Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 2
AUGLYSINGASTOFA KRlSTINAR HF VBHRARSPORHÐ! Flugpúðinn hefur farið í loftköstum um skíðalönd Evrópu að undanförnu og hvarvetna valdið byltingu í sleðabrekkunum. NlDSTEREfflR EN LUNGAMJtFKIIR Á honum eru engar skarpar brúnir eða fletir, þannig að slysahætta í sleða- brekkum verður hverfandi lítil. LÆTUR MJÖGVEL AÐ STJÓRN Neðan áhonum eru upphleyptargúmmímottursem komaívegfyrirað hann snúist um sjálfan sig. Þú breytir um stefnu með því að færa til líkamsþungann á „púðanum” eða notar fæturna til stýringar. Þö BLÆST HAffl URPÁ BREKKUBRÚN Loftlaus Flugpúðinn tekursama og ekkert pláss, hvorki í bílnum né geymslunni. SNJÓR,GRAS EÐAWN! Flugpúðinn hefur þann eiginleika að geta runnið í hvaða snjó sem er og þú getur líka rennt þér á honum niður blauta grasivaxna brekku og flotið á honum í sundlauginni. PUJGPOÐIM eæst í tveimur sterðum PYRIR BÖRN OG PTJLLORÐNA Aukum öryggið í sleðabrekkunum. Góða skemmtun. Reykjavík: Reykjavík: Reykjavík: Borgarnes: Patreksfjörður ísafjörður: Hvammstangi: Sauðárkrókur: Siglufjörður: Húsavík: ------------UTSOIUSTAÐIR: - Hilda hf., Borgartúni 22, Egilsstaðir: Bikarinn Skólavörðustíg 14, Hagkaup Skeifunni 15, Kaupfélag Borgfirðinga Seyðisfjörður: Neskaupstaður: Eskifjörður: Kaupfélag V-Barðstrendinga, Fáskrúðsfjörður: Sporthlaðan h.f., Kaupfélag Húnvetninga VerzluninTindastóll, Verzlunin ögn, Víkursport s.f.. Hornaf. Höfn: Selfoss: Keflavík: Vestmannaeyjar: Verzlunin-Skógar, Verzlunin Túngata 15, Kaupfélagið Fram, Verzlun ElísarGuðnasonar, Verzlunin Þór h.f., Verzlun Björns Axelssonar, Verzlunin Sportbær, Sportportið, Gunnar Olafsson & Co., H.f., DV. — HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982. Ekki neyðarastand í Póllandi en gíf urlegur skortur: Póllandssöfn- halda áfram —talið að ástandið fari versnandi næstu mánuði Nú þegar hafa verið send hátt á ann- að hundrað tonn af matvælum frá ís- landi til Póllands á vegum Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, Alþýðusam- bands íslands og kaþólsku kirkjunnar, að því er kom fram á biaðamannafundi þessara aðila í gær. Þrir menn, séra Bragi Friðriksson, Jóhannes Siggeirsson og Ögmundur Jónasson, voru sendir á vegum Póllandssöfnunarinnar til að fylgja eft- ir fyrstu sendingunni til landsins og til að kynna sér þörfina fyrir aðstoð og hvernig dreifing hennar fer fram. Þeim bar saman um að ekki væri ástæða til að óttast að aðstoðin bærist ekki í rétt- ar hendur. Væri mjög strangt eftirlit með því af hálfu pólska samkirkju- ráðsins að aðstoðin kæmist i hendur þeirra sem mest væru þurfandi. Sá farmur sem fulltrúar söfnunarað- ila fylgdu til Lublin í Póllandi fór að mestu á munaðarleysingjahæli og spitala en að einhverjum hluta til ein- staklinga. Töldu þeir að stjórnvöldum og öðrum aðilum væri ljóst að of mikið væri í húfi að aðstoð frá Vesturlöndum héldi áfram að berast til að nokkur undanbrögð væru á að hjálpargögn bærust þeim sem þurfandi væru. „Það er ekki rétt lýsing á ástandinu i Póllandi að segja að þar sé neyðar- ástand,” sagði Ögmundur Jónasson, „heldur er þar gífurlegur skortur. Fólk er vel klætt og það virðist ekki líða sér- staka nauð en þáð virðast engar vörur til i verzlunum. Eina matvaran sem eitt- hvað virðist til af er grænmeti og ávextir en kjötvara er fáséð.” Hann benti þó á að líklega hefðu þeir ekki séð þájsem.mestan skortinn líða, þ.e. gamalt fólk og mæður með ungbörn sem ekki hafa aðstöðu til að standa í biðröðum til að nota skömmtunarseðlana. Á fundinum fom fram að þegar hefur safnazt 5,1 milljón til hjálpar- starfsins í Póllandi. Fyrir það fé mætti að líkingum senda hátt í 3 hundruð tonn af matvælum og hefði meirihluti fjárins þegar verið notaður. Á það var lögð sérstök áherzla að söfnunin og hjálparstarfið myndi halda áfram og að ástandið í Póllaridi myndi að líkindum fara versnandi næstu mánuði. Mikil þörf væri fyrir matvæli, lyf og hrein- lætisvörur en síður fyrir fatnað. Söfnunaraðilar lýstu ánægju sinni með þátttöku í söfnunni sem þeir sögðu að hefði skilað meiri fjármunum en dæmi væru til um varðandi slíkar safnanir, auk þess sem framlag íslend- inga til Póllandssöfnunarinnar væri hlutfallslega meira en nokkurrar ann- arrar þjóðar. Vonuðust þeir til að landsmenn sýndu þessu máli sama áhuga áfram. Hægt er að leggja fé inn á gíróreikning söfnunarinnar, nr. 20005—0, í öllum bönkum, sparisjóð- um og pósthúsum. -ÖEF Furðuský yf ir Seyðisf irði: Menn bjuggust við heimsendi Seyðfirðingar fylgdust með furðuskýi í u.þ.b. hálftíma í gær- kvöldi. Skýið var dimmrautt og ærinn fláki og á hreyfingu yfir fjöllunum. Menn voru ákaflega hissa á fyrir- bærinu og höfðu enga skýringu á því. Einhverjir töldu líklegt að nú væri heimsendir kominn en honum hefur verið spáð stíft að undanförnu. Svo mun þó ekki hafa verið þvi Seyð- firðingar lifa enn. Ekki er vitað til þess að leitað hafi verið til sérfræðinga um skýringar á fyrirbærinu. -JG/Seyðisfirði. Jarðhitadeiid Orkustofnunar falið að annast framkvæmdir við frægasta goshver íslendinga: Stefnan að Geysir gjósi í f ramtíðinni „Geysisnefnd vill að við sjáum um framkvæmdina, um það sem gert verð- ur þarna. En það er engin ákvörðun komin um hvað verður gert eða hvort eitthvað verður gert,” sagði Valgarður Stefánsson eðlisfræðingur við jarðhita- deild Orkustofnunar. Hópur visindamanna frá jarðhita- deild Orkustofnunar fór upp að Geysi föstudag í síðustu viku til að kanna goshverinn fræga og þær breytingar sem gerðar voru á gosskálinni sl. haust. Settu þeir sápu í Geysi og fengu hann til að gjósa „skínandi gosi”, eins ogl Þórir Sigurðsson í Haukadal orðaði! það. Var það gos jafnvel enn meira en 'gos DV - manna fyrir nokkru. Aðspurður sagði Valgarður Stefánsson að hann ætti frekar von á því að stefnan yrði sú að láta Geysi gjósa í framtiðinni. Sér sýndist sem menn væru almennt á þeirri skoðun. „Margar hugmyndir eru í gangi um hvað gera eigi. Við höfum ekki komizt að neinni niðurstöðu ennþá. En það DV-bíó Sverðfimi kvennabósinn heitir myndin j sem sýnd verður í DV-biói á morgun klukkan 13 i Regnboganum. i verður á næstu vikum,” sagði Valgarð- ur. Þórir Sigurðsson sagði að Geysir skvetti nú úr sér upp í tíu til fimmtán metra hæð einu sinni til tvisvar á sólar- hring. Hefði hann gert það síðan raufin fræga vargerðsl. haust. Hin frægu stórgos, sem gert hafa nafn Geysis að alþjóðaheiti, koma þó ekki nema með aðstoð manna. Setja þarf nefnilega tuttugu til þrjátíu kiló af sápu í hverinn en þá koma líka gos sem vel eru peninganna virði. -KMU. FöstuvakaíHafn- arfjarðarkirkju Sunnudaginn 14. marz verður haldin föstuvaka í Hafnarfjarðarkirkju og hefsthún kl. 20.30. öldutúnsskólakórinn syngur undir stjórn Egils Friðleifssonar, Gunnar Gunnarson flautuleikari leikur einleik á flautu og kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn organista kirkjunnar, Páls Kr. Pálssonar. Ræðumaður: Kristján Búason ' dósent. Megi sem flestir eiga góða stund í Hafnarfjarðarkirkju á föstuvöku. Safnaðarsljórn og sóknarprestur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.