Dagur - 16.03.1999, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1999 - S
FRÉTTIR
Skagfirðmgar hafa efa-
semdir inn matvælarisa
KEA, KÞ og SAHþreifa
fyrir sér með stofnun
sameiginlegrar afurða-
stöðvar í mjólkur- og
kjötframleiðslu. Skag-
firðingar ekki með.
Kaupfélagsstjóri KS
segir málið ekki nógu
vel undirbúið.
Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupfélag
Þingeyinga og Sölufélag Austur-
Húnvetninga hafa formlega haf-
ið könnun á hagkvæmni samein-
ingar ákveðinna rekstrarþátta.
Þessi fyrirtæki munu í upphafi
leggja áherslu á könnun samein-
ingar í mjólkur- og kjötvinnslu í
samstarfi \ið ráðgjafafyrirtækið
Pricewaterhouse Coopers ehf.
Niðurstaða þessarar vinnu mun í
síðasta lagi liggja fyrir í Iok maí
næstkomandi. Hugsanlega er
matvælarisi í fæðingu en kaupfé-
lagsstjóri KS hefur efasemdir um
málið.
Markmiðið könnunarinnar er
að fá fram mynd af umfangi
hverrar rekstrareiningar og efna-
hagslegri uppbyggingu. Til að
tryggja að verkefnið hafi nauð-
synlegt stjórnunarlegt vægi,
verður skipuð verkefnisstjórn,
sem í eiga sæti kaupfélagsstjórar
og stjórnarformenn kaupfélag-
anna þriggja.
Jákvæðir straumar bænda
Nokkuð er síðan KEA kannaði
hug forsvarsmanna annarra
kaupfélaga á Norðurlandi og
raunar víðar á hugsanlegri sam-
vinnu eða sameiningu. Það skref
sem nú er stigið er framhald
þeirrar \ánnu og segir Eiríkur S.
Jóhannsson, kaupfélagsstjóri
KEA: „Eg vil leggja áherslu á að
þetta mál verði unnið í náinni
samvinnu við framleiðendur á
félagssvæðunum enda höfum við
fundið fyrir jákvæðum straum-
um frá þeim vegna þessara hug-
mynda. Einnig er vert að undir-
strika að þótt þessi þrjú félög
hafi nú tekið höndum saman
með þessum hætti er fullur vilji
til þess hjá öllum aðilum að fleiri
félög geti komið inn í þessa
vinnu ef þau óska.“
Nokkra athygli vekur að Kaup-
félag Skagfirðinga stendur utan
þessara þreifinga. Kaupfélags-
stjóri KS, Þórólfur Gíslason, seg-
ir að þeim hafi ekki verið boðin
þátttaka en hafi á hinn bóginn
ekki heldur falast eftir samvinn-
unni. Ein ástæða þess sé að
rekstrarbætur hafi tekist vel á af-
urðastöðvum KS síðari ár og
hann telji nauðsynlegt að eining-
arnar allar hagræði fyrst og hafi
sinn rekstur í lagi áður en kemur
að auknu samstarfi.
Ekki raunhæft
„Eg tel þessar hugmyndir ekki
raunhæfar um matvælarisa allt
frá Hornafirði að Faxaflóanum.
Fyrst og fremst vegna mikilvægis
þess að ákveðin nálægð sé milli
bændanna sjálfra og afurða-
stöðvanna. Einnig tel ég að til
þess að ná árangri þurfi öll und-
irbúningsvinna og þar með rekst-
ur þessara fyrirtækja að vera í
góðu lagi áður en næsta skref er
stigið. Eg dreg í efa að búið sé að
vinna alla þá heimavinnu sem
þarf en ég óska þó hlutaðeigandi
alls hins besta," segir Þórólfur.
KEA fari of hxatt?
Þórólfur segir að KEA sé nú að
umbylta sinni starfsemi og hann
dregur ekki dul á að farsælla
hefði verið fyrir alla aðila ef þeir
hefðu klárað sínar skipulags-
breytingar áður en þeir færu
þvers og kruss um landið. „Mér
finnst hreinlega að ekki sé búið
að undirbúa málið nógu vel. Eg
hefði talið réttara að hefja sam-
starf í minni einingum og þá
meira á landfræðilegum grunni,"
segir Þórólfur. —
Enginn með
asnaeyru
„Bæði Rúmfatalagernum og
KEA hefur alla tíð verið gerð
grein fyrir því að þetta sé mjög
flókið mál í vinnslu og muni
taka langan tíma. Það hefur ekki
verið meiningin að draga neinn
á asnaeyrunum," segir Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri.
I Degi á laugardag sagði versl-
unarstjóri Rúmfatalagersins á
Akureyri, Birgir Reynisson, að
löng bið eftir ákvörðun um
framtíð Akureyrarvallar hafi
valdið Rúmfatalagernum óþæg-
indum. Fyrirtækið hefur ásamt
KEA sótt um Ióð undir verslun-
arhúsnæði þar sem aðalleik-
vangur Akureyrar er nú, en Birg-
ir sagði að fyrirtækið gæti ekki
skoðað aðra húsnæðismöguleika
á meðan bærinn hugsaði sinn
gang. Hann teldi að búið væri að
draga þá á asnaeyrunum í mál-
inu ef bærinn hafnaði umsókn-
inni.
Kristján Þór segir ekkert liggja
fyrir hvort ákvörðunin verði um-
sækjendum jákvæð eða nei-
kvæð. - bþ
Hættir hjá Viimslustöðinni
Tap varö af reglulegri
starfsemi Vinnslu-
stöðvarmnar aö upp-
hæð 140 milljónir
króna á síðasta rekstr-
arári, sem alls ekki
verður talið ásættan-
legt.
Sighvatur Bjarnason hefur sagt
starfi sínu Iausu sem fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn-
ar i Vestmannaeyjum eftir sjö ára
setu. Að sögn stjórnarformanns
Vinnslustöðvarinnar, Geirs
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Olíufélagsins, er ástæða uppsagn-
arinnar af persónulegum ástæð-
um. Á þeim tíma hefur Sighvatur
m.a. verið útnefndur sem maður
ársins í viðskiptalífinu af tímarit-
inu Frjálsri verslun. Á þessum
tíma hafa skuldir Vinnslustöðvar-
innar lækkað úr liðlega 4 millj-
Sighvatur Bjarnason.
örðum króna í 2,3 milljarða
króna.
Við upphaf ferils Sighvats voru
fi'rirtækin Vinnslustöðin, Fiskiðj-
an og Lifrarsamlagið sameinuð
undir hatt Vinnslustöðvarinnar
og á seinni stigum sameinaðist
Meitillinn í Þorlákshöfn Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum. Ein-
hverjar viðræður hafa átt sér stað
um samstarf eða jafnvel samruna
Vinnslustöðvarinnar og Hrað-
frystihússins í Hnífsdal, og átti sú
sameining að eiga sér stað ef sam-
eining Ishúsfélags Isfirðinga og
Hraðfrystihússins gengi eftir.
Ekki mun öllum stjórnarmönnum
Vinnslustöðvarinnar hafa hugn-
ast allskostar sú þróun mála. Við-
ræður um sameiningu Hraðfrysti-
hússins og Ishúsfélags Isfirðinga
munu enn vera í gangi, ekki síst
eftir hremmingar í rekstri Ishús-
félagsins, sem m.a. hafa leitt til
uppsagnar fjölda starfsmanna.
Á síðasta rekstrarári, sem er
fiskveiðiárið, var hagnaður
Vinnslustöðvarinnar um 20 millj-
ónir króna, aðallega vegna sölu
eigna, en tap varð af reglulegri
starfsemi að upphæð 140 millj-
ónir króna, sem alls ekki verður
talið ásættanlegt og á þessu fisk-
veiðiári, þ.e. síðustu 6 mánuði,
hefur reksturinn ekki gengið vel
sem m.a. er rakið til Iélegrar
loðnuvertíðar. Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri, mun gegna starfi
framkvæmdastjóra um óákveðinn
tíma. - GG
Arás dæmds fíkniefnasala
Maður sem fyrir nokkrum árum
hlaut sjö ára dóm fyrir stórfelld-
an fíkniefnainnflutning, var sl.
miðvikudag úrskurðaður í gæslu-
varðhald fyrir alvarlegar líkams-
árásir. Við húsleit hjá mannin-
um, Steini Ármanni Stefánssyni,
í herbergi að vistheimilinu Akur-
hóli fundust ýmis vopn.
Steinn var handtekinn á vist-
heimilinu að kveldi 4. mars sl. í
kjölfar líkamsárásar á fostöðu-
manns vistheimilisins, en hon-
um mun hafa mislíkað reglu-
bundin leit í farangri hans. Réðst
maðurinn að forstöðumanninum
með vasahníf í hendi og sló ítrek-
að til hans. Þurfti að sauma tvö
spor í hornhimnu \4nstra auga
fórnarlambsins. Vitni ber að
hnífurinn hafi lent a.m.k. tvisvar
í úlpu forstöðumannsins.
Steinn var fluttur í fanga-
geymslu lögreglunnar að Hverf-
isgötu og þar réðist hann að
fangaverði og veitti honum þungt
högg með krepptum hnefa á
hægri vanga.
Steinn var í maí 1993 dæmdur
í 7 ára fangelsi og hafði áður
hlotið vægari dóma og nú síðast
var hann f maí 1998 dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi, þar sem m.a. var höfð
hliðsjón af andlegri vanheilsu
Steins. Ákæruvaldið benti á að
það yrði að ætla að þeir skap-
brestir sem tvær líkamsárásir á
einum sólarhring bæru með sér
tengist hans andlegu vanheilsu.
- FÞG
Sex skipverjar sitja enn inni
Tveimur skipverjum af Goðafossi var sleppt úr gæsluvarðhaldi í gær
og sitja þá sex inni af ellefu. Á föstudag var þremur skipverjum sleppt,
enda talið sannað að þeir væru saklausir af stórfelldri smygltilraun.
Lögreglan vill að sexmenningarnir sem enn eru í haldi verði dæmdir
í áframhaldandi gæsluvarðhald. Héraðsdómur mun taka afstöðu til
þess í dag.
Góðar gjafir til bamadeildar FSA
Barnadeild I-jórðungssjúkrahússins á Akureyri voru afhentar góðar
gjafir síðasta laugardag. Annars vegar hefur Myndbandahöllin við
Viðjulund gefið deildinni árskort sem ætti að koma bæði börnum og
foreldrum þeirra sem á deildinni þurfa að dvelja um Iengri eða
skemmri tíma vel. Hins vegar voru barnadeildinni afhentar liðlega 40
þúsund krónur, sem er afrakstur af jólatrésskemmtun sem fyrirtækin
Greifinn, Fosshótel KEA, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, og Nói-Sfr-
íus stóðu fyrir. - GG
Við afhendingu gjafanna til barnadeildar FSA. Aftan við rúmið standa Sigrún
Guðjónsdóttir deildarstjóri og Þorgeir Baldursson, sem heldur á dóttur sinni,
Steinunni Maríu, sem var inniliggjandi á deildinni. Við rúmgaflinn stendurJón Ein-
ar frá Myndbandahöllinni, fremst á rúminu situr ívar Sigurbjörnsson en uppi íþví
Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir, sem „átti“þetta rúm. Faðir hennar, Stefán, stendur
lengst til haegri en framan við rúmið stendur Sigurbjörn Sveinsson, veitingastjóri
á Greifanum, ásamt dóttur sinni Karenu. mynd: gg