Dagur - 27.02.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 27.02.1999, Blaðsíða 2
n-LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 SÖGUR OG SAGNIR Dggur FREYJA JÓNSDÓTTIR skrifar Nýja bíó var stofnað árið 1912 í húsakynnum Hótels Islands og fóru kvikmyndasýningar þar fram þar til byggingu hins eiginlega bíóhúss var lokið. Árið 1919 keypti Nýja Bíó suð- urhluta lóðarinnar Austurstrætis 22, til að byggja á henni fyrsta hús á Islandi sem eingöngu var ætlað undir kvikmyndasýningar. Bygging hússins gekk hratt fyrir sig og hófust kvikmyndasýningar þar árið eftir. Finnur Thorlacíus húsasmíðameistari teiknaði hús- ið, það bar greinileg einkenni jugendstílsins. Fyrsta bruna- virðingin var gerð á byggingunni sjöunda ágúst 1920. I henni segir að húsið sé 22x12,6 metrar að grunnfleti, byggt úr járnbentri steinsteypu, veggir loft og þak. En yfir miðju hússins er járnþak á langböndum, fimm metra breitt eftir húsinu endilöngu. Beggja megin við járnþakið er bogamynd- að tvöfalt steinsteypuþak. Húsið er tvær hæðir auk þaklyftis, með kjallara undir. 1 miðju hússins er sautján metra langur salur, níu og hálfur metri á breidd og tíu metra hár. I austurenda salarins er upp- hækkað svið sem nær sjö metra fram í húsið. Með allri framhlið hússins á neðri hæð er fordyri, allt flísalagt, þar er klefi fyrir að- göngumiðasölu þiljaður með eik. Við austurenda salarins er stiga- gangur frá kjallara til þaklyftis. Allir stigar eru steinsteyptir og þrep klædd marmara. Salur fyrir kaffisölu er yfir fordyrinu. Við vesturgafl eru stigar úr timbri, frá kjallara til þaklyftis. A framhlið hússins eru fjórar dyr og þrír kvistir á norðurhlið, allir með steinsteyptu þaki. Kjallari er und- ir húsinu öllu, sextán metrar á breidd og eru þrír metrar af breidd hans ekki yfirbyggður, myndar loft þessa hluta hans gangstétt meðfram framhlið húss- ins og er hátt steypt handrið á ytri brún gangstéttarinnar frá tröpp- um að austurgafli hússins. Kjallarinn og allt húsið er sem- entssléttað að utan og innan og allt málað að innan. Þar eru þrjú kaffisöluherbergi, eldhús með miðstöðvarklefa, mótorklefa, tveir gangar, tvö klósett og geymsluher- bergi. I húsinu eru vatns- og skólppípur, rafljósatæki, mótor með leiðslum og lögnum. Gólf eru flest lögð línolíudúk. í virð- ingu frá 1931 kemur fram að búið er að byggja við húsið bifreiðaskúr úr múrsléttaðri steinsteypu. Hann var allur þiljaður innan með plægðum borðum. Skilveggir úr bindingi og þiljaðir yfir með panel. I skúrnum voru fjögur her- bergi og virðist hann ekki hafa verið notaður fyrir bifreiða- geymslu. I lok seinni heimsstyij- aldarinnar var aukið við lóðina og hús bíósins stækkað fram að göt- unni með stórri viðbyggingu sem aðallega var notuð undir skifstof- ur. Um Ieið var sýningarsalurinn lengdur og einnig gerður inn- gangur frá Lækjargötu. I virð- ingu frá árinu 1948 segir að byggð hafi verið viðbygging frá húsi bíósins sem nái fram að Lækjargötu. Af gamla húsinu var rifinn austurgafl þess og þakið af sýningarsal. Að öðru leyti stendur gamla húsið óhaggað, fyrir utan umbætur sem gerðar voru á því eins og innréttingar og samteng- ing við nýbygginguna. A fyrstu hæð í nýbyggingunni út að Lækj- argötu eru búðir og skrifstofur, svo og gangur inn í kvikmynda- hýsið. Hurða- og gluggakarmar Rósenbergkjallarinn í Nýja bíói. Hann var opnaður um leið og Nýja bíó tók til starfa um 1920 og var þá með fín- ustu veitingasölum bæjarins. Nýjabíó eru úr stáli á mótum gamla og nýja hússins og í gamla húsinu er anddyri kvikmyndahússins og sýningarsalur. Anddyrið er klætt sænskum kalksteini á veggjum en á gólfi er granít. Sýningarsalur er ekki múrhúðaður en klæddur inn- an. A gólfi er dúkur. Neðst á veggjunum er brjóstklæðning úr oregonpine með mahonylistum, en að ofan eru nettar harðvið- arplötur á trélistum. Loftið er klætt plægðum trélistum. I sýn- ingarsalnum eru fjögur hundruð og eitt sæti. A annarri hæð ný- byggingarinnar eru skrifstofur út að Lækjargötu, málaðar og dúkar á gólfum. Gluggar eru úr stáli með tvöföldu gleri. A annarri hæð gamla hússins eru þijár skrifstof- ur, veggfóðraðar með dúk á gólf- um. Þriðja hæðin er með glugg- um úr tré en herbergjaskipan eins og á annarri hæðinni. Sýningar- herbergi kvikmyndahússins er á fjórðu hæð og auk þess er þar ein skrifstofa. Herbergin eru múr- húðuð með dúkum á gólfum. Út- gönguhurð er úr stáli. A fimmtu hæð sem er öll múrhúðuð og mál- uð með dúkum á gólfum eru skrifstofur. I kjallara nýbygging- arinnar eru útveggir einangraðir með frauðsteypu og múrhúðaðir að mestu og einnig að mestu leyti málaðir með steinmálningu; gólf eru máluð. Kjallari gamla hússins er óbreyttur, en tengdur við nýja kjallarann. Þar er rými fyrir loft- ræstingakerfi hússins. A mótum kjallaranna eru salerni, múrhúð- uð og máluð með flísum á gólf- um. Á stigum í nýbyggingunni er norsk skífa. Framhlið nýbygging- arinnar sem snýr að Lækjargötu er klædd svörtu granít að utan upp á aðra hæð, en þar fyrir ofan er húsið kvartshúðað. Við útveggj- um gamla hússins var ekkert hreyft og er hliðin að Austurstræti máluð frá eldri tíð. Yfir sýningarsal er steypt loft, klætt bárujárni. Sama máli gegnir um þak nýbyggingar. Arkitektarn- ir Agúst Steingrímsson, Hörður Bjarnason og Gunnlaugur Páls- son teiknuðu nýrra húsið. Bjarni Jónsson, stundum kallaður Bíó Bjarni, var meðeigandi og framkvæmdastjóri Nýja Bíós. Hann fæddist á Galtafelli í Árnes- sýslu 3. október 1880 sonur Jóns Bjarnasonar frá Bolafæti í Hruna- mannahreppi og konu hans Gróu Einarsdóttur frá Bryðjuholti. Bjarni var næst yngstur sjö systk- ina og bróðir Einars Jónssonar myndhöggvara. Voru þeir bræður samtíma við nám í Kaupmanna- höfn. Bjarni lærði trésmíði, út- skurð og húsgagnasmíði. Hann var yfirsmiður við Stóra-Núps- kirkju, vann við smíði Hrepps- hólakirkju og skar úr altarið og predikunarstólinn ásamt Stefáni Eiríkssyni. Bjarni Jónsson var einn af mestu athafnamönnum sinnar tíðar. Hann stofnaði Gamla-Kompaníið, sem var fyrst til húsa í Breiðfírðingabúð. Hann lét sér ekki nægja að reka ein- göngu Gamla-Kompaníið, þegar Nýja-Bíó var stofnað í húsakynn- um Hótels Islands gerðist hann sýningastjóri þar. Fyrri kona Bjarna Jónssonar var Stefanía Stefánsdóttir frá Asólfsstöðum í Þjórsársdal, fædd 20. júlí 1887. Hún lést 28. desemberl908. Seinni kona hans var Sesselja Ingibjörg Guðmundsdótdr, fædd 17. júní 1889 að Deild á Akra- nesi. Bjarni Jónsson bjó lengst af í húsi sínu við Laufásveg sem hann skírði Galtafell eftir æsku- heimili sínu í sveitinni. Hann lést 28. ágúst 1966. I gegnum árin hefur auk kvikmyndahússins ver- ið ýmiskonar rekstur í húsinu að húsinu Austurstræti 22 b. Veit- ingastaðurinn Rosenbergkjallar- inn var um árabil í kjallara húss- ins, en Rosenberg var áður veit- ingamaður á Hótel Islandi. Arið Alfreö Rosenberg rak hótel og veitingahús í Reykjavik af miklum myndarbrag og er hans minnst sem eins fremsta veitingamanns landsins, þar sem saman fór glæsileiki og fagmennska. 1983 var staðurinn opnaður að nýju undir nafninu I Kvosinni. Skemmtistaðurinn Tunglið var um árabil í húsinu, í plássinu sem bíóið var áður í. Mörg fyrirtæki og skrifstofur voru á efri hæðum hússins, þar var um árabil lög- mannsstofa. A fyrstu hæðinni var Iðnaðarbankinn, síðan skrifstofur Flugleiða og ýmsar verslanir og veitingahús hafa einnig verið starfrækt þar. Mikil eftirsjá er af húsi Nýja Bíós og margir eiga þaðan rómantískar minningar. Sjálfsagt rekur einhverja minni til þess að hafa brotið ísinn með því að bjóða sætustu stelpunni í bíó og rölt svo rúntinn arm í arm á eftir. Þetta gamla og gróna kvik- myndahús skipti um eigendur og nafn árið 1986 og hét eftir það Bíóhúsið sem hætti rekstri 10. október 1987. Árið 1917 var sýnt í Nýja Bíó „Fínar fjaðrir", amerískur söng- leikur um gæfu og ást Iistamanns. Á svipuðum tíma sýndi bíóið „Svikabaróninn", framúrskarandi hlægilegur gamanleikur með am- erískum leikurum segir í auglýs- ingu í Morgunblaðinu frá þessum tima. Á annan dag jóla 1920 var Stígvélaði kötturinn sýndur. Myndin var tekin í Stokkhólmi og var Gustaf Fridreksen aðalleikar- inn. Sýningar voru klukkan sjö og níu. Nóttina 30. júlí kom upp eldur f húsinu og var slökkvliði tilkynnt um eldinn klukkan 05.14. Slökkvuliðið barðist við eldinn sem breiddist fljótt út og var Ián að enginn skyldi stórslasast. Einn slökkviliðsmaður meiddist þó talsvert við reykköfun er hann fékk brennandi bita á sig. Tveir aðrir slökkviliðsmenn hlutu minniháttar meiðsl þegar þeir voru að beijast við eldinn. Fyrir nokkrum vikum sáu borgarbúar að stórvirkar vinnuvélar voru komnar á staðinn. Núna hafa síð- ustu minjar þessa merkilega húss verið fjarlægðar, aðeins er eftir grunnurinn af húsinu, sem íjöl- hæfí bóndasonurinn frá Galtafelli byggði og starfrækti kvikmynda- hús í marga áratugi. • vökvastýri • 2 loftpúða • • aflmíklar vélar • samlæsingar • 1 rafmagn í rúðum og speglum • • styrktarbita í hurðum • • samlitaða stuðara • • Sérstaklega röskur og snúningslipur • Ein sparneytnasta vélin á markaönum • Lægsta bilanatíðni nýrra smábíla, aðeins 1,6% • Óvenju ríkulegur staðalbúnaður fyrir bíl í þessum verðflokki Auto ReporJ. 98 fra TUV, Technisther Uberwachungs Verein, byggt á meira en 3 millíónum bíla. $ SUZUKB ✓> SWIFT SUZUKIBILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíóa: www.suzukibilar.is TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.