Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1985, Blaðsíða 18
18 DV. MANUDAGUR 22. APRIL1985. ÁLPÖNNUR STEYPTAR Á EYRARBAKKA í HAUST ,,Það verður vonandi í haust sem viö getum byrjað aö framleiða álpönnum- ar,” sagði önundur Ásgeirsson, stjómarformaður Alpan hf., sem vinn- ur að því að koma á fót álsteypu á Eyrarbakka. „Það hefur gengið tuegt að koma þessu upp hér. Sjóðakerfið á Islandi er mjög hægvirkt,” sagði önundur. Alpan keypti í fyrra álpönnuverk- smiðju nálægt Arósum í Danmörku. Sú verksmiöja framleiöir 125 til 150 þúsund pönnur á ári. Áætlað er aö verksmiöjan á Eyrar- bakka steypi 250 til 300 þúsund pönnur úr áli frá ISAL í Straumsvík. önundur sagði að búið væri að panta vélar. Þær kæmu til landsins í ágústmánuði. Starfsmenn verða um 25 talsins. Hluthafar í Alpan eru um 70 talsins. Danskir aöilar eiga um tíu prósent. Stærsti hluthafinn er fyrirtækiö Einarshöfn á Eyrarbakka. Það leggur til húsnæði sem áður var notað til fisk- verkunar. Álpönnunum verður komið á markað í samvinnu við aðila í Dan- mörku. Samningar hafa þegar verið gerðir um sölu á miklu magni til Vestur-Þýskalands. -KMU. Önundur Ásgeirsson, stjómarformaður Alpan hf. meö Jjölda stórra vinninga MIÐI ER MOGULEIKI ___HAPPDRÆTTI_________ Dvedarheimilis aldraöra sjómanna Tónlistarfnmerki koma út fyrir Evrópudaginn Tvö ný frímerki koma út föstu- daginn 3. maí næstkomandi, tveimur dögum fyrir dag Evrópu. Þetta eru Evrópufrimerki, tileinkuð tónlistarári Evrópu. Frímerkin teiknaði Þröstur Magnússon. Annað þeirra, að verðgildi 650 aurar, sýnir konu leika á langspil. Hitt frímerkið, að verðgildi 750 aurar, sýnir karlmann leika á íslenska fiðlu. A frímerkjunum er einnig hið opinbera merki tónlistarársins. Langspil er þjóðlegt hljóðfæri sem notað var á Islandi um alllangt skeið til undirleiks með söng. Þess er fyrst getið I heimildum frá því um 1700. Það var notaö fram yf ir síðustu aldamót. Hljóðfæri af þessari gerð eru kunn viða í Evrópu undir ýmsum nöfnum. Hér á Islandi var leikaðferðin frá- brugðin því sem annars staðar þekkist. Hér var ávallt leikið á langspilið með boga. Islenska fiðlan er alþýöuhljóðfæri sem notað var hér á landi fram á 19. öld. Sennilega hefur hún einkum verið höfð til undirleiks við söng. Fiðlan er einföld aö gerð, nánast opinn, aflangur kassi á hvolfi, því að ekki er á henni botn. A fiðluna var leikið með boga og var aðferðin sérkennileg, eins og frí- merkið sýnir. Uppruni íslensku fiðlunnar er óljós. En hin sérkennilega leikaðferð hefur gefið tilefni til hugleiðinga um hugsan- legan skylduleika við erlend hljóð- færi,svo sem strokhörpu í austanverðri Skandinaviu, crwth á Bretlandseyjum að ógleymdri steinmynd í dómkirkj- unni í Þrándheimi er sýnir mann leika á eins konar strokhörpu á svipaðan hátt og leikið var á íslensku fiðluna. 1 ÍSLAND EUROPA CEFT 1750

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.