Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Blaðsíða 35
35 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985. idinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tiðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Örnólfur Thorlacius, rektor MH: „Prófsvindl er alls staflar til. En miflafl vifl þá reynslu sem ég hef úr öflrum skólum þé er slikt frekar fétitt hér." Guðni Guðmundsson, rektor MR: „Ég veit ekki til þess afl hór sé svindlað í prófum, a.m.k. hefur enginn orflifl uppvis að slíku sl. 4-5 ár". tíma í aðkrota út einhverja svindlmiða þá geti það rétt eins notað þann tíma í aö lesa námsbækumar. Annars hefur maður tilefni til aö ætla að prófsvindl sé orðið úrelt fyrir- brigði. Við verðum ekkert varir við þetta. Nemendur sjá líka sjálfir að svona nokkuð borgar sig einfaldlega ekki.” Flóttalegt augnatillit — Kanntu ekki einhverjar sögur af prófsvindli? „Jú, eflaust kann maður einhverjar slíkar frá því í gamla daga. Einu sinni fyrirmörgumárumþegarégsat yfiri prófi, fannst mér einn nemandinn vera mjög flóttalegur til augnanna. Eg stend upp, labba til hans og sé að riss- blaðabunkinn hans er óeðlilega þykk- ur. Þá kom í ljós að hann var með blöð yfir óreglulegar sagnir neðst í bunkanum. Þetta var í upphafi prófs svo að ég gerði ekkert í þessu. Sleppti stráksameðþetta. Siðan segir sagan af kennara nokkr- um hér við skólann sem þótti mjög naskur við að sjá út svindl. Eitt sinn er hann sat yfir í prófi á hann aö hafa hlaupiö út á gang á efstu hæðinni og kallaö niður til umsjónarmannsins: „Drífðu þig strax út í leikfimihús, þeir eru að svindla þar.” En þessi saga er nú gömul og ég sel hana ekki dýrari en ég keyptihana.” Er framtíðin svindltölvur? „Þetta er eins og með afbrot, það kemst ekki allt upp,” sagði ömólfur Thorlacius, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, þegar hann var spurður um tíðni prófsvindla í skólanum. „Þetta er alls staðar til en við höfum ekki orðið mikið varir við þetta hér. Við höfum staðið menn að svindli endrum og eins en miðað við þá reynslu sem ég hef af slíku úr öðrum skólum þá er þetta frekar fátítt. Hafsteinn Stefénsson, skólastjóri FÁ: „Prófsvindi er ekki algengt hór. Ég held afl sllkt só alveg komifl úr tisku." DV-mynd Kristján Ari. Eg held að í því sambandi komi aðal- lega tvennt til. I fyrsta lagi erum við með stuttan próftíma. Nemendur hafa nóg að gera við að svara spurningum meðan á prófi stendur. I öðm lagi er nemendum ekki hleypt inn í stofumar fyrr en próf hefst. Þetta útilokar það að hægt sé að koma fyrir svindlmiðum eða krota á borð. Annars held ég að þessir gömlu svindlmiðar f ari að verða úreltir. Maður bíður eftir því að nemendur fari að koma með þessar litlu vasatölvur sem hægt er að forrita ipróf.” Sjálfsbjargarviðleitini ..Einhverjar svindlsögur? Eg man eftir einni þegar ég var kennari við MR. Þá var ég með skyndipróf í efna- fræði og vissi að margir af nemendun- um höföu hugsaö sér að reyna að svindla. Ég hirti margar bækur undan borðum í upphafi prófsins en einn strákurinn slapp. Hann skrifaði nokkr- ar byggingafonmúlur í prófinu svo ná- kvæmlega að ég var alveg viss um að þær væru beint upp úr bókinni. Eg kunni þær ekki einu sinni! Svo ég ákveð að ná mér niðri á stráknum með því aö kaDa hann upp að töflu í næsta tíma og láta hann skrifa upp formúlurnar. En þá kunni kauöi allt saman. Hann hafði lagt á sig að læra allar formúlumar utanbókar. Mér fannst þetta svo mikil sjálfs- bjargarviðleitni að ég fyrirgaf honum allt saman. Hann viðurkenndi líka fyrir mér nokkm síðar að hafa notað bókinaíprófinu.” — Hefur þú einhvem tímann svindlaðáprófi? „Já og nei. Eg reyndi það einu sinni í prófi í þýsku hjá Jóni Magnússyni. Hann sá hins vegar strax í gegnum mig. Hafði meira að segja á orði að þetta hefði verið mjög viðvaningslega gert hjá mér. Þá gafst ég upp á að svindla.” Minna prófstress „Prófsvindl er ekki algengt hér. Eg held að þetta sé alveg komiö úr tísku,” sagði Hafsteinn Stefánsson, skóla- - meistari Fjölbrautaskólans viö Armúla. „Það sem skiptir mestu máli í þessu sambandi er hvað próftíminn er stuttur. Nemendur hafa einfaldlega ekki tíma til að svindla. Hér áður fyrr var próftíminn oft á tíðum 3 tímar. Það bókstaflega bauð upp á að fólk reyndi svindL Þaö hefur lika mikið að segja að prófstress er minna en áður var. I f jöl- brautakerfinu t.d. eiga nemendur það ekki á hættu að falla á heilum vetri. Ef viðkomandi fellur í einhverju prófi get- ur hann tekið það upp aftur. Að falla á prófi er því ekkert stórmál lengur.” Komið úr tísku I svipaðan streng tók Erling ■ Tómasson, skólastjóri Langholtsskól- ans. „Það hefur dregið mikið úr spennu í kringum próf. Við verðum nánast ekkert varir við að nemendur reyni að svindla í prófum. Þessir hlutir hafa breyst mikið frá því sem áður var þegar skrifað var á lófa og handleggi, jafnvel læri. Þetta er einfaldlega ekki í tískulengur.” Hörð viðurlög „Fyrirkomulag prófanna er orðið þannig að það borgar sig ekki fyrir nemendur að reyna að svindla,” sagði Jóhann Sigurjónsson, yfirkennari Menntaskólans á Akureyri. „Nemendur sitja dreifðir í stofunum og gæslan er ströng. Próftíminn er stuttur og býður ekki upp á að það sé eitthvað veriö aö drolla. Eg hef verið aö spyrja krakkana út í þessa hluti. Þeir eru alls ófeimnir við að ræða þetta og mér virðist á þeim aö það sé alveg sáralítið um þetta, ef þá nokkuð. Eg held að nemendur almennt geri sér fulla grein fyrir því að það borgi sig ekki að svindla á prófum. Viöurlög við slíku athæfi eru hörð.” Lófasvindl. Þetta hafa örugglega margir reynt é sínum prófferli. þess var að einn nemandinn horfði mikiö út um gluggann. Þessum ágæta manni fannst þetta nokkuð undarleg hegðun þar sem allir aðrir i prófinu kepptust við. Hann stendur því upp og fer að athuga máliö nánar. Þá kom í ljós að nemandinn var með segul- bandstæki á sér. Heymartækissnúran var hins vegar glær sem girni og sást ekki úr fjarlægð. Upplýst og rekinn úr skólanum. Þetta eru allt dæmi um meiriháttar svindl. Hér hefur ekki verið minnst á minni spámenn, þá sem gera svindl- miöa og krota í lófa. Slíkt telst vart í frásögur færandi enda nokkuð sem flestir hafa einhvem tíma reynt á skólagöngu sinni. Endum þessa upprifjun engu að síður með einni sögu um lófakrot. Þetta var hér í gamla daga meðan munnlegu prófin tíðkuðust enn. Nemandinn var að koma upp í sögu og hafði skrifað hjá sér minnispunkta í lófann. Kennarinn fer að spyrja og innan skamms stendur nemandinn á Gamla svindlmiðann þekkja nú allir. Margir þora hins vegar ekki afl hafa hann uppi é borfii hjé sér. Þafi er lika í mörgum tilfellum óþarfi þvi viflkomandi kann yfirleitt utanbókar þafl sem é mifianum stendur. DV-myndir— Kristjén Ari. gati. Hann þorir samt ekki að líta í lófann. Nema hvaö kennarinn gerist óþolinmóöur og segir loks: „Hvað er þetta, maður, sérðu þetta ekki í hendi þér?” Nemandanum féllust gjörsam- lega hendur viö þessa athugasemd og kom hann ekki upp eina einasta orði. Það skemmtilegasta við þetta allt saman var þó aö kennarinn hafði ekki hugmynd um að nemandinn hafði skrifaö minnispunkta í lófann. Þar rataðist því kjöftugum satt á munn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.