Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Blaðsíða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982. 3 NÝ RÍKISSTJÓRN í —þingmenn spuröir BURDARUÐNUM? — Er ný ríkisstjórn Alþýöuflokks, Sjálfstæöisflokks og Alþýðubanda- lags í burðarliönum? „Menn eru ekki aö tala saman út í loftiö,” sagöi ónefndur forystumaður í Alþýöuflokknum í samtali viö DV í gær er hann var spuröur um hvort þreifingar fyrrgreindra þriggja aðila um helgina gætu leitt af sér nýja rikisstjóm. En er hér um aö ræöa raunhæfar þreifingar í átt aö nýrri ríkisstjóm? DV ræddi viö nokkra alþingismenn í gær um málið. Þingmenn virtust tregir til aö ræða þetta og varkárir. „Eg get ekki verið aö tjá mig um þetta mál meöan þessar þreifingar standa yfir,” sagöi Árni Gunnarsson, þingmaöur Alþýöuflokksins. „Eg bjó ekki til þessa frétt og er ekki heimildarmaöur aö henni. Eg veit ekkert um þetta,” sagöi Sighvatur Björgvinsson, formaöur þingflokks Alþýöuflokksins. ,ÍIg tel að fréttin í DV sé bara tilbúningur,” sagöi Friörik Sophus- son, varaformaöur Sjálfstæöis- flokksins. „Þessi frétt gefur til kynna aö eitt- hvaö sé í gangi. Það hefur þá farið fyrir ofan garö og neöan hjá mér,” sagði Friðrik. ,,Mér finnst sjálfsagt aö bíöa eftir úrslitum viðræöna stjórnar og stjómarandstöðu og vonast til aö ríkisstjórnin komi sér saman um hvað hún vill í þessum málum,” sagöi Friðrik. „Þetta er ákaflega yfirborðsleg frétt og lítið í samræmi viö raunveru- leikann,” sagði Ragnar Amalds fjár- málaráöherra. -KMU/GSG. UNGIR ÍSFIRÐ- INGAR ÁFERÐ Þessa ungu og myndarlegu erfingja Isafjaröarkaupstaðar hittu blaöamenn DV þegar þeir voru á ferö fyrir vestan um daginn. Krakkarnir voru aö spóka sig á götunni með fóstrum sínum. Þau eru í leikskólanum við Hlíðarveg. Þar er starfaö í tveim deildum, 40 krakkar fyrir hádegi og aðrir 40 eftir hádegi. Ekkert dagheimili er á Isafirði en leikskóla- og dagheimilis- bygging er fokheld. Vonast er til að það hús verði tilbúið að hluta næsta sumar. Fram til þessa hefur verið skortur á leikskóla- iými á Isafirði. I Hnífsdal standa málin öUu betur því þar stóð kven- félagið Hvöt fyrir byggingu leik- skóla en afhenti bænum síðan og sérhannumreksturinn. -JBH. Fulltrúar ungu kynslóðariunar á tsafirði, böm og fóstrar frá leikskólanum viö Hlíöarveg. BUXNA^PRESSA1 v. orwiNi»os fyrir snyrtimenni Corby of Windsor hefur 40 ára reynslu í framleiðslu á buxna-pressum. Þeir hafa því þjónað mörgu snyrti- menninu í gegnum árin. Buxna-pressa er stórkostleg lausn fyrir þá, sem bera umhyggju fyrir sjálfum sér og konunni sinni. HEIMILISTÆKJADEILD SKIPHOLTI 7 — SÍMAR 20080—26800 UDIS Tvöfaldir, úr kröftugu, fé slitsterku, silikonbornu, vatnsvörðu popplíni Verð frá kr. 990,- Stærðir 10-XL SPORTBUDIN Laugavegi 97. Simi 17015. — Ármuia 38. sími83555. Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi Sporthlaðan, ísafirði , Akureyri Egilsstöðum K.H.B., Seyðisfirði KASK, Hornafirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.