg-
vöxt á undanförnum árum. Og
í Laxeldisstöö ríkisins f Kolla-
firöi hafa farið fram merkilegar
tilraunir í sambandi við laxeldi.
I þessu sambandi sagöi veiði-
málastjóri:
— Við leggjum megináherzlu
— Er ekki taliö að íslenzki
laxinn fari upp undir Grænland
á vetrum og getur þá íslenzka
laxastofninum stafað hætta af
aukinni laxveiði viö Grænland?
— Það hefur aðeins fundizt
einn merktur lax héðan við
Gönguseiðin - tákn nýs tíma í fiskirækt
lESEHDIII
MfA ORBHS: i
Munið þú blðndu
Þröstur 1 Garði skrifar blað-
inu um málefni þeirra blindu
m. a.:
. •. ef þú lokar augunum
f 10 mínútur eða svo verður þú
þeirri stundu fegnastur, þegar
þú opnar þau aftur og færð not
ið þess sem þú sérð í kringum
þig. Já, ég held okkur sé gott
að hugsa okkur hvernig þaö væri
að vera blindur og hugleiða i
leiðinni málefni þeirra blindu
Þeir sem hafa séð þetta fólk
viö dagleg störf sjá, að það get-
ur orðið aö miklu liði og getur
unnið hratt og örugglega og
vandvirkni er einstök. En hvað
getum viö gert til að hjálpa
þessu fólki til að vinna? Ég
skrifa þessar línur til að biðja
fólk um að styrkja happdrætti
blindra, sem nú er selt, — við
ættum að kaupa hvern einasta
miða upp, þannig getum við orð-
ið að miklu liði...
Allt í fína...
Spjallað við Þór Guðjónsson, veiðimálastjóra
um fiskirækt, merkingu laxa og aukna hættu
á mengun i ám og v'ótnum
fjölda laxveiðifljóta, sem renna
um fjölbýl héruð í grannlöndum
okkar. Seinasti laxinn dó í Rín
einhvem tíma í lok stríðsins
og engum laxi er lengur vært í
Themsá fyrir eiturspúandi
fljótaprömmum og annarri um-
ferð.
Vísir átti f vikunni viötal við
Þór Guðjónsson, veiðimálastjóra
um Elliðaárnar og horfur í lax-
veiöum.
— Það hefur verið talað um
mengun í Elliðaánum, þó ekki
sé í rauninni vitað hversu mik-
il hún er. Það hafa fundizt í
ánum svokallaðar coli-bakt-
eríur og virðist tala þeirra mjög
há. Hún leiöir í ljós aö mikið
er af saurbakteríum í ánum og
öðrum óhreinindum. Hins vegar
er eftir að athuga hve mikið úr
klóökum fer beint út í árnar
og stendur raunar til að gera
það á næstunni.
Sápuefnin hættuleg
fiskinum
Ýms gerviefni, svo sem sápu-
efni, sem konurnar hafa mikið
dálæti á verka mjög sterkt,
þegar þau koma í vatnið og eru
hættuleg fiskunum í vatninu.
Notkun þessara efna hefur far-
iö vaxandi og er orðin gífurlegt
vandamál víða í grannlöndum
okkar og öðrum þéttbýlum
löndum.
Það þarf sem sagt að gæta
fyllsta hreinlætis ef við ætlum
að halda einhverju lifandi í
Elliðaánum. En þær geta verið
áfram góðar laxveiðiár. Það eru
dæmi til þess erlendis að lax-
veiðiár renni í gegnum borgir,
til dæmis Aberdeen á Skot-
landi. Þar hefur fiskurinn ekki
orðið fyrir skaða af þéttbýlinu.
Fólk gerir sér almennt ekki
grein fyrir þessu, aö þar sem
byggð er á árbakka verður að
gæta fyllstu varúöar aö menga
ekki vatnið.
Önnur mengun getur svo
stafað af auknum iðnaði. — Til
dæmis eins og af afgreiðslu
ursta svæðið I borgarlandinu
og við megum ekki gera árnar
að einhverjum forarvilpum.
Aukin hætta á
mengun í ám
— Er ekki víöar pottur brot-
inn en hérna? Hvað líður ánum
sem renna um þéttbýli, til dæm-
is hérna austan fjalls?
— Þetta er alveg nýtt vanda-
mál hér hjá okkur. Mengunar-
hætta var engin hér áður, með-
an byggðin var dreifð. Þessi
hætta skapast með auknu þétt-
býli. Þaö myndast byggðakjam-
ar í sveitum og þeim fylgir óhjá
kvæmilega aukin hætta fyrir
allt vatn, — til dæmis vegna
olíu og bensíns. Það getur til
dæmis tekið óskaplega langan
tíma að uppræta olíu ef hún
lendir í hreinu vatni. — Viö
höfum nærtækt dæmi um þann
skaða, sem olían getur valdið.
Nú þessum byggðalögum
fylgir alltaf einhver iðnaður,
verkstæði, sláturhús — og ég
óttast aö ekki sé nægrar var-
úðar gætt með úrgangsefnin
frá þessum fyrirtækjum, þar
sem ár eru annars vegar. Það
liggur beinast við að veita þessu
öllu í fljótið.
Ég myndi til dæmis segja, að
Varmá í Ölfusi, sem rennur hjá
Hveragerði væri í mikilli hættu.
ölfusá er kannski ekki í eins
mikilli hættu, en hún tekur við
æöimiklu rusli. Viö verðum að
vernda þessar ár, ef við ætlum
ekki aö gera þær að skítugum
forarvilpum.
Þessu hefur verið of lítill
gaumur gefinn hér á landi. En
ég hef þá trú aö ár sem renna
um þéttbýl svæði, eins og Ell-
iðaárnar geti orðið góöar lax-
veiðiár um langa framtíð ef
þessa er gætt.
Gönguseiði geta
aukið veiðiálagið
Laxeldi hefur færzt mjög I
á uppeldi gönguseiða, þaö eru
seiði, sem tilbúin eru aö ganga
í sjó. Á þessu ári veröur á
200. þúsund gönguseiðum sleppt
í hinar ýmsu ár hér og þar á
landinu. Laxeldisstöðin í Kolla-
firði framleiöir um 65 þúsund
gönguseiöi í ár. Stærsta pönt-
unin, sem stöðin hefur fengið
til þessa var afgreidd fyrir síð-
ustu helgi, 18 þúsund seiði,
sem sleppt var í Elliðaámar,
sem kunnugt er.
Þetta er að vissu leyti tákn
hinna nýju tíma í fiskrækt hér
á landi. Markmiðið með lax-
eldinu er meðal annars það að
bæta það tjón, sem verður á
náttúrlegu laxaklaki í ánum af
einhverjum ástæðum, eins og til
dæmis flóöunum í Elliðaánum
í vetur.
Markmið laxeldisins er þannig
að viðhalda eðlilegri fjölgun
laxastofnsins og auka laxagengd
í ánum.
Veiðiálag í laxveiðiám er
miðað við þá aukningu sem
verður árlega á fiski í ánum frá
náttúrunnar hendi. Með lax-
eldi í ám gæti veiðiálagið auk-
izt sem þvl næmi.
Árangurs af kynbótum
ekki að vænta fyrr en
eftir 15—20 ár
— Hefur ekki verið farið
neitt út í kynbætur I Kolla-
fjarðarstöðinni, rækta upp
laxastofn? Mér skilst að stöðin
hafi hlotið ámæli fyrir að sinna
ekki þvl hlutverki.
— Aðalverkefni Laxeldis-
stöðvarinnar I Kollafirði hefur
verið aö koma upp laxastofni
til þess að ala undan göngu-
seiði. Að sjálfsögðu verður lögð
áherzla á kynbætur, en þær
taka mörg ár og af þeim er
ekki árangurs að vænta fyrr en
eftir 15—20 ár.
Eitt af því sem við erum að
gera I stöðinni, er að merkja
laxinn og sjá hvert hann fer og
hvemig hann hagar sér — hve
stór hundraðshluti muni skila
sér aftur I árnar. Það er mikið
órannsakað I þeim efnum hér
á landi. Við vitum ákaflega litið
um ferðir laxins eftir að hann
gengur út I sjó á haustin.
Grænland. Hann var á öðru ári
slnu I sjó. Hins vegar hafa farið
fram merkingar á laxi við
Grænland til þess að sjá hvert
hann fer og það hefur sýnt sig
að þar er mest um Kanadalax
aö ræða. Einnig hefur lax,
merktur við Grænland, skilað
sér við Skotland og Írland.
Við gérum ráö fyrir að ís-
lenzki laxinn haldi sig suður
og vestur af landinu, en þetta
er allt órannsakað ennþá.
Sem dæmi um það hversu
laxinn skilar sér til sinna
„heimahaga" má nefna það að
hoplax, sem merktur var I
Vatnsdalsá var sleppt I Grafar-
læk. Hann skilaði sér aftur I
Vatnsdalsá árið eftir.
Silungsrækt heima
við sveitabæi
Nú — auk gönguseiðanna
ræktar Kollafjarðarstöðin enn-
fremur fiska af fleiri stærðum,
allt upp I 2—300 grömm. Nú er
einnig verið að gera tilraun með
bleikjuseiöi.
Þá er einnig verið að gera
tilraunir til þess að finna bezta
og ódýrasta fóðrið, bæði fyrir
lax og silung.
Við erum einnig að byrja að
gera tilraunir með silungsrækt.
Atl.vglin hefur fram til þessa
mest beinzt að laxinum, vegna
þess að hann er dýrastur. —
Þær tilraunir sem farið veröur
út I sambandi við silungsupp-
eldið miðast meöal annars við
þaö að kanna færar leiðir til
þess að ala upp silung I smáum
stíl heima við sveitabæi.
Starfsemi stöðvarinnar ætti í
framtíðinni að koma að notum
fyrir hvers konar fiskuppeldi
svo og fyrir laxabú, eins og
t. d. hið nýja laxabú I Lárósi
á Snæfellsnesi.
Við munum aö sjálfsögðu
reyna að taka fyrir sem flesta
þætti fiskræktunar eftir því
sem okkur endist fé og starfs-
kraftar til, en til þess þurf-
um við allan stuðning frá þvi
opinbera og einstaklingum.
Þessi mál þurfa sinn uppbyg^
ingar- og þróunartíma.
Viggó Oddsson, lesendum blaö,
anna aö góðu kunnur, skrifar
m. a. frá Rhódeslu:
... hér er ekkert vöruhamst-
ur eða merki um kreppu, inn-
lendur iönaöur hefur aldrei haft
það eins gott og bætir upp þaö
sem áður var flutt inn. Miklar
útsölur eru I Salisbury og er-
lendur lúxusvarningur, eins og
t. d. hollenzkt og finnskt súkku-
laði og glerdót frá Feneyjum,
sem maöur skyldi halda að
Rhódesla hefði ekki efni á að
sóa gjaldeyri I, er þar að finna.
Engar óeirðir eða kynþáttahat
ur hafa verið I Rhódesíu né fleiri
innrásir skæruliða frá kommún-
istaríkjunum en um 100 voru
felldir eöa náðust fyrr á árinu.
Þrátt fyrir fögur orð Breta um
friðsamlega lausn Rhódesludeil-
unnar hefur sannazt að þeir
hjálpa skæruliðum um vopn og
vegabréf til þjálfunarferða til
kommúnistaríkjanna til að ráö-
ast á Rhódesfu. Margar sögur
eru um smásmuguhátt Breta í
„stríðinu" við Rhódesiu og hafa
þeir m. a. seinkað jólakortum
frá mér til ísl. um 4 mánuði.
V.O.
Fögur borg, —
en illa lyktandi
„Borgari" skrifar þættinum
langt bréf um borg „útsvínaða
ýldufýlu, sem verði aldrei fög-
ur“ meðan svo má vera og segir
m. a. um reykinn frá fiskúr-
gangsverksmiöjunum:
Nú er enn einu sinni sá árs-
tími kominn hér I Reykjavík,
þegar góöviðris er helzt að
vænta á sólvörmum sumardög-
um norðanandvarans. Leita full-
orönir og börn þá útivistar Víð
störf og leik I húsagörðum sln-
um, eöa á blómskrýddum úti-
vistarsvæðum borgarinnar. En
nú, eins og á undanförnum sumr
um, hafa borgararnir enn fengið
yfir sig ósómann. Ýldusúpan
Iæðist nú daglega yfir borg og
byggð og gerir alla útiveru ó-
hugsandi I stórum hlutum borg-
arinnar hverju sinni. Jafnframt
leitar óbverrinn inn um hverjs
smugu og spillir þannig andrúms
loftinu einnig á heimilum jafnt
og á vinnustöðum manna.