Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 19
18 DV. MIÐVIKUDAGUR18. ÁGÚST1982. dv.m: 1AGUR18. ÁGÚST1982. íþróttir íþróttir íþróttir 19 fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Jónas hættir með Niarðvík — og ætlar ekki að leika körff ubolta framar Hinn frábæri körfuknattleiksmaður úr Njarðvík, Jónas Jóbannesson, hefur tilkynnt félögum sinum í Njarðvikur- liðinu að hann sé hættur að leika körfu- knattleik bæði með þeim og islenzka landsliðinu. Hann hefur ekki mætt á æfingar hjá Njarðvíkurliðinu það sem af er en Njarðvíkingarnir eru samt að gera sér vonir um að honum snúist hugur og aö hann byr ji aftur síðar í vetur. Njarðvíkingar eru að fá nýjan bandarískan leikmann. Alex Gilbert frá Indiana Stade í stað Danny Shouse. Er það miðherji 2,05 metrar á hæð og Jónas Jóhannesson — 26 ára gamall og hættur í körfuboltanum. þekktur körfuknattleiksmaður frá því aö hann komst í úrslit í bandarísku háskólakeppninni meö mörgum frægum köppum hjá Indiana Stade hér umárið. Þá hafa Njarðvíkingar fengið nýjan íslenzkan leikmann. Er það Eyjólfur Guðlaugsson sem lék með Grindavík í 1. deildinni í fyrra og var einn af máttarstólpum liðsins þar. Þá hafa Grindvíkingar misst landsliösmanninn sinn, Hrein Þorkelsson, yfir til IR í úr- valsdeildinni svo útlitiö hjá þeim í 1. deildinni í vetur er ekki glæsilegt. -klp- Mörg stórmót ígolfinu um næstu helgi Þaö er heldur betur nóg um að vera hjá golfáhugamönnum okkar um næstu helgi. Islandsmótinu er rétt nýlokið eins og kunnugt er og um helgina eru ein fimm opin stórmót á boðstólum fyrir þá. Á Jaðarsvellinum á Akureyri verður minningarmótið um Ingimund Arnason. Það er 36 holu keppni sem verður bæði á laugardag og sunnudag. Þar verða að vanda glæsileg verðlaun í boði frá KEA og Johnny Walker- umboðinu á lslandi, Vang h/f. Á Nesvellinum á Seltjamarnesi verður Coca Cola-keppnin um helgina. Þaö er einnig 36 holu keppni og mörg verðlaun og aukaverðlaun í boði þar. Keppnin er fyrir kylfinga með forgjöf 0 til 23 og aldurstakmark er 16 ár nema. viðkomandi sé með minna en 10 í for- gjöf. Skráning í mótið er í síma 17930. Selfyssingar verða með Hitachi- mótiö hjá sér á Alviðruvelli á laugar- daginn. Þaö er 18 holu mót og ræst út á milli kl. 9 og 13. Þar verða vörur frá Hitaehi á boðstólum fyrir verðlauna- hafa. Þá verður Fannarsmótiö um helgina á Grafarholtsvelli en þaö mót er eingöngu fyrir konur. Þá má ekki gleyma „Icelandic Masters” sem er holukeppni á milli okkar beztu kylfinga á Grafarholtsvellinum um helgina. Af því móti ber John Nolan golfkennari allan veg og vanda og þar verður sjálfsagt bryddað upp á ýmsu nýjueinsogofthjáhonum. -klp- — með 1:0 sigri yf ir Vestmannaeyingum í 1. deildinni f gærkvöldi — titillinn þó enn ekki í húsi hjá þeim Ásgeir Sigurvinsson er ánægður hjá nýja f élaginu í Vestur-Þýzkalandi. „Okkur tókst að útfæra það sem þjálfarinn okkar setti okkur fyrir. Hann sagði okkur að reyna að ná yfirhöndinni, síðan að gefa eftir og leggja áherzlu á að gæta Lása og Kára. Þetta tókst okkur, en erfitt var það” sagði Ómar Torfason fyrirliði Vikings eftir 1:0 sigur Vikinga yfir Vestmann- eyingum í hinni hörðu keppni á toppn- um i 1. deild íslandsmótsins í gær- kvöldi. „Þetta var mikilvægt skref fyrir okkur að sigri í mótinu en það er langt því frá að titillinn sé okkar.” Eftir þennan sigur er staða Víking- anna óneitanlega glæsileg. Þeir eru komnir meö þriggja stiga forskot á KR og fjögur og fimm stig á flest hin liðin. Titillinn er samt ekki kominn í hús eins og Omar benti réttilega á. Sigur Víkinganna í leiknum í gær- kvöldi hékk á bláþræði. Hann var meö minnsta móti — aðeins 1:0 og í síðari hálfleiknum voru þeir ljónheppnir að fá ekki á sig eitt mark eða jafnvel fleiri. Vel útfærður varnarleikur, frá- bær markvarzla ögmundar Kristins- sonar, og jú svolítil óheppni og klaufa- skapur hjá Vestmannaeyingum áttu sinn þátt í því aö Víkingar fengu þarna bæöi stigin. Vestmannaeyingar misnotuöu m.a. vítaspyrnu sem réttilega var dæmd á bakhrindingu Omars Torfasonar á Sigurlás Þorleifsson í fyrri hálfleikn- um. öm Oskarsson tók vítið og ætlaði sér sýnilega að sprengja bæði boltann og netið því hann hugsaöi meira um að sparka fast en að hitta markiö. Boltinn small í þverslánni og þaðan langt út á vöU. Víkingamir vom betri aðilinn í fyrri hálfleik undan vindinum og þá skoruðu þeir sitt eina mark. Það kom á 15. mínútu eftir hornspymu sem Stefán HaUdórsson tók. Heimir Karlsson var, eins og svo oft áður í sumar á réttum stað í vítateignum hjá andstæðingnum, og hann stökk þar hærra en alUr aðrir og skoraði markið meö laglegum skaUa. Eyjaskeggjar náðu oft upp skemmti- legum samleik í fyrri hálfleiknum — fengu líka oft gott pláss á miðjunni — en færin sem þeir fengu vom ekki mörg. Það bezta — fyrir utan vítið — var þegar Sigurlás komst upp að marki og gaf fyrir á bróður sinn Kára, sem var óvaldaður, en ögmund- ur sýndi þá frábæra markvörzlu og náði fyrirgjöfinni. I siöari hálfleiknum hafði hann mikið „Hér eru allt aðrar að- stæður en í Miinchen” — segir Ásgeir Sigurvinsson, sem er ánægður hjá Stuttgart „Þessa dagana erum við að búa okkur undir fyrsta leik okkar i deUd- inni en hann verður næsta föstudag á heimaveUi Dortmund,” sagði Ásgeir Sigurvinsson i spjaUi við DV en hann er um þessar mundir á fullu við æfingar í Stuttgart. „Æfingarnar hófust 13. júlí. Ég kom • *• • Margir gamlir knattspyrnukappar voru meðai áhorfenda að úrslitakeppninni í 5. flokki í Keflavík um helgina. Hér má sjá þrjá þeirra, hressa í bragði, Gissur Gissur- arson (Víkingi), Jón Ásgeirsson (Þrótti) og Hörð Felixson (KR). Þeir eiga allir stráka í KR-liðinu sem keppti á mótinu og skoruðu t.d. synir Harðar og Jóns mörkin í leik KR-strákanna við Stjörnuna um 3. sætið. n,r DV-mynd emm. til þeirra meiddur og var settur í tveggja vikna séræfingar tU að styrkja nárann. Við höfum spUað nokkra leiki og vel tekizt tU. Ég hef þó verið nokkuö slappur eftir á og þurft hvUd í einn eða tvo daga. Við höfum spUað nokkra æfingaleiki og þeir hafa gengið nokkuð vel. Við unnum tvo leiki gegn franska Uöinu Strasbourg, þann fyrri 1—0 og þann seinni 2—0. Síðan unnum við Muhlhaus 2—1. Meðan við vorum í æfingabúðum í HM íkörfuknattleik Bandaríkin, Sovétríkin, Júgóslavía, Kanada og Spánn eru komin í úrsUtin í heimsmeistarakeppninni í körfuknatt- leik, sem nú stendur yfir í Koiombíu. Gestgjafamir fara beint i úrsUtin og miklar likur em á að Ástralia vinni sér þar einnig sæti. Urslit í gær urðu þau að Kanada vann sigur á Tékkóslóvakíu 104—99 og tryggði sér þar með úrslitasæti. Bandaríkin sigmðu Panama 100—79 og Sovétríkin sigruðu Ástralíu 103—69. ÚrsUtakeppnin hefst á fimmtudag. -hsím. Schwarzwald lékum við nokkra minni háttar leiki en þar vorum við átta daga. Síðasta laugardagskvöld spiluöum við svo kveðjuleik fyrir Hansa Miiller við Inter Mílanó en töpuðum honum 2— 1 . Ég hef verið nokkuð hræddur við þessi meiösli og tek þaö bara rólega að læknisráöi nú eftir leikinn gegn Inter Mílanó, hætti ekki á neitt fyrir leikinn við Dortmund. Mér hefur verið tekið sérlega vel hér í Stuttgart. Félagarnir em mjög al- mennilegir og skemmtilegir. Ég er ánægður yfir því aö vera kominn hingaö. Hér em allt aðrar aðstæður en íMúnchen.” -gb. að gera og varði þá hvað eftir annaö meistaralega vel. Vikingarnir tóku sóknarspretti inn á milli og gerðu þá oft usla enda hættu Eyjaskeggjar sér oft helzt til of framarlega í ákafanum við að skora. Komst Helgi Heigason t.d. í gott færi en PáU Pálmason varði þá í hom og Heimir Karlsson komst einn upp að marki en PáU varði þá aftur í þetta sinn með góðu úthlaupi. Þeir Ögmundur Kristinsson, Stefán HaUdórsson og Jóhannes Bárðarson vom beztu menn VUdngs í þessum leik. Helgi Helgason var einnig góður og Heimir Karlsson var nú mun frískari en í síðustu leikjum. Hjá IBV var Omar Jóhannsson lang- beztur — og munar miklu fyrir Eyja- skeggja að fá hann aftur. Þá gerði Sveinn Sveinsson margt laglegt eins og venjulega og þeir bræður Kári og Sigurlás vom hættulegir, þegar þeir sluppu úr umsjá Jóhannesar Bárðar- sonar & c/o en það var ekki oft. Dómari leiksins var Guðmundur Haraldsson og var lítið út á hans störf að setja frekar en fyrri daginn. -klp- Staðan Staðan í 1. deildinni eftir leikinn í gærkvöldi. Víkingur—Vestmannaeyjar 1—0 Víkingur 14 6 7 1 22—15 19 KR 14 4 8 2 11—10 16 Vestm.eyj. 14 6 3 5 16—13 15 Valur 15 5 4 6 16—14 14 Akranes 14 5 4 5 16—16 14 tsafjörður 15 5 4 6 22-25 14 Breiðablik 15 5 4 6 13—17 14 KA 15 4 5 6 14-16 13 Keflavík 14 5 3 6 13—17 13 Fram 14 3 6 5 14—15 12 Markahæstu menn: Heimir Karlsson, Víkingi 10 Sigurður Grétarsson, Breiðabliki 6 Gunnar Pétursson, Isafirði 6 Næstuleikir: Akranes—KR á fimmtudag, Vest- mannaeyjar—KA og ísafjörður— Akranes á laugardag. Keflavík—Fram og Víkingur—Valur á mánudag. Nýtt heimsmet í tugþrautinni — Jiirgen Hingsen hlaut 8723 stig í annað sinn á þessu keppnistimabili hefur verið sett nýtt heimsmet í tug- þraut. Hinn 24ra ára Vestur-Þjóð- verji , Jiirgen Hingsen, setti nýtt heimsmet um helgina í Ulm í V-Þýzka- landi. Hlaut 8723 stig eða 16 stigum meira en Englendingurinn Daley Thompson hlaut, þegar hann setti heimsmet í mai í Austurriki. Fyrir árangur Thompson, ólympíumeistar- ans frá Moskvu 1980, átti Vestur-Þjóð- verjinn Guido Kratschmer metið, hann hlaut 8649 stig rétt fyrir leikana i Moskvu. Árangur Jiirgen Hingsen á þýzka meistaramótinu um helgina var þannig í einstökum greinum. 100 m hlaup 10,74 sek. Langstökk 7,85 m. Kúluvarp 16,00 m. Hástökk 2,15 m og 400 m hlaup 47,65 sek. Þetta var árangurinn fyrri daginn en þann síðari hljóp Hingsen 110 m grindahlaup á varð að flvia í Kópavogi! fékk ekki inní með úrslitaleik í deildarkeppni á grasinu í Laugardalnum „Okkur þykir það ansi hart að eista félagið í Reykjavík, Ármann, skuli þurfa að flýja í annað byggðariag með mikilvægan úrslita- leik í deildarkeppni — en svona er það nú samt.” Þetta sagði Gunnar Guðjónsson, formaður knattspyrnu- deildar Ármanns, í viðtali við DV í gærkvöldi. Þá höfðum við frétt að Ármenningar hefðu fengið neitun hjá Baldri Jónssyni vallarstjóra um að leika einn af úrslitaleikjum sinum í 4. deildinni gegn Stjörnunni í dag á einhverjum grasvellinum í Laugar- dai og orðið að fara með leikinn suður í Kópavog. „Við vorum búnir að fá vilyrði fyrir Laugardalnum hjá vallar- stjóra, höfðum leikið tvo síðustu leiki okkar þar og var annar leikurinn gegn Þór Þorlákshöfn í úrslita- keppninni i 4. deild,” sagði Gunnar. I fyrrakvöld fréttu Ármenningar svo af því að þeir fengju ekki að leika í Laugardainum. Þar væri þegar búið að setja á bikarúrslitaleik í 2. flokki á milli Fram og Vais. Var þeim tjáð að þeir gætu fengið malar- völlinn á Melunum í staðinn. Vísaði vallarstjóri á mótanefnd og móta- nefnd aftur á Baldur en útkoman varð loks sú að Kópavogsbúar hlupu undir bagga með Reykjavíkurliðinu og lánuðu þeim grasvöllinn sinn. Kópavogsbúar hjálpa einnig til við úrslitakeppnina í íslandsmótinu um aðra helgi. Þá fer keppnin i 2. flokki þar fram en ekki einn einasti flokkur í úrslitum islandsmótsins i ár fékk inni í Reykjavík. Þaðan koma þó flest liðin sem leika i úr- slitum islandsmótsins í yngri flokkunum. -klp- 14,64 sek. Kastaði kringlu 44,92 m. Stökk 4,60 m í stangarstökki. Kastaði spjóti 63,10 m og hljóp 1500 m á 4:15,13 min. Stórkostlegur árangur. -hsím. Brasilía með HMíknatt- spymu 1986? „Ef Koiombia treystir sér ekki til að halda heimsmeistara- keppnina i knattspyrnu 1986 verður keppnin háð i Brasilíu,” sagði TeofUo Salinas, formaður knattspyrnusambands Suður- Ameriku i Lima í gær. Kolombía á enn eftir að staðfesta að HM verði þar en langt er síðan ákveðið var af FIFA að keppnin 1986 yrði í Kolombíu. MikU andstaða er þar i sambandi við mikinn kostnað af HM og Kolombiumenn virðast varla hafa efni á þvi að halda keppn- ina. Knattspymusamband Suður- Ameríku ákveður keppnisstað ef Kolombia hættir við. Þess má geta að Bandaríkin hafa óskað eftir að fá að halda keppnina 1986 en Salinas sagði að menn væru á því að BrasUia standi því næst. Fundur verður haldinn 27.-28. ágúst næstkomandi hjá suður- ameríska sambandinu og keppnisland ákveðið. hsim. B0UM til SNYRTILEG FÉLAGSSKlRTEINI OG TÖSKUMIÐA ___ HRINGDU I SlMA 22680 1 VIÐ SENDUM SÝNISHORN ISKORT LÆUARGOTU 2, NÝJA-BlOHUSINU Sigurmark Víkings Á efstu myndinni er Heimir Karlsson á auðum sjó inni í víta- teignum hjá Vestmannaeyingum og stekkur hæst. Á miðmynd- inni er boltinn kominn fram hjá Páli Pálmasyni markverði og er á leið í netið... og á þeirri neðstu er hann kominn alla leið og Heimir getur þar með fagnað sínu 10. marki í deildinni í ár... DV-myndirS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.