Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Qupperneq 48
Fréttaskotið
68-78-58
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gœtt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 26. MAÍ1984.
Þessi Volvo lenti i árekstri við Mözdu á Tunguhálsinum i Árbæ um miðjan
dag i gær. Eins og sjá má skemmdist hann talsvert. Við sjáum hér eiganda
Volvosins virða skemmdirnar fyrirsér. DV-mynd: H.S.
Loðdýragotið hef ur mistekist að
stórum hluta í Skagaf irði:
Gotið mistókst
á yfir helmingi
búanna
Loödýragotið hefur mistekist að
stórum hluta í Skagafirði. Rannsókn á
orsökum þessa er nú í fullum gangi á
Keldum en þangaö voru send sýni úr
refum fyrir skömmu en niðurstaöna er
ekki að vænta fyrr en eftir nokkum
tíma. Þetta ástand er staðbundið við
Skagafjörð og nær eingöngu til refa,
minkagotið tókst víðast hvar vel.
Einar Gíslason, ráðunautur á Syðra-
Skörðugili i Skagafirði, sagöi í samtali
við DV að ástandið á búunum í Skaga-
firði væri allt frá því aö vera mjög
slæmt og upp í þokkalegt en hann taldi
að gotið hefði aöeins tekist sæmilega
hjá þriðjungi þeirra 16—17 refabúa
sem em í Skagafirði en mistekist að
meira eða minnr. leyti á yfir helmingi
búanna.
„Við vitum enn ekki hvaö veldur
þessu en höfum sent nokkur dýr til
LUKKUDAGAR g
26. maí
1132
HLJÓMPLATA FRÁ
FÁLKANUM
AÐ VERÐMÆTI KR. 400,-
Vinningshafar hringi í síma 2Ú068
rannsóknar á Keldum. Þetta er ekki
fóðrinu að kenna því sama fóður var
notað í minkabúunum og þar er út-
koman úr gotinu mjög góð, til dæmis er
eitt minkabúið meö 4,6 hvolpa að
meðaltali á læðu sem er hið hæsta á
landinu,” sagðiEinar.
Hann gat þess að ástandið væri sér-
staklega slæmt á búunum við Sauðár-
krók.
Frjósemi er víðast hvar góð á refa-
búunum en afkvæmadauðinn er mikill,
annaðhvort fæðast afkvæmin dauð eða
deyja á fyrstu 1—2 sólarhringunum.
Hjá Einari kom ennfremur fram að
refabúin eru illa í stakk búin til að
mæta þessum skakkaföllum vegna
erf iðs fj árha gs n ú. -FRI.
Vigdísein
í framboði
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Is-
lands, er sjálfkjörin í embættið næsta
kjörtímabil. Framboðsfrestur vegna
forsetakjörs í sumar rann út í gær.
Ekki bárust önnur framboð en forset-
ans. -JH
Eldur kviknaði inótaskipinu Júpiter igærmorgun þegar verið var að logsjóða iskipinu. Fljótlega tókst að
ráða niðurlögum eldsins og urðu skemmdir ekki miklar. Myndin sýnir einn slökkviliðsmannanna halda á
sjóstakki sem tæplega verður notaður meira til sins brúks. D V-mynd: H. S.
Samningar um stækkun álversins í Straumsvík
þegar gerðardómar liggja fyrir:
SAMKEPPNIS-
STAÐAN í ÁL-
INUMJÖGGÓD
Samkeppnisstaða áliðnaðar hér á
landi er mjög góð samanborið við
annars staöar. Alusuisse hefur vax-
andi áhuga á tvöföldun álversins í
Straumsvík, þá í tveim áföngum.
Samningar um stækkun og orkuverð
fyrir framleiðslukostnaöi verða
tæplega gerðir fyrr en gerðardómar
um reikninga og skatta Isals liggja
fyrir.
Þetta er í grófum dráttum staöa
samningamála milli ríkisins og
Alusuisse eftir Ziirich-fundinn, sem
lauk í gær. A næsta fundi, i London
12.—14. júní, verða hugsanlega
einhverjir þættir væntanlegra
samninga bundnir í yfirlýsingu.
Gerðardómanna er á hinn bóginn
ekki að vænta fyrr en í september.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra heimsækir aðalstöövar
Alusuisse á morgun í kynnisferð og
til persónulegra viðræðna við dr.
Miiller, sem frá upphafi og þar til í
fyrra var aðalsamningamaður Alu-
suisse um Isal og síðast formaður
framkvæmdastjómar álhringsins.
Þaö er sameiginlegt álit sér-
fræðinga beggja aðila að áliðnaður
hér sé vænlegur í samkeppni viö ál-
iðnað í heiminum almennt. Sú niður-
staða varð nú í byrjun maí eftir
miklar athuganir og fundahöld. Starf
þeirra sérfræðinganna tók lengri
tíma en gert var ráð fyrir. Það, og
veikindi aðalsamningamanns Alu-
suisse, dr. Ernst, hefur tafið nokkuð
áætlun um samningaviðræðurnar,
semgerðvaríhaust. -HERB.
LOKI
Afmælismangó og finnsk-
ar / Ráðherrabústaðnum í
dag.
Þriggja bila árekstur varð á Laugaveginum um tvöleytið i gærdag fyrir
framan Mjólkursamsöluna. Suzuki-jeppinn, sem við sjáum fyrir miðju á
myndínni, mun fyrst hafa lent á Volvoinum en fengið siðan Chevrolet-bil-
inn á sig. Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki iárekstrinum. D V-mynd: H. S.
Bændur slást um
dýru traktorana
Frá áramótum og alveg sérstaklega
í stórgusu nú í maí hafa bændur keypt
eins marga traktora og á öllu síðasta
ári. Samt höfðu þeir verið óvenju
fjörugir i kaupum á traktorum fyrir
áramót, strax eftir að söluskattur var
felldur niður á landbúnaðartækjum.
Bændur kaupa nú frekar dýru traktor-
ana en áður. En nú er hætt við að
kaupgleði bændanna strandi á því að
stofnlán frá Stofnlánadeild landbún-
aöarins eru uppurin.
Traktorar eða dráttarvélar til nota í
landbúnaði kosta nú 250—500 þúsund
krónur eftir stærð og gerðum. Hins
vegar er þak á stofnlán 160 þúsund. Að
auki eru stofnlán veitt til sláttuvéla-
kaupa. I fyrra munu hafa selst hátt í
300 traktorar til bænda. Og svipaöan
fjölda hafa þeir keypt nú þegar í ár,
eins og áður segir.
Þótt eftirspum eftir söluskattslaus-
um traktorum sé þetta lífleg takmark-
ar það hana nokkuð aö ekki em veitt
stofnlán út á nema einn traktor yngri
en 15 ára til hvers bónda. Þetta telja
bændur allt of harðan kost því nú
duga ekki færri en 2—4 traktorar á
meðalbú.
HERB