Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1984, Blaðsíða 3
DV. MÁNUDAGUR9. APRIL1984. 3 „Kartöflusnakk” frá Eyrarbakka: UM 20 ÞÚSUND POKAR A MÁNUÐI Nýstofnaö hlutafélag á Eyrarbakka, Ekta hf., hyggst hefja framleiðslu á „snack”-vörum í sumar. Slíka mat- vöru leggja landsmenn sér til munns einkum í veislum í heimahúsum og bílferöalögum. „Meiningin er að byrja aö framleiða í júní,” sagöi Jón Sigurðsson í samtali viö DV. Hann stendur aö fyrirtækinu ásamt Valdimar Sigurjónssyni og Páli Halldórssyni. Þeir félagar eru nýkomnir frá Sviss. Þar kynntu þeir sér framleiöslu hjá fyrirtækinu Zweifel og keyptu af því einkaleyfi. Hráefniö er kartöflur. Ur þeim ætla þeir aö móta skrúfur og hringi og með haustinu bæta þeir kartöfluflögum viö. Hráefnið í skrúfumar og hringina segja þeir útilokað aö fá hérlendis en þeir stefna aö því aö nota íslenskar kartöflur í f lögurnar. „Við getum framleitt allt sem flutt er inn. Til aö byrja með stefnum viö aö því aö framleiöa 20 þúsund poka á mánuöi,” sagöi Jón Sigurðsson. Þremenningarnir hafa reist 200 fer- metra hús undir snakkverksmiöjuna. Þeir gera ráð fyrir aö þrjá starfsmenn þurfi fyrstu mánuðina en þeim fjölgi síöan upp í sex. -KMU. Björgunarsveitir: Þyrlurekstur sé í höndum íslendinga „Teljum viö fjarri Iagi aö íslenska þjóöin geti kastaö ábyrgðinni á þyrlu- rekstri á vamarliöið og óskum þess eindregiö aö unnið veröi aö f jármögn- un til þyrlukaupa,” segir í bréfi sem Björgunarsveitin á Höfn í Hornafiröi hefur sent forsætisráðherra, fjölmiðl- um og þingflokkum. Björgunarsveitin Ingólfur í Rvík hefur einnig sent forsætisráöherra bréf þar sem bent er á nauösyn þess aö þyrlurekstur sé í höndum Islendinga. Vonast slysavarnafólkiö til aö Land- helgisgæslunni verði gert kleift aö fá nýja björgunarþyrlu. -KMU. Fyrir námsfólk jafnt og aðra sem við vinnu sína sitja er mikilvæg undirstaða árangurs að sitja rétt og þægilega.Stóll frá Stáliðjunni er því góð gjöf handa fermingarbarninu, ^ góður stuðningur áður en lengra er haldið. STALIÐJANhf SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211 EV-SALURINN I FIATHÚSINU EV kjör eru landsþekkt sérkjör sem enginn annar býður því við lánum í 3. 6,9. eða jafnvel 12 mánuði. EV-kjör eru kjör sem erfitt er að trúa en eru engu að síður staðreynd. Við bjóðum einnig ÓDÝRA BILA ÁN ÚTBORGUNAR. FIAT RITMO 1982 FIAT 128 1978 FIAT131 1978 FIAT132 1977 FIAT125 P 1978 DODGE ASPEN 1977 DAIHATSU CHARMANT 1979 SKODA120 LS1980 ... AUSTIN ALLEGRO 1977 —^ m Æ mmMí SAAB 99 1974 -*e* CHEVROLET NOVA1977 FIAT 127 1978 ALFAETTA 1978 LADA 2103 station 1977 FORD LTD. 1979 AUSTIN ALLEGRO 1975 1929 notadir bílar í eigu umbodssins - ALLT Á SAMA STAÐ EGILL - r&r VILHJÁLMSSON 1984 Smiðjuvegi 4c - Kópavogi - Simi 79944- 79775

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.