Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 14
14
DV. LAUGARDAGUR 26. MAl 1984.
Hallbjörn í
upptökum
hjá Bimbó
Hallbjöm Hjartarson, kántrí-
stjarna Islands nr. 1, hefur aö und-
anfömu verið í upptökum í Stúdíó
Bimbó á Akureyri en þar er hann
aö leggja síðustu hönd á þriðju
kántríplötu sína.
Það er annars helst að frétta úr
íslenska „kántrí-heiminum” að
Hallbjöm hefur fengið samkeppni
frá Húsavík frá manni er kallar sig
Johnny King og í Degi á Akureyri
var nýlega likum að þvi leitt aö
kappamir báðir mundu heyja með
sér einvígi í sumar, eúihvers staö-
ar fyrir noröan. Verður fróðlegt að
fylgjastmeð því máli.
—FRI
P.P. Djöfuls-
ins ég í upp-
tökum
„P.P Djöfulsins ég”, eitt af
hliðarsporum Einars Arnar
Benediktssonar með þeim Iss
og Kukl, félögum hans Sig-
tryggi, Braga og Kristni, hefur
nýlega lokið upptökum á 11
nýjum lögum og mun Gramm
útgáfan vera að íhuga útgáfu á
þessu efni.
Auk framangreindra mun
Völundur Oskarsson leika á
altó-saxófón í lögunum en
undirritaður heyrði eitt þeirra í
stúdíó Mjöt nýlega, lagið
Djöfulsins ég, lag sem er mjög
í stíl við margt af verkum „The
Residents” en af öðrum ófull-
gerðum bútum sem runnu um
hlustirnar virðist tónlistin vera
mjög fjölbreytt og margt
prófað í henni. -FRI
ROKKSPILDAIM
HuicKSPEB
SPILDAN
kynningu þessi plata fær. Þaö er bara
eitt lag hennar leikið á rás 2 og er viö
vorum kallaðir þar í viðtal um daginn
voru það 4 spurningar, „Svo skal böl
bæta” og þakka ykkur fyrir strákar.
Svo viö komum aftur aö spurning-
unni þá er þetta mjög hefðbundin tón-
list en textarnir grundvallaðir á pólitík
og svo hefur alltaf verið. Samt er það
leiöinlegt hvemig Þjóðviljinn hefur
eignað sér þetta „projeckt” og aðrir
fjölmiðlar því forðast að taka á því.”
En teljið þið að textarnir í lögum á
borð við Berta blanka og MX-Geir
höfði mikiö til almennings?
„Sumum finnst þaö orðiö þreytt aö
gefa skít í þessa menn, Albert og Geir.
Persónulega finnst mér rétt að gera
það. Sumir gera það óbeint en Tolli
segir það beint.
Þaö má skjóta því hér inn í að þaö
vakti ægilegan styr í Háskólanum
þegar Stúdentablaöið birti mynd af
Albert ásamt textanum meö Berta
blanka í heild sinni. Gott ef ekki átti að
sparka ritstjóra Stúdentablaösins fyrir
vikið.”
Hafið þiö lent í vandræðum vegna
textanna?
„Nei. Við höfum hins vegar heyrt
það að Ikarus-hópurinn hafi þennan
stimpil á sér að vera harðlínuseggir.
Við höfum hins vegar lítiö komið fram
og vitum því ekki hvernig „víbrarnir”
eru. Þeir voru greinilegir í rás 2 þegar
við spurðum liðið þar af hverju það
léki ekki annað lag en „Bölið” og hvort
það væri bannað. Þeir sögðust ráöa
lagavali sjálfir og vera sjálfstæðir. Ef
svo er þá hlýtur maður aö lýsa van-
trausti á þá fyrir að vera alltaf aö
hjakka í sama farinu. Eg virði þá þó
fyrir að leika okkur yfirleitt þótt ekki
sé nema um eitt lag að ræða en vil
minna á að rásin var m.a. stofnuð með
það fyrir augum að kynna íslenska tón-
list. Tónlistin þar er hins vegar að
verða eins og hver önnur íþrótta-
keppni, allt vaöandi í vinsældavali og
listum.”
Nafnið Ikarus átti fyrst við strætis-
vagnana margumtöluöu en á nýju
plötunni er það dottið í goðsögnina
grísku. Hvað liggur að baki?
„Þaö er rétt að upphaflega var
nafnið fundið út með strætisvagnana í
huga og ég er á því aö sú pæling sé enn
við lýði innan hópsins. Hins vegar dutt-
um við niöur á þessa Ikarus-fígúru
sem er á albúmmu og goðsögnina um
mannmn sem smíðaði sér vængi en
flaug of nálægt sólu og fall til jaröar
fylgdi í kjölfarið. Megas kallar þetta
ferli „fall poppstjörnunnar” og það á
viðýmsa hér heima,” segir Bragi.
Hvað nafnið á seinni plötunni
varðar, Rás 5—20, segir Bragi að þeir
séu að stríða Steinari sem nú verður að
kaila næstu safnplötu sína Rás 21 ef
hann ætlar aö halda áfram að nota það
nafn á safnplötur sínar. .. „Það má
einnig segja aö þetta sé safnplata af
okkar hendi, viö gerum allir lög á
henni og þaö hefur alltaf verið
draumur Grammsúis að gefa út safn-
plötu. Þessi dugar kannski til bráða-
birgða.”
-FRI.
Nýjasta plata Ikarus-hópsins hefiir
vakiö svipaða athygli og sú fyrsta
þeirra fyrir gagnoröa texta þar sem
ekkert er skafið utan af hlutunum en
svona nokkuð getur hlaupið fyrir
brjóstið á viðkvæmum persónum eins
og t.d. plötusnúðunum á rás 2 sem ekki
hafa leikið nema eitt lag af þessari
plötu hingað til. Þeim til bóta er hins
vegar aö lag þaö sem þeir leika, „Svo
skal böl bæta” er besta lag plötunnar
aö dómi undirritaðs en gefur hins veg-
ar litla hugmynd um fjölbreytileika í
textum og tónlist á plötunni.
Rokkspildan náöi tali af Braga
Olafssyni, einum Ikarusmannanna og
spurði hann um Ikarus-hópinn og þau
verk sem hann hefur fengist viö. Bragi
hefur áður veriö í hljómsveitunum
Purrkur Pillnikk, Iss og nú síðast P.P.,
Djöfulsins ég auk þess að hafa um tíma
séð um poppskrif í Nútímanum, þeim
ema sanna, ekki þeún gulbláa.
„Upphaf Ikarus-verkefnisins má
rekja til þess að Asmund i Gramminu
langaöi til að gefa út efni frá Tolla sem
á þeún túna, í fyrra, var orðið mis-
gamalt, mikið af því frá farandverka-
túnabilinu í lífi hans en þeir Tolli og
Megas töluðu sig síöan saman um að
Megas fengi að vera meö honum á plöt-
unni. Síðan var hljómsveitin stofnuö,
ég, Bergþór og Kormákur vorum kall-
aðir til,” sagði Bragi Olafsson í sam-
tali við Rokkspilduna en það aö það
hafi verið einmitt þeir þrír sem leitaö
var til taldi Bragi stafa af því að pæl-
ingin hefði verið að fá 3 menn úr ólik-
um áttum.
„A fyrstu plötunni spilaöi Tolli í
fyrsta súin á rafmagnshljóðfæri og
varð hún nokkuð hráslagaleg fyrir
vikið enda gerö í flýti eins og rás 5—
20,”segirBragi.
I máli hans kemur fram að strax
eftir gerð fyrstu plötunnar komu upp
hugmyndú- um að hópurúm myndi
starfa áfram saman og þá sem hljóm-
sveit enda höfðu meðlimir hópsins lagt
jafnmikið af mörkum og Tolli í gerð
rafmögnuðu laganna.
Leggur Tolli aúnennt línumar fyrir
hópixm?
„Ekki á seinni plötunni en hann
gerði það á þeirri fyrstu. A seinni
plötunni var allt efnið unnið eins og
gengur í venjulegri hljómsveit, ef und-
an eru skilin tvö lög Megasar.
Viö ákváðum húis vegar að vinna
þetta i sama anda og fyrri plötuna
hvaö varðar textana og annað.”
En Tolli á flesta textana, er ekki
svo?
„Jú, en viö tókum aö vísu upp fleiri
lög Megasar. Þau féllu samt ekki alveg
að heildarmyndmni og var sleppt en
okkur fannst að fyrsta platan væri
nokkuö reikandi í heildarmyndinni, á
henni voru svo mörg ólík lög. Það er
mun betri heildarsvipur á þeirri síðari
aömúiumdómi.
En er ekki hægt aö segja að seinni
platan haldi flestum þeún megin-
punktum sem voru í textum og tónlist
þeirrar fyrri?
„Jú, hún er hrá en samt ekki eins los-
araleg og sú fyrri. Mig langar að koma
því hér að aö mér finnst fyndiö hvemig
Ikarus-hópurinn án Kormáks sein nú dvelur í Danmörku.
Bragi Olafsson, bassaleikari Ikarus.
„UNNIN í
SAMA ANDA
OG FYRRI
PLATAN”
— segir Bragi Ólafsson, bassaleikari Ikarus,
um nýju plötuna, Rás 5-20
Kynning
á norrænu
rokk-
sveitunum:
CLINIC Q
Clinic Q er ein af þeim nýbylgju-
hljómsveitum sem hafa gert þaö gott í
Englandi og Danmörku. Þær hafa
þegar haft nokkur áhrif á þessum
stööum á hefðbundna rokktónlist með
þeúTi blöndu af rokk-, funk- og punktón-
list sem þær spila. Bandið á rætur
sínar aö rekja til „underground” tón-
listarlífsúis í Kaupmannahöfn. I upp-
hafi voru þær 4 en hafa nýiega bætt við
fúnmta meðlimnum. Hæfni hljóm-
sveitarinnar og hugmyndir hafa hrifið
tónlistargagnrýnendur í Danmörku og
tónlistinni veröur best lýst sem meló-
dískri, krefjandi rokktónlist með
nýjumtakti.
Meölimir Clinic Q eru hluti af nýrri
kynslóð tónlistarmanna sem lætur að
sér kveða í tónlistarheiminum með
snjöllum „underground” hugmyndum
og snjallri „Iýrik”.
Hefðbundin form í tónlist eins og þau
sem Bob Dylan, Lou Reed og Roxy
Music hafa haft súi áhrif á meðlimi
hljómsveitarúinar. En á sama túna
fúina þær til skyldleika með sams
konar nýjum hljómsveitum í
Danmörku.
Clinic Q er sjálfstætt starfandi
kvennaband, en umhverfið þar virðist
gera meira veður út af því en
stelpurnarsjálfar.
Stóra platan þeirra „Aye” hefur
eúigöngu að geyma þeirra eigrn tón-
smíðar ásamt textum nema ef um er
að ræða lagið „Down below”, var á
sínum tíma skrifað af Irving Berlin
sáluga, þeún fræga tónsmið sem samdi
ótal söngleiki. Textinn var á sínum
tíma ætlaður í eúia af Chaplin
myndunum en var ritskoðaður sökum
þess aö hann þótti innihalda vafasama
hluti.
Clinic Q hefur á síðustu tveimur
árum haldiö konserta á helstu konsert-
stöðum Danmerkur og hefur hún
fengið orð fyrir að hafa líflega og kraft-
mikla sviðsframkomu.
Þær eru um þessar mundú að leggja
síðustu hönd á næstu breiðskífu sína.