Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1983, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNl 1983. 17 Lesendur Lesendur Lesendur Fóstrurnar halda fyrir nefið er þær drekka kaffi Guöríður Loftsdóttir skrifar: Opið bréf til Borgarstjórnar Reykja- víkur. Ég ætla að benda á hvað störf fóstra á barnaheimilum eru ábyrgðarmikil og nauðsynleg. Það viðurkenna margir. Það er erfitt að passa mörg böm og skiptir miklu að hafa kaffið gott sem gripið er til í kaffitímanum svo að fóstrurnar lifi af og séu betur imdir sitt starf búnar. En nú er það þannig, á t.d. barna- heimilinu sem mitt barn dvelur á, að fóstrumar fá einungis sent til sín kaffi sem er ódrekkandi (nefni engin nöfn) en N.B. er það ódýrasta á markaðnum, þær hafa áður haft orð á því við ráða- menn hve ömurlegt þetta kaffi er, en nei, þetta skulu þær gera sér að góöu því ekki hefur verið bætt úr þessu enn. Metið þið ráðamenn fóstrur svo lítils sem raun ber vitni að þið verðið ekki við þeirri beiöni þeirra að fá að láta svo lítið að drekka almennilegt kaffi? Þetta er kannski spurning um örlitla aukningu á f járútlátum en varia svo að hægt sé að líða núverandi ástand í kaffimálum fóstra á Reykjavíkur- svæðinu. Já, ég má ekki gleyma að nefna það að allar fóstmmar á bamaheimilinu sem barn mitt er á em á því, að kaffið sé ódrykkjarhæft og mér er tjáð aö öll barnaheimili í Reykjavík séu undir sama hattinn sett í þessu efni. Spumingin er: verður þess langt að bíða að fóstmmar þurfi ekki lengur að halda um nefið í kaffinu? r Golfarar: Sendum Ulfar á Doug Saunders 0639-1915 skrifar: Mig langar að leggja fram spurn- ingar til forráðamanna Golfsam- bands Islands. Hvemig stendur á þvi að Guðmundur Arason verður sendur á Doug Sanders en ekki Ulfar Jónsson? Olfar hefur sýnt mjög góðan árangur, ef ekki þann besta sem sýndur hefur verið af jafnungum strá'k og hann er í sumar. Hann setti vallarmet á Hvaleyrar- velli er hann lék 18 holur á 66 höggum og einnig varð hann unglinga- meistari síðastliðið sumar. Er ekki tekiö tillit til þessa árangurs ? Er þetta mót ekki tilvaliö tækifæri fyrir 14 ára ungling til að sýna hvað í honum býr? Hugsum líka um það að þó svo aö Guðmundur hafi sýnt ágætan árangur í sumar þá fór hann á þetta sama mót í fyrrasumar. Því spyr ég, hefur Ulfar ekki unnið til þess með góöum árangrí að vera keppandi fyrir Islands hönd á þessu móti í sumar? Það eru án efa fleiri en ég á þessarí skoðun. ÞAR SEM ÞJÓNUSTAN ER BEST- ERSALANMEST BMW323ÍÁRG. 1981 RANGE ROVER ÁRG. 1982 TRANSAMÁRG. 1978 BÍLASALAN SKEIFAN Skeifunni 11 Símar: 84848 — 35035. <* mm Dreifingu er nú iokið til aiira útsö/ustaða og umboðsmanna FYRSTU TÖLUR BIRTAST/ PH MÁNUDA GINN 4. JÚLÍ STYRKIÐ MÁLEFNIFATLAÐRA ÍÞRÓ TTA SA MBA ND FATLAÐRA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.