Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1984, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 29. DESEMBER1984. 3 Hér hefur margur hlaupið og sparkað i gegnum tiðina. Nú eru síðustu for- vöð að setja á sig hlaupaskóna og spretta úrspori á Melavellinum. Rekstri vallar- ins verðurhætt um áramót „Hef áhuga á að koma málinu áleiðis” — segir Halldór Blöndal um útvarps- lagafrumvarpið „Þaö kemur mjög til greina aö halda fund í nefndinni áður en þing kemur saman, ég hef allan áhuga á að koma málinu áleiöis,” sagöi Halldór Blöndal þingmaður í viðtali viö DV í gær. Halldór er formaöur menntamála- nefndar neöri deildar sem hefur haft útvarpslagafrumvarpiö nýja til um- fjöllunar. Breytingatiilögur hafa verið lagöar fram frá stjórnarand- stöðuflokkunum og sagöist Halldór ætla að fara yfir þær tillögur fljót- lega eftir áramót. Jólaleyfi þingmanna stendur til 28. janúar. Að minnsta kosti tíu beiðnir um undanþágu til reksturs útvarps- stöðva hafa borist útvarpsstjóra. -ÞG. Kammertónlist hjá íslensku hljómsveitinni Sjöundu tónleikar íslensku hljóm- sveitarinnar á þessu starfsári fara fram í Bústaöakirkju sunnudaginn 30. desember kl. 17 síðdegis og bera yfir- skriftina „Hörpuleikur”. Frönsk kammertónlist er aðal- viöfangsefnið á þessum tónleikum en að auki verða flutt tvö verk samin hér á landi. Sex félagar í hljómsveitinni leika viðamikil einleiks- og samleiks- hlutverk á tónleikiuium. Á efnisskránni eru Kliður, verk fyrir flautu, klarinettu, fiðlu, lágfiðlu, píanó og hörpu, eftir Atla Heimi Sveinsson, Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Debussy, Sónatína fyrir flautu og klarinettu eftir Jolivet, Frá Eyjafirði fyrir hörpu eftir John Herne og Svíta fyrir klarinettu, fiðlu og pianó eftir Milhaud. -óbg. Rekstri Mela- vallar hætt um áramót Gamli Melavöllurinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki í lífi margra íþróttaunnenda til fjölda ára og ára- tuga. Hann er ekki svipur hjá sjón miðað við fyrri glæsileik en hefur þó fram á þennan dag haldið reisn og virðuleika öldungsins. Nýlega var hann þó sviptur einu helsta aðdráttarafli síð- ustu áranna sem var flóðlýsingin. Hún var færö yfir á gervigrasvöllinn nýja í Laugardal. Á fundi borgarráös Reykjavíkur um miðjan mánuöinn var ákveðið að hætta rekstri Melavallarins. Öll starfsemi í þeirri mynd sem þar hefur fariö fram verður lögö niður nú um áramótin. Þjóðarbókhlaðan og Háskóli Islands munu í framtíðinni nýta það svæði sem í dag er Melavöllur. -ÞG Taflmót hinna sterku Hið árlega Útvegsbankaskákmót verður haldið í aðalbanka Utvegs- bankans kl. 14 á morgun, sunnudag. Allir sterkustu skákmenn Islendinga taka þátt, þar á meðal Friðrik Olafs- son, og allir þeir sem voru í hinni sterku ólympíuskáksveit landsins. Opiö hús verður í bankanum meðan mótið fer fram og kaffi veitt. Albert Guðmundsson mun afhenda sigur- launin. -JH. Magnús Þ.Torfa- son forseti Hæstaréttar Magnús Þ. Torfason hæstaréttar- dómari hefur verið kjörinn forseti Hæstaréttar frá 1. janúar 1985 að telja til ársloka 1986. Sigurgeir Jónsson hæstaréttardómari var kjörinn vara- forseti til sama tíma. Dráttarvextir á þinggjöld reiknast4. jan. Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða reiknaöir að kvöldi föstudagsins 4. janúar nk. Fólk er hvatt til að greiöa fyrir þann tíma til aö komast hjá aukakostnaði. Lánskjaravísitala Með tilvjsun til 39. gr. laga nr. 13 frá 1979 hefur Seðlabankinn reiknað út lánskjaiavísitölu fyrir janúar 1985. Lánskjaravísitalan 1006 gildir fyrir janúarmánuðl985.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.