Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Síða 25
DV. LAUGARDAGUR 26. MAl 1984
25
ið ef þú gæfir mér hamingjuna i staðinn, "segir hann.
DV-myndir: GVA,
:ett við hliðina
kosti ekki nálægt tiu þúsund krónum,
annars er ég ekki alveg klár á því. 1
haust keypti ég tvö grömm af amfeta-
míni, hreinu, sko „krystal”. Þaö kost-
aöi fimm þúsund krónur. Þú getur
bara farið niöur á Hlemm, elskan min,
ef þú vilt ná í kókaín. Og bærinn er
fullur af hassi og marijúana og hefur
alltaf verið. Efnin eru seld á dans-
stööum, leiktækjasölum og á Hlemmi.
Eg þekki marga stráka sem hafa
verið „fyrir austan”. Þeir hafa farið út
og keypt efni, einn veit ég um sem
hefur farið þrisvar og aldrei verið
nappaður.”
,fJá, eitt gramm, þaö er í lagi,”
svarar hann hvort hann fengi sér kóka-
ín eftir Amsterdamreynsluna. , ,Allt í
lagi ef maður tekur það rólega, bara í
aðra nösina í einu, ef maður fyllir
báðar nasimar fer aftur í verra. En ég
tæki ekki heróín þó það byðist, enda er
ekkert um það á markaðnum.”
Víða næturskjól
En hvers vegna þetta líf. Steinn
hefur reynt að standa upp en alltaf
farið aftur „á götuna”. Honum líður
best þegar hann horfir á veröldina í
gegnum vímu. Þó vill hann gera býtti á
stórhýsi og hamingjunni sem hann
segist hafa „féngið snefil af”, en ekki
meira. Oðru hvoru í eitt og hálft ár
hefur hann leitað næturskjóls í hita-
kompu í kjallara einum í miðbænum.
Húsið er ekki læst um nætur og þangað
leítar hann ef allt annað bregst. Það er
hiti í kompunni og þar leggst hann á
gólfið: „Mér líður vel þegar ég kemst í
hita,” segir hann, „það er líka heppi-
legt aö þaö er klósett við hliðina á
vistarverunni.” En hann veit ddd
hverjir búa í þessu húsi. Og þaö hefur
aldrei komist upp um veru hans þarna
í kjallarakompunni. Þegar hann er
ódrukkinn getur hann leitað skjóls í
gamla farsóttarhúsinu við Þingholts-
stræti, en þangað má hann ekki koma
dmkkinn.
„Manni líður nú oft illa. Verst hefur
mér liðið og kaldast var mér eina nótt
um hávetur úti á Granda. Þá vafði ég
utan um inig segl og kom mér fyrir í
triUu. Svo svaf ég um tíma í rúðulausu
bílhræi niður á höfn. En þar var ansi
oft þröng á þingi, eins og á hóteli.” Nú
hlær hann.” Og það borgaði enginn
gistinguna á því hóteli, svo það var
fjarlægt.”
Hvers vegna?
,,Ja, til hvers aö ganga í gegnum
þetta líf?”- spyr hann á móti. „Þetta
hefur verið ein þrautaganga og ég er
bara sáttur við hana. Eg verð að segja
alveg í hreinskilni að ég er búinn að
gefast upp. Veistu hverju ég var að
taka eftir? Eg er farinn að grána, tím-
inn líður.
Eg hef séð marga vini mína og
kunningja rísa upp, byggja sér heimili
og allt það, verða sterka menn. En þeir
falla flestir aftur. Einn eftir sjö ár.
Dæmin em aUs staðar í kringum mig.”
Fyrir löngu ætlaöi Steinn að verða
arkitekt. Hann segir okkur frá teikn-
ingunum sínum „en þaö er allt orðið of
seint.”
,J5g hef tekiö eftir því að þegar allt
hefur verið í lagi hjá mér, þá er eins og
ég sé ekki sáttur við að mér líði vel.
Sjálfseyðingarhvöt? Ja, það getur vel
verið. Eg hef tvisvar reynt að fyrirfara
mér. I fyrra skiptið skar ég mig á púls
og í seinna skiptið tók ég inn stóran
skammt af svefnpUlum. Eg var ekki
ánægður þegar ég vaknaði aftur, nei,
það meína ég.
Ef ég væri viss um að það væri til
annað líf eftir þetta væri ég búinn að
hjálpa mér þangað yfir fyrir löngu.
Kannski lagast þetta allt og ef ég færi
aö hjálpa mér yfir sjálfur — missti ég
þá af þvi? Eg veit ekki... En ef fundin
væri upp piUa sem læknaði mig af
áfengislönguninni tæki ég hana. Nei,
ekki antabus, ég er ekkert að blekkja
sjálfan mig. Ef ég tæki antabus væri ég
búinn aömissa trúna á sjáifan mig.”
Hnuplaði af
heimilispeningunum
Hann sveiflast í tali sínu, riddari
götunnar, hann hefur bæði trú á sjálf-
um sér og lífinu og eins er aUt vonlaust
og tUgangslaust. Lengsta fylliríið stóð
yfir samfellt í eitt og hálft ár. Og hann
byrjaði 14 ára gamall allhressUega
með tveggja daga fyUiru. Yfirgaf sitt
fólk sextán ára.
„Foreldrar mínir rifust svo
óskapiega, þau hötuðust, held ég.
Aldrei töluöu þau blíðlega hvort tU
annars. Eg kynntist aldrei blíðu. Og
veistu að það situr aUtaf í mér að frá
sex ára aldri mátti ég aldrei fara út
fyrir dyr á morgnana fyrr en mamma
hafði leitað á mér. Hún leitaði í öllum
vösum og ef hún fann sykurmola tók
hún hann af mér. Hvers vegna...
vegna þess að einhvern tíma fyrir
þann aldur hnuplaði ég af heimiUspen-
ingunum, jú, ég hafði vit á því að ég
væri að gera rangt. ”
Ætlar hann að reyna einu sinni
enn...? „Eg hitti prest, kunningja
minn, á götunni í gær, hann sagði mér
aö koma til sín í dag, hann viU hjálpa
mér. Eg veit ekki, ég held ég hafi
enganáhugaá því."
Með þaö hélt hann áfram út á göt-
una. -ÞG.