Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983. 11 „Nostalgúa", myndverk eftir Ólaf Lárusson. HJú þvi stondur hnátan Friðrika Jakobsdóttir sem er niu ára og frá Akranesi. DV-myndir Gunnar V. Andrásson. gengið í mörg ár, kannski allt of mörg ár. Það eru til listamenn sem hafa ver- iö að vinna í því í nokkra áratugi þann- ig að aldur þessa listforms er orðinn nokkur. Jú, vissulega má segja að nýja málverkið sé að verða gamalt. Þróunin er einfaldlega svo ör, nota bene; hjá listamönnunum, síður hjá sumum áhorfendanna sem eru ennþá feimnir við nýja málverkið og verða eflaust framvegis. Nýja málverkið var sprengja síns tíma sem ögraði öllum gömlu lögmál- unum í myndlist. Það æsti upp í liðinu og gerði það að sumu leyti ringlað. Fólk horfði á yfirborð hlutanna og spurði; er þetta núlist, en nennti aldrei að kikja undir og sjá tilganginn ellegar þá þörf sem var að baki því að lista- maðurinn lagði út í svona túlkun. Fólk nennti ekki að skilja, nýja málverkið var ekki mötun, heldur nokkuð sem þurfti að grúska í og pæla svo einhver von væri um skilning. Fólk nennti ekki að pæla og nennir sennilega ekki LeiOin frá nýja málverkinu —Hvað tekur við af nýja málverkinu? ,,Af andrúmsloftinu má ráða að fram fari einhvers konar gerjun og leit um nokkum tíma í myndlistinni. Hugs- anlega tekur við eitthvert rómantískt og ljóðrænt tímabil, svona svipað og gerðist eftir expressjónismann þar sem liturinn fékk uppreisn æru með látum en þróaðist svo út í hljóðari tóna, hægari og mildari litameðferð. Þetta kemur kannski. En svo hlýtur tæknin að láta á sér kræla í myndlistinni í framtíðinni. Og þar eigum við við örtölvutæknina. I sjónmáli er ákaflega skemmtileg og spennandi tækni þar sem fer svokall- aður kristalskermur. Þar er um fljót- andi kristal að ræða á ákveðnum fleti sem í eru punktar og línur. Þegar svo veitt er spennu á skerminn, mismikilli, koma fram hverslags litatónar sem gerandinn vill framkalla. Af þessu sést að framtíðin er spenn- andi í myndlist engu síöur enn annars- staðar. En hver hún verður nákvæm- lega er ógerningur um að segja,” eru lokaorð myndlistarmannanna þriggja Þórs Elís, Olafs Lár., og Jóns Amar. -SER „Ég hugsa heim" vill listammðurinn Flnnbogi Pitursson meina með þessu verkisinu. Hyggið að framtíðinni og sparið með því fé og tíma (sem enginn á of mikið af). Lítið tímanlega á tréverkið á húsinu. GORI 88 fúavarnarefni fyrir íslenska veðr- áttu. Endist ótrúlega lengi er létt að bera á og slettist hvorki né drýpur. GORI 88 má nota yfir hvaða fúavörn sem fyrir er. Ef þið viljið prófa nýja liti í ár, þá er t.d. hægt að fá ljósari liti í stað þeirra dökku sem fyrir eru. ©/GORI (B)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.