Vísir - 07.08.1968, Blaðsíða 16
fSggjjl
Grunuð um
eiturlyfja-
neyzlu
Rétt fyrir kl. 21 f gærkvöldi varö
árekstur milli tveggja bifreiöa á
móts við Nesti í Fossvogi. Stjóm-
andi annarrar bifreiöarinnar, sem
r kona, er grunuð um, aö hafa
verið undir áhrifum eituriyfja og
var hún þegar send í rannsókn.
Engin r.ieiösli uröu á mönnum, og
litlar skemmdir á ökutækjum. Báö
ir bflamir vom úr Kópavogi.
w
Ur Landmannalaug-
um á fæðingardeild
— ferðalagib lengdist
um átta daga
Sá atburöur gerðist um verzlun-
armannahelgina, aö flytja þurfti
unga stúlku, sem var ásamt félög-
um sínum í Landmannalaugum,
með þyrlu á sjúkrahúsiö á Seifossi.
Stúlkan sem er úr nágrenni Reykja-
víkur haföi tekið léttasóttina og
varð því að bregða skiótt viö.
Er þyrlan kom meö stúlkuna til
Selfoss var hún i skyndi flutt til
sjúkrahússins, þar sem hún 61 12
marka sveinbarn. Fæðingin tókst
með miklum ágætum og líður báð-
um mjög vel. Það hefur komið
fram í fréttum að stúlkan hafi
ekki átt von á jsér fyrr en eftir tvo
mánuði, en það er aigjör vitieysa,
að sögn Óla Kr. Guðmundssonar
Sjúkrahússlæknis á Selfossi. öðru
máli gegnir um hvort skynsamlegt
sé fyrir vanfæra, 17 ára stúlku að
fara i útilegu í slíku ástandi.
Stúlkan fær að halda heim til
sín eftir nokkra daga og hefur þá
drenginn litla meðferðis. Ein fór
af stað, tvö komu til baka!
Samkeppni um æskulýðsheimili
borgarinnar
— heildarverðlaun 205 búsund krónur
svipuð starfsemi og Æskulýös-
ráð hefur haft að Fríkirkjuvegi
11. Samkomusalurinn á að vera
um 280 fermetrar og auk hans
er gert ráö fyrir mjólkurbar,
leiksviði, tómstundaherbergjum
og fleiru. 1 dómnefnd eiga sæti
Þór Sandholt arkitekt formaður,
Reynir G. Karlsson framkv.stj.,
Styrmir Gunnarsson lögfr., Jó-
hann Eyfells arkitekt og Helgi
Hjálmarsson arkitekt.
■ Nýlega hófst samkeppni
um æskulýðsheimili á lóð
inni Tjarnargötu 12, þar sem
nú stendur Tjarnarbær. Það
hefur tekið töluverðan tíma
að undirbúa samkeppni þessa,
en borgarstjóm Reykjavikur
samþykkti fyrir alllöngu að
hún skyldi fram fara. Heim-
iid til þátttöku hafa allir fé-
lagar Arkitektafélags íslands
og íslenzkir námsmenn í
byggingarlist, sem lokið hafa
fyrrihiuta-prófi við viður-
kennda háskóla í þeirri grein.
Heildarverðlaun verða 205
þúsund krónur, sem skiptast
þannig: 1. verðlaun 105.000, 2.
verðlaun 70.000, 3. verðlaun
30.000. Auk þess er dómnefnd
heimilt að kaupa tillögur fyrir
allt að kr. 30.000. Þátttökugjald
er 500 krónur og er það óaftur-
kræft. Þetta nýja æskulýðsheim-
ili við Tjarnargatu á að vera
um 3000 rúmmetrar aö stærð og
er ætlunin að þar veröi rekin
X,.
Æskulýðsheimili borgarinnar verður staðsett þar sem Tjarnarbær er nú.
Ákvörðun um EFTA-aðild í haust
— segir viðskiptamálaráðherra. Viðræður við
ýmis hagsmunasamtök hefjast innan tiðar
í vor og sumar hefur setið að
störfum nefnd, sem kanna á mögu-
leika á aðild íslands aö fríverzlun-
arbandalaginu EFTA og þó sérstak-
lega áhrlf slíkrar aöildar á íslenzk
an iðnað en nefnd þessi var skip-
uö sl. haust. Einar Benediktsson,
hagfræðingur, sem var sendiráðu-
nautur í París, hefur verið ráðinn
deildarstjóri •' viðskiptamálaráöu-
| neytinu og vinnur hann aö könnun
þessa máls.
í Gýlfi Þ. Gíslason, viöskiptamála-
ráðherra, skýrði blaðinu frá þessu.
^ Hann kvað aðild að EFTA vera
I augljóst keppikefli útflutningsat-
i vinnuveganna. Hins vegar þyrfti aö
> kanna áhrif hennar á iðnaðinn og
I
1 tolltekjur ríkissjóðs. Gerði hann ráð
fyrir, að innan skamms hæfust við-
ræöur stjórnarvalda viö hagsmuna-
samtökin, í sjávarútvegi, iðnaði,
verzlun og landbúnaði, Vænta
mætti niðurstöðu í málinu í haust.
í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra
stjómmálaflokka, það ecu Gjdfi Þ.
Glslason, formaður, Magnús Jóns-
son, Lúðvík Jósefsson, Pétur Bene-
diktsson og Helgi Bergs. Ekki hefur
orðið neinn grundvallarágreiningnr
í nefndinni hingað tfl.
Uppreisn dýranna
Nýja dráttarbrautin á Ak■
ureyri tekin í notkun
— næg verkefni framundan, brautin vethur vigð i næsta mánuði
■ 1 gær .ar nýja 200 tonna
dráttarbrautin á Akureyri
tekin í notkun meö því að m.s.
„Snæfell“ var dregið í hana til
klössunar. Reynd'st brautin eins
vel c ætlað var, enda þótt smá
vægilegar lagfæringar væru eft-
ir. Viðstaddir voru starfsmenn
við uppsetningu brautarinnar,
þ.á.m. nokkrir Pólverjar, framá-
menn Slippstöðvarinnar hf., sem
er leigutaki brautarinnar, og full
trúar Akureyrarbæjar, hafnar-
stjómar og hafnarmálastjóra,
Þe-oi nýi' dráttarbraut er
stórt og glæsilegt mannvirki. Ei
útbúnaður allur hinn fullkomn-
asti. í brautina er unnt að taka
upp a.m.k. 2000 þungatonna
skip, eða allflest skip, sem nú
jru í eigu Islendinga. Til sam
anburðar má geta þess, að
stærsta brautin, sem fyrir er i
landinu, A Reykjavík, er gefin
upp fyrir 1500 þungatcnna skip
en þar hafa verið tekin upp
skip á 3. þús. tonn
Næg verkefni eru framundan
fyrir dráttarbrautina. Verða
fyrst tekin upp minni skip, ea
í næsta mánuði er ætlunin að
taka brautina formlega i notk
un. Þá verður togarinn „Kald-
bakur" tekinn upp.
Nú er eftir að setja upp hlið
árfærslu fyrir 800 þungatonna
10.
Blessaöar skepnumar hafa ver
ið óþægar við forráðamenn land
búnaöarsýningarinnar, og liggur
við, a" ekki sé einleikiö með'
hegðun þeirra. Ferhyrndi hrút-
urinn, sem áttl aö sýna, tók upp
á þvi, vesalingurinn, að drukkna
f Hvítá á .eiðinni til höfuöborg-
arinnar. Á Austurlandi var tam-
iö hreindýr, og þótti auövelt
aö grípa bað nokkmm dögum
fyrir sýninguna.
Tólf hreystimenni réðust gegn
þvi, en hreindýrið lagði á flótta
og snerist svo gegn ofsækjend-
um sínum. Urðu kappamir þá
felmtri slegnir og hurfu frá að
svo búnu. Verður því ekkert
hreindýr á ^yningunni. Þá fellur
boðaður hrossamarkaður niður.
Ríkissjóður hefði tekið yfir tíu
af hundraöi söluverðs þeirra og
vildi ekki skapa hefö, þannig
að sýnendur slyppu skattfrjáls-
ir frá slíkum markaöi. Þótti þá
forráöamönnum sýningarinnar
illur hlutur sinn og ekki borga
sig að halda markaöinn.
i9^:-3v •'í.tfr**' ■
■ t
,v-< 4^*
■ ‘
‘I i \ ‘ 4 4 » Í l'