Dagur - Tíminn Akureyri - 22.02.1997, Side 5
Jlagur-mmœm
Laugardagur 22. febrúar 1997 - 5
Bankarnir
Bankamir verði almenningseign
Mun ísienskur aimenningur eignast hlut í Landsbanka íslands.
Viðskiptaráðherra
segir stefnt að því að
allur almenningur
geti eignast hlut í
ríkisbönkunum,
þegar hlutafé í þeim
verður boðið út.
Umdeild frumvörp um
breytingar á rekstrar-
formi ríkisbankanna og
einkavæðingu þeirra voru
kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær.
Eins og fram kom í Degi-Tím-
anum í gær á að breyta Lands-
bankanum og Búnaðarbankan-
um í hlutafélög um næstu ára-
mót. Hlutaféð verður í eigu rík-
isins, en heimilt verður að auka
það og selja öðrum allt að 49
prósenta hlut af heildinni.
„Ég vil sjá nýtt fé koma inn í
þessa banka, en það verður að
standa þannig að sölu á því að
það verði dreifð almennings-
eign. Ef þessum 49% verður
skellt út strax, þá koma hákarl-
arnir og gleypa það,“ segir
Gunnlaugur Sigmundsson,
þingmaður Framsóknarflokks-
ins. Hann hefur gert alvarlegar
athugasemdir við þessi einka-
væðingaráform, eftir að forsæt-
isráðherra kynnti þau á ráð-
stefnu í vikunni. Gunnlaugur
segist hafa skilið forsætisráð-
herra þannig, að til stæði að
selja alla hlutafjáraukninguna í
bönkunum á einu bretti, um
leið og þeim verði breytt í
hlutafélög. Við það er hann
ósáttur. „Það verður að gera
þetta smám saman. Það verður
að byrja að leyfa starfsfólkinu
að kaupa og síðan verður þetta
að verða almenningseign," seg-
ir hann.
Finnur Ingólfsson, viðskipta-
ráðherra, segir ekkert um það í
frumvarpinu að það eigi að
selja 49 prósentin strax. Það sé
mat ríkisstjórnarinnar að allir
landsmenn eigi að hafa rétt til
að eignast hlut í bönkunum,
eins og fram kom í greinargerð
„Jafnframt ber að stefna að
dreifðri eignaraðild," segir við-
skiptaráðherra.
Hann vill ekki tjá sig frekar
um frumvörpin, þar sem þau
séu enn til skoðunar í ríkis-
stjórn og hafi ekki verið kynnt
þingflokkum stjórnarinnar.
Dagur-Tíminn hefur hins vegar
heimildir fyrir því að sam-
kvæmt þeim séu öllum starfs-
mönnum bankanna tryggð
sambærileg störf hjá hlutafélög-
unum, nema bankastjórum, að-
stoðarbankastjórum, staðgengl-
um og endurskoðendum.
Póstur og
sími líka?
Ummæli for-
sætisráðherra
um Póst og
síma á einka-
væðingarráð-
stefnunni hafa
einnig vakið
athygli, en
hann sagði að
þar kæmi auð-
vitað til einka-
væðing í náinni
framtíð.
Halldór
Blöndal,
samgönguráð-
herra, marg-
lýsti því hins
vegar yfir, þeg-
ar umræður
um hlutafé-
lagavæðingu
Pósts og síma
stóðu yfir að
það stæði ekki
til að einka-
væða fyrirtæk-
ið.
„Þar verði
eitt hlutabréf í
eigu ríkisins.
Það er vilji minn og ég horfi á
Póst og síma þannig til framtíð-
ar,“ sagði Halldór á Alþingi í
febrúar í fyrra.
Framsóknarmenn lögðu
einnig á það ofuráherslu að
tryggja að fyrirtækið yrði áfram
í eigu ríkisins og knúðu þess
vegna fram að aðeins yrði eitt
hlutabréf í því, sem ekki mætti
selja nema með sérstöku leyfi
Alþingis. Magnús Stefánsson,
Framsóknarflokki, sagði fyrir
ári síðan, að hann teldi að
þannig væri búið að tryggja
eignarhald ríkisins eins og hægt
væri.
-xi
Akureyri
Formaður skólanefndar er viss um að rétt sé að allir grunnskólar á
Akureyri verði hverfisskólar. Myndin var tekin á borgarafundi um
skólamál í síðustu viku. Mynd: GS
Skarpari línur
Skólanefnd Akureyrar
hélt vinnufund á
fimmtudagskvöld þar
sem rætt var hvort ein-
hverjar nýjar áherslur
hefðu komið upp eftir
blaðaskrif og fundi sem
haldnir hafa verið eftir þá
ákvörðun skólanefndar að
sameina Barnaskóla Akur-
eyrar og
Gagnfræða-
skóla Akur-
eyrar í einn
hverfis-
skóla,
Brekku-
skóla.
Jón Ingi Cæsarsson, for-
maður skólanefndar, segir
að Ijölmennur fundur sem
haldinn hafi verið í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju
hafi skerpt mjög línurnar
og þau rök sem þar voru
lögð fram hafi ekki breytt
hans sannfæringu um
ákvörðun skólanefndar um
að stefna að því að allir
grunnskólar á Akureyri
verði hverfisskólar, sé rétt.
Ákvörðun um safnskóla í
Árbæjarhverfi í Reykjavík
breyti þar engu um, aðstæð-
ur séu svo mismunandi eft-
ir sveitarfélögum.
Á fundi
skólanefnd-
ar mánu-
daginn 24.
febrúar nk.
mun skóla-
nefnd fjalla
endanlega
um málið að sinni. Málið er
svo til endanlegrar af-
greiðslu bæjarstjórnar Ak-
ureyrar þriðjudaginn 4.
mars nk. og Jón Ingi segist
ekki sjá neina linökra á því
að þar verði málið endan-
lega til lykta leitt. GG
Formaður
skólanefndar telur
ákvörðun um hverfis
skóla rétta.
Geislunarhætta
Farsímimi hættu-
legri en háspennan?
Rannsóknir hafa ekki
leitt neitt í Ijós
um skaðsemi af
útgeislun háspennu-
lína og spennistöðva,
segir Jón Ólafur
Skarphéðinsson
lífeðlisfræðingur.
Ef ég ætti að hafa áhyggjur
af útgeislun rafmagns-
tækja, þá held ég að það
væri helst af farsímanum, sem
menn nota svona nálægt höfð-
inu,“ sagði Jón Ólafur Skarp-
héðinsson lífeðlisfræðingur hjá
Lífeðlisfræðistofnun Háskólans í
viðtali við Dag-Tímann.
„Enn sem komið er hafa
menn ekki fundið nein óyggj-
andi rök fyrir hættu af þessu.
Engir menn hér á landi hafa
rannsakað þetta, en erlendis
þekki ég mann sem rannsakaði
kýr sem var beitt undir há-
spennulínum. Það kom ekkert
út úr því, þær voru hinar hress-
ustu. Þetta er vandskoðað. Þeg-
ar skoðuð er tíðni sjúkdóma í
kringum svona lagað, þá getur
svo fjöldamargt annað komið
inn í myndina, það getur reynst
erfitt að túlka niðurstöðurnar á
réttan hátt. En vissulega eru
menn mikið að pæla í þessu,“
sagði Jón Ólafur.
Jón Ólafur sagði að erlendis
væri rafmagnsgeislun könnuð
af vísindamönnum, en lítið á
því að byggja, alla vega enn
sem komið væri. í bandarískum
heimildarmyndaflokkum sem
íslendingar hafa séð á Disco-
very-rásinni að undanförnu
hefur verið lát-
ið að því liggja
að rafmagns-
spennistöðvar
og háspennu-
línur kunni að
vera hættuleg-
ar heilsu fólks,
ekki síst barna.
Víða í Reykjavík eru slíkar
stöðvar við barnaleikvelli, jafn-
vel innan þeirra.
„Menn ættu að líta í kringum
sig og þá kemur ýmislegt í ljós
sem veldur útgeislun, til dæmis
brauðristin heima hjá þér,
hraðsuðuketillinn, tölvan og
sjónvarpið. Umræðan um tölvur
og sjónvarp hefur verið hávær,
en ekkert hefur fundist svo
óyggjandi só um hættuna. Þó
skyldi maður aldrei útiloka
neitt um framtxðina, og aldrei
skyldi maður fullyrða að ein-
staka manneskja geti ekki verið
viðkvæm fyrir geisluninm.
Kannski er þetta svipað og am-
algamið í tönn-
xmum okkar
þar sem sýni-
legt er að ein-
staka mann-
eskja er við-
kvæm fyrir efn-
inu, enda þótt
flestir þoli
það,“ sagði Jón Ólafxxr.
„Sjálfur lék ég mér í kringum
og ofan á svona spennistöð á
minni bernskutíð, en það sann-
ar í sjálfu sér ekki nokkurn
skapaðan hlut,“ sagði Jón Ólaf-
ur Skarphéðinsson -JBP
Umboðsmenn - Sölumenn
óskast um landið allt til léttra starfa fyrir
liknarf élag við vinnu að miklu þjóðþrifamáli.
Ef þú ert heiðarleg(ur) og hefur tíma aflögu þá
sendu okkur línu strax mað örhtlum upplýsing-
um um sjálfa(n) þig, s.s. nafni, heimihsfangi,
síma og öðru er máh skiptir.
Poarvamir gegn f íkniefnum,
box 7270,127 Reykjavík.
Kannski er þetta
svipað og með
amalgamið í
tönnunum okkar.