Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR18. ÁGUST1982. Hve lengi lifir stjómin? Menn lifa bara lengi afgóöum verkum” spjallað við stjórnmálamenn um stöðuna „Menn lifa bara lengi af góöum verkum,” sagöi alþingismaöur í gær þegar DV spuröist fyrir meðal nokkurra þingmanna hvort þeir teldu stjórnina eiga langlífi fyrir höndum. Forystumenn stjómarinnar voru yfirleitt ekki til viðtals um málið enda önnum kafnir viö aö ráða ráö- um sínum og reyna að fjölga lif- dögum stjórnarinnar sem virtist geta sprungiö á hverri stundu. Framsóknarmenn héldu fund í Alþingishúsinu og í Stjómarráöinu þinguöu Svavar, Steingrimur og Gunnar Thor. „Þaö leynast margir hættulegir neistar innan þingflokk- anna sem geta blossaö upp hvenær sem er,” sagöi einn framsóknar- maður sem var á vettvangi þegar blaöamenn DV bragöu sér niður í þing og Þórshamar í gær. Stjórnarandstaðan virtist hins vegar bíða róleg og búast við koll- siglingu stjórnarinnar á hverri stundu og vera reiöubúin aö taka - við stýri og sigla stolt stórsjónum á. RÉn AÐ ÞINGIÐ RÆÐI TILLÖGUR RÍKISSTJÓRNAR — segir Magnús H. Magnússon, varaformaður Alþýðuflokks Magnús H. Magnússon alþingis- maður. „Eg tel aö varla séu meira en helmingslíkur á aö stjórnin sitji út allt kjörtímabijiö,” sagöi Magnús H. Magnússon varaformaöur Alþýöu- flokksins. „Þeir eru að bræða sig saman núna þannig að næstu þrir mánuöir ættu aö vera nokkuö trygg- ir. Þeir komast aö einhverju sam- komulagi núna en eftir áramótin veröur þetta öllu verra, bæöi vegna þess aö þaö hallar undan fæti í efna- hagsmálum og einnig veröur erfið- ara að ráða viö þessi mál eftir aö þing er komiö saman. Þeir ættu því aö komast yfir þennan hjalla en sá næsti veröur erfiöari. ” „Mér finnst nú ekki trúlegt aö rikisstjómin fallist á þaö aö þing komi saman fyrr en áætlað er,” sagöi Magnús er hann var inntur álits á þeirri hugmynd. „Ég býst viö aö hún vilji hafa friö fyrir þinginu sem lengst og þaö væri komiö í mikiö óefni fyrir stjórninni ef hún féllist á þaö. Viö alþýðuflokksmenn erum þeirrar skoöunar aö þingiö ætti aö koma saman sem fyrst enda ætti al- þingi aö sitja frekar lengur en skemur á svona erfiðleikatímum. Þaö væri rétt aö þingið kæmi saman til aö ræða þær tillögur sem ríkis- stjómin kemur til meö aö bera upp. En ég tel aö rikisstjómin vilji frekar nota bráðabirgðaheimildina, enda liggur það ekki á boröinu aö stjórnin hafi meirihluta á alþingi,” sagöi Magnús H. Magnússon. -ÓEF. ff „Ríkisstjórninni tekst ekki að sitja út kjörtímabilið” — segir Eggert Haukdal alþingismaður ,JÉg tel aö ríkisstjóminni takist ekki að sitja út kjörtímabilið. Stjórn- ir lifa lengi á verkum sínum ef þau eru góð en styttra ef þau eru ekki góö,” sagöi Eggert Haukdal al- þingismaður þegar DV spurði hann um lífdaga ríkisstjórnarinnar og hugsanlegar efnahagsráöstafanir. „Líklega mun nást samkomulag um einhverjar efnahagsráöstafanir en spumingin er hvort þær séu nægi- lega haldmiklar því búið er aö draga svo lengi aö taka ákvaröannir. Ekki er fráleitt aö kalla þing saman en fyrst er aö sjá hverjar ráöstafanir ríkisstjómarinnar veröa,” sagöi Eggert Haukdal aö lokum. -gb. Eggert Haukdal alþingismaður. Geir Hallgrímsson alþingismaöur. „Sjálf- sagtað kalla þing saman — segir Geir Hallgríms- son formaður Sjálf- stæðisflokksins „Eg tel sjálfsagt að gera kröfu um þaö aö þing veröi kallað saman sem fyrst og fjalli um ráöagerðir ríkis- stjórnarinnar, sérstaklega ef um setningu bráöabirgöalaga er að ræða. En líkur benda til að stuön- ingur viö slík bráöabirgöalög sé ekki tryggöur á alþingi,” sagöi Geir Hall- grímsson formaöur Sjálfstæöis- flokksins þegar DV spuröi hann um stööuna ístjómmálunum. „Tekst ríkisstjórninni að sitja út kjörtímabilið?” „Eg vil ekki spá um þaö sérstak- lega en ég tel nauðsynlegt aö stjómarstefnunni veröi breytt sem allra fyrst. Til þess aö svo megi veröa tel ég nauðsynlegt aö kosn- ingar fari fram og umboö þing- manna veröi endumýjuð. Ljóst er aö þeir sem styöja núverandi stjóm eru þess ekki umkomnir aö ráöa fram úr vandanum.” _gb Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Hvar er friðarvilji PLO? Meðan Iaunþegar bíöa frétta af yfirvofandi vcrðbótaskerðingu á laun, sem Þjóöviljinn nefnir „kjarajöfnunaraðgerðir”, birtir blaöið leiðara um ísrael og PLO. Ástandiö í Líbanon virðist standa nær hjarta Þjóðviljaritstjóra en kjör íslensks verkafólks. Þjóðviljinn slær upp áskoran sjö Reykvíkinga til ríkisstjórnarinnar vegna „árásarstriös” ísraelshers í Libanon. Tekur Þjóðvilinn eindregið undur meö sjömenningunum og vill iáta fordæma israelsstjóm vegna átakanna í Líbanon. Ekki er vafi á að sjömenningunum gengur ekki nema gott eitt til þegar þeir vilja að rikisstjóm okkar reyni að hafa áhrif í þá átt aö friður megi takast i Líbanon. En þeir einfalda málin hins vegar svo mikið að það nálgast fölsun. i fyrsta lagi ættu menn að minnast þess aö skæruliðar PLO hafa ekkert formlegt umboð frá landflótta Palestínumönnum um að koma fram í þeirra nafni. Engar kosningar hafa fariö fram sem færir skæruliðunum þennan rétt. í öðra lagi má minna á, að Hussein Jórdaníukóngur rak skæruliða PLO burt frá Jórdaníu á sínum tima þar sem þeir vora hættulegir öryggi landsins og kóngur sá ekki betur en þeir stefndu að valdatöku í rikinu. Þá fluttu PLO menn sig til Libanon og hrelðraöu um sig í Beirút án þess að stjómvöld fengju rönd við reist enda landið allt í sárum vegna borgara- styrjaldarinnar sem þar hefur geis- að árum saman og geisar enn. Stjómin í Líbanon er siður en svo hrifin af veru PLO í Beirút. i þriðja lagi skyidu menn ekki gleyma því aö PLO samtökin viður- kenna ekki ísraelsríki. Þau viður- kenna ekki rétt Gyðinga til að byggja tsrael. Þvert á móti hefur það verið yfirlýst stefna PLO að reka israels- menn á brott, hrekja þá út í hafs- auga. Nú er því haldið fram að ýmsir forystumenn PLO hafi „gefið í skyn” að þeir vilji viðurkenna isralesriki. En sú viðurkenning er ókomin og framkoma PLO ekki með þeim hætti að von sé á slíkri viðurkenningu í bráð. Arabaríkin vilja ekki skæruliða PLO i ltíndum sínum. Nokkur þeirra hafa að vísu boðist til að taka við þeim en aðeins um tíma. Fram til þessa hafa Arabaríkin látið nægja að dæla fé í PLO svo samtökin grípi ekki til hermdaraðgerða í rikjum Araba. Vissulega era árásir tsraela á. Beirút mannskæðar. Þar falla konur og böra í hópum. Eins og venjulega gjalda óbreyttir borgarar þess mest þegar vopnuð átök brjótast út. Palestínumenn eiga hins vegar drjúga sök á þjáningum borgarbúa. Skæruliðarair hreiöra um sig vlð skóla, sjúkrabús og baraaheimili og svara þaðan árásum tsraelshers. Með þessu móti stofna þeir lifi óbreyttra borgara í hættu með skeifi- legum afleiðingum. Þegar Israelar hófu umsátrið um vesturhluta Beirút fyrir mörgum vikum kváðust skæruliðar PLO ætla að verða við kröfunum um að flytja brott. Fljótlega féllust nokkur Arabaríki á að veita þeim hæli tU bráðabirgða. En skæruliðamir hafa ekki hreyft sig. Þeir vita sem er að tíminn vinnur gegn Israelsstjóm. Umheimurinn kýs að líta á það sem tsraelsher aðhefst en ekki hvers vegna gripið er tU svo harkalegra ráðstafana. tsraelsmenn hafa lýst sig reiðu- búna tU að hverfa brott með sinn her frá Líbanon ef PLO gerír hið sama. Að þessu leyti hafa ísraelsmenn faU- ist á samþykkt ályktanir AUsherjar- þings Sameinuöu þjóðanna og öryggisráðsins. En PLO lýsir því yfir, að það sé sjálfsagt að yfirgefa Beirut, án þess að meina nokkuð með því. EinhUða fordæming á ríkisstjóra Begins orkar tvimæUs svo ekki sé meira sagt. ÖU vUjum við að blóðúts- heUingum sé hætt en þá verða báðir aðflar að sýna það og sanna að þeir vUji frið. Það er sjálfsagt að krefjast þess að ísraelstnenn sýni friðarvUja í raun en PLO verður að gera hið sama. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.