Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR1. FEBRUAR1985. 27 Chet Baker í Óperunni verða Kristján Magnússon, píanó; Tómas R. Einarsson, bassi, og Sveinn Oli Jónsson, trommur. Chet Baker kom til Islands fyrir þrjátíu árum, þá 25 ára gamall. Hann öðlaðist heimsfrægö sem trompetleik- ari í kvartett Gerry Mulligans árið 1952 en haföi áður leikið með ýmsum, m.a. Charlie Parker. Chet Baker var kosinn trompetleikari ársins 1955, bæöi í Down Beat og Metronome, og fór þá meö kvartett sínum í lengstu Evrópu- för er nokkur djasshljómsveit hafði farið. I lok hennar heimsótti hann Island. Um árabil átti Chet Baker við eitur- lyfjavandamál að striða en eftir aö honum tókst að losna undan ofurvaldi hins hvíta eiturs fyrir áratug hefur vegur hans farið vaxandi og hin síð- ustu ár hafa hljómplötur hans oft feng- ið fimm stjörnu dóma í Down Beat. Má í þvi sambandi minna á hinar stór- kostlegu hljómplötur er hann hljóð- ritaði fyrir Steeple Chase ásamt Niels- Henning 0rsted Pedersen og Doug Raney. Chet Baker og Art Farmer þróuðu sérstakan trompetstíl á vesturströnd- inni, mjög skyldan þeim er Miles Davis blés á austurströndinni. Tónninn er flauelsmjúkur og þurr og titurlaus. Chet Baker syngur einnig í sama stíl og hann blæs í trompetinn, enda hefur hann sagt að hann geti sungið hvem tón er hann blæs. Chet Baker mun aðeins koma fram í þetta eina skipti að þessu sinni. Keila í öskju- hlíð opnuð um helgina Það hafa margir beðið eftir því með óþreyju aö hér yrði opnuö aðstaöa til að leika keiluspil eða bowling eins og íþróttin er nefnd í öðrum löndum. Draumur þeirra rætist nú um helg- ina en þá verður keiluspilshúsið lang- þráða í öskjuhlíð opnað. Þegar eru tímar í svonefndri „liðakeilu” frátekn- ir langt fram á vor. Eru þaö starfs- mannafélög og kunningjahópar sem hafa tekiö þá tima frá. A kvöldin eftir kl. 18.00 og um helgar frá kl. 9.00 um morguninn er svonefiid „opin keila” og geta þá þeir sem áhuga hafa mætt og fengið leigöa braut, skó og kúlu. Keiluhöllin verður opnuð almenningi í fyrramálið kl. 9. Verður húsiö opið til kl. 2 um nóttina. Á sunnudaginn verður það einnig opnað kl. 9 og er þá opið til 00.30. Karl Johan Falkmah — á tónleikum Tónlistarfélagsins 1 Austurbæjarbíói Einn fremsti barítonsöngvari Konunglegu óperunnar í Stokkhólmi, Karl Johan Falkman, mun syngja á tónleikum Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói á morgun, laugar- daginn 2. febrúar, kl. 14.30. Karl Johan Falkman er þekktur söngvari í Svíþjóð og víöar. Með hon- um á tónleikunum í Austurbæjarbíói kemur fram Jan Eyron píanóleikari. Á efnisskránni veröa m.a. lög eftir Ravel, Rangström og aríur úr ýms- um óperum. Miðar, sem gilda áttu á tónleika Nicolai Gedda sem vera áttu á veg- um Tónlistarfélagsins sl. mánudag en féllu niður vegna veikinda söngv- arans, gilda á þessa tónleika. Chet Baker btœs i trompettinn ð sviðinu sem notafi er i Carmen í Gamla bíói á morgun. Chet Baker, einn af fremstu Gamla bíói á morgun, laugardag, í trompetleikurum og söngvurum djass- boði Jazzvakningar og hef jast tónleik- , ins, mun leika og syngja svalan djass í arnir kl. 15. Undirleikarar Chet Bakers Hvað er á seyði um helgina? Harmóníkuunnendur Skemmtifundur Félags harmóníku- unnenda veröur í Templarahöliinni v. Skólavörðuholt sunnudaginn 3. febrúar og hefst kl. 15. Tvær stórar harmóníku- hljómsveitir koma þar fram, nokkrir einleikarar, kvennatríó og fl. Dansað milli kl. 17 og 18. Góðar veitingar verða á boðstólum sem endranær. Kvikmyndir Kvikmynd um sovéska húsagerðarlist í MÍR Kvikmyndasýning verður að venju í MlR-salnum, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag, 3. febrúar, kl. 16. Sýndar verða tvær hálftima langar myndir með skýringatali á íslensku. Fjaliar önnur kvikmyndin um friðarbaráttu sovéskra kvenna, hin um húsagerðar- list í Sovétrikjunum. — Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrir eða eftir bíó PIZZA HOSIÐ Grensásvegi 7 sími 38833. IMýlistasafnið Vatnsstíg Þar stendur yfir sýning ítalska málar- ans Corrado Corno. I kvöld munu nokk- ur skáld Reykjavíkur lesa úr verkum sínum. Síðan munu meðlimir úr In- ferno 5 leika fyrir dansi. Húsið opnað kl. 21.30 og lestur byrjar fljótlega upp úr því. Gestir mega gefa 50 kr. til styrktar fyrir ánægjuna en bók- menntafræðingar verða að borga þre- falt verð. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Engin sýning um þessa helgi. Gallerí Borg Pósthússtræti 9 Þar stendur yfir sýning á verkum í eigu hússins, s.s. grafík, vatnslita- myndir, gler, keramik og fl. Sýningin er opin virka daga kl. 12—18 og um helgar kl. 14—18. Sýningunni lýkur um miðjan febrúar. Gallerí Grjót Skólavörðustíg 4a Þar stendur yfir sýning aðstandenda Gallerís Grjóts, s.s. myndlist, gull- smiði, keramik og handprjónaðar peysur. Sýningin er opin daglega kl. 12-18. Hafnarborg Strandgötu 34 Þar stendur yfir sýning þeirra Gests Guðmundssonar, Sigurbjörns Oskars og Jónínu Guðvarðardóttur. Á sýning- unni eru teikningar, málverk og leir- list. Opið daglega frá kl. 14—19. Sýn- ingin stendur til 17. febrúar. Árbæjarsafn Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 84412. Listasafn Einars Jónssonar v/Njarðargötu Safniö opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30—16. Höggmyndagarðurinn op- inn sömu daga kl. 11—17. Gallerí Langbrók Amtmannsstíg 1 Sölusamsýning Langbróka. Opið virka daga kl. 1?—18. Þjóðminjasafnið Þar eru til sýnis myndir eftir Sölva Helgason. Opið á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögumfrá kl. 13.30—16. Ásmundarsafn v/Sigtún Þar stendur yfir sýning sem nefnist „Vinnan í list Asmundar Sveinsson- ar”. Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14—17. Fyrirlestrar Fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um heimspeki Sunnudaginn 3. febrúar mun Gunnar Harðarson flytja fyrirlestur á vegum Félags áhugamanna um heimspeki sem hann nefnir: „Verkefni islsnskrar heimspekisögu”. 1 fyrirlestri sínum hyggst Gunnar ræða helstu rannsóknarsviö innan íslenskrar heimspekisögu, heimspeki- iðkan Islendinga fyrr á öldum og spurninguna hvort Islendingar eigi sér heimspekihefð. Gunnar lauk B-A prófi í heimspeki frá H.I. haustið 1978 og stundaði síðan framhaldsnám í heimspekisögu við Parísarháskóla og lauk þaöan doktors- prófi í júní sl. Hann hefur unnið að út- gáfu lærdómsrita frá miööldum á vegum Heimspekistofnunar Háskóla Islands. Fyrirlesturinn verður fluttur í Lög- bergi, stofu 101, og hefst kl. 15.00. Spilakvöld Kirkjufélag Digranespresta- kalls Félagsvist verður spiluð í safnaðar- heimilinu, Bjamhólastíg 26, laugar- daginn 2. febrúar kl. 14.30. Félagsvist og dans í Templ- arahöllinni Félagsvist verður spiluð í kvöld kl. 21. Gömlu dansamir undir stjórn hljómsveitarinnar Tígla hefjast kl. 22.30. Borgfirðingafólagið í Reykjavík verður meö félagsvist í Síðumúla 35 (Skagfirðingabúð) sunnudaginn 3. febrúarkl. 14. Gítartónleikar í Stykkishólmi Páll Eyjólfsson gítarleikari heldur tónleika í kapellu St. Fransiskussystra í Stykkishólmi laugardaginn 2. febrúar kl. 16. Á efnisskrá verða verk eftir Luis De Narvaez, D.Scarlatti, J.S. Bach, M.C. Tedesco, I. Albeniz og F.M. Torr- oba. Páll hóf tónlistarnám i bamamúsik- skóla Reykjavíkur en seinna I gítar- skólanum þar sem kennari hans var Eyþór Þorláksson. Hann lauk einleik- araprófi þaðan 1981 og áriö 1982 hélt hann til framhaldsnáms til Spánar. Þar stundaði hann nám undir hand- leiðslu spænska gítarleikarans Jose Luis Gonzalez í borginni Alcoy. Þaðan lauk hann námi í haust sem leið og starfar nú sem gítarkennari í Reykja- vík. Tónleikamir í Stykkishólmi verða semfyrrsegir kl. 16. t PÚNIK OG EINAR OG DANSBAND ÚNNU VILHJÁLMS. FÚSTUDAGS OG LAUGARDAGSKVÚLD. KVÚLDVERÐUR KL. „8-10. HÚSIÐ OPIÐ TIL KL. 3.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.