Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNl 1985. 15 Skreiðarsala og íslensk viðhorf til þróunarlanda „Erfiðasta viðskiptavandamál síð- ustu tveggja ára hefur verið lokun skreiðarmarkaðarins í Nígeríu. Arið 1981 var Nígería þriðja stærsta við- skiptaland Islendinga og keypti þá 13% af heildarútflutningnum”. Arið 1984 nam þetta hlutfall 0,2% af ís- lenskum útflutningi. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu utanríkisráðherra til Al- þingis. Sölutregða skreiðar til Nígeríu hefur leitt af sér birgðasöfn- un. Annar kaupandi hefur ekki fund- ist og stöðugt bætist við birgöimar i geymsluhúsunum og dýrmæt mat- væli liggja undir skemmdum. Stöð- ugar samningaviðræður hafa staðið yfir við skreiðarkaupmenn í Nígeríu án árangurs. Tekjutap þjóðarínnar vegna 13% samdráttar i heildarút- flutningnum hefur verið brúaö um stundarsakir með erlendrí skulda- söfnun að hluta, en skuldir þjóðar- innar erlendis nema nú yfir 60% af þjóðartekjum. Á sama tíma hrannast upp i land- inu óseldar landbúnaðarafurðir. Þeim er einnig safnað saman í birgðageymslur. Eitthvað tekst að selja erlendis með æmumtilkostnaði útflutningsbóta úr ríkissjóði. Matvælaframleiðsla er lifibrauö þjóðarinnar. Lífskjör í landinu hafa að undanfömu versnað þvi stöðugt verður erfiðara að selja matvæli i heiminum á verði sem nægir til að viðhalda islenskum framfærsluþörf- um. Málum er bjargað i hom tima- bundiö meö aukinni skuldasöfnun. Á jöröinni svelta milljónir manna. Söfnun matvæla i íslenskar birgða- geymslur er vitnisburður um að or- sakir hungurs og fátæktar í heimin- um megi finna á meðal okkar eins og „Kenningin um að fólksfjölgun i haiminum só meginorsök hung- urs og fátæktar, aö jöröin só of litil og mennirnir of margir sem hana byggi, getur ekki staðist gagnvart birgðasöfnun íslenskra matvœla.'" þeirra sem hungrar og þjást. Það hlýtur að vera ábyrgðarhluti að geyma dýrmæt matvæli í birgða- geymslum svo árum skiptir svo stór hluti þeirra liggur undir skemmdum. Kenningin um að fólksfjölgunin í heiminum sé meginorsök hungurs og fátæktar, að jörðin sé of lítil og mennirnir of margir sem hana byggi, getur ekki staðist gagnvart birgðasöfnun íslenskra matvæla. Hin kenningin . er nærtækari, að nóg sé framleitt af matvælum í heiminum, en þau standi þeim einum til boöa er peningahafa. ísland—Nígería, samskipti á jafnréttisgrundvelli? I Nigeríu búa um 95 milljónir manna. Meðal lífaldur er 50 ár. Þjóð- artekjur á hvern íbúa nema rúmum þrjátíu þúsund krónum á árí. Til samanburðar eru íslenskar þjóð- artekjur á hvern íbúa yfir fjögur hundruð þúsund krónur á ári. Bama- dauði er mikill í Nígeríu, en 11% fæddra bama lifa ekki fyrsta af- mælisdaginn sinn. Almenn lifskjör i landinu eru mjög bágborin, atvinnu- leysi mikið, ólæsi og skortur á al- mennrí menntun, húsnæðislausir skipta þúsundum, mjög takmörkuö heilsugæsla og þægindi á borö við hreint vatn og rafmagn em al- menningi nánast ókunnur veruleiki. GUNNLAUGUR STEFÁNSSON GUÐFRÆÐINGUR, STARFSMAÐUR HJÁLPARSTOFNUNAR KIRKJUNNAR Mælikvarði mannréttinda er annar og öðmvísi í Nígeríu en á Islandi. En þegar Nígeríu ber á góma í íslenskum umræðum þá eru það ekki ofangreindar staðreyndir, er við höf- um áhuga á. Aðeins eitt skiptir máli: Kaupa þeir af okkur skreiðina eða ekki? Þessi þjóð virðist ekki skipta okkur máli að öðra leyti. Því er jafn- vel haldið fram að sölutregða á skreiðinni til Nígeríu sé tilkomin af því að íslensku skreiðarseljendurnir séu svo sparir á mútuboðin. Það er sjaidnar nefnt að ástæðu sölutregðunnar megi leita til hins bágborna ástands, fátæktar og örbirgðar í landinu, að verðið á skreiðinni sé of hátt fyrir fátækan al- menning, að viðskiptin séu einhliöa en við kaupum því sem næst ekkert frá Nígeríu og samskipti landanna engin önnur en einhliöa skreiðarsala. Náin viðskiptalönd tengjast gjarn- an vináttutengslum á sviðum félags- og menningarmála. Stjómmála- mönnum er tíðförult til útlanda til þess að treysta slík tengsl og efla við- skipti. En stjórnmálamenn heim- sækja ekki Nígeríu né önnur lönd þriðja heimsins. Svo virðist sem heimurinn takmarkist við Evrópu og Bandaríkin í ljósi íslenskrar utan- ríkisstefnu. Er fátæktin einkamál fátækra? „Við höfum nóg með okkur og okk- ar vandamál hér heima svo við för- um nú ekki að hjálpa utanlands áður en viöhjálpum okkur sjálfum”. Þessi skoðun heyrist oft. I raun er sllk fullyrðing ekki svaraverð ef bornar eru saman lífsaðstæður í þróunarlöndum og hér á landi. A.m.k. var þessu áliti ekki haidiö hátt á lofti er við þáðum hátt á annan milljarð króna erlendis frá í gjafa- framlögum til hjálparstarfs hér á landi vegna gossins í Vestmanna- eyjum. Þaðan af síður kom einstakl- ingum og stjómvöldum til hugar að draga úr neyslu og fjárfestingum í landinu þó hjálparfé streymdi inn í landið erlendis frá. Það viröist annar siöferðismælikvarði gilda um hjálparstarf í Afriku en á Islandi. En komumst við af ein og sér án tengsla við þjóðir þó fátækar séu? Fátæk þjóð í Nígeríu er góð ef hún vill kaupa af okkur skreiðina. Það skiptir okkur miklu máli hvað kaffið, kakóið, gúmmíið, sykurinn, kornið, ávextirnir og hveitið kostar, afurðir sem tilheyra daglegum neysluþörf- um en koma frá löndum þriöja heimsins. Það var kærkomið á sínum tima aö njóta stuðnings margra þróunarlanda í baráttunni fyrir út- færslu landhelginnar. Það er ljóst að sjálfstæð íslensk þjóð getur ekki án lifandi tengsla viö fjarlægar þjóðir verið og þrátt fyrir að þær þjóðir séu fátækar. Fátækt og örbirgð er ekkert einkamál þjóða þríðja heimsins. Umframframleiðsla matvæla hrannast upp í birgðageymslum í Evrópu og Bandaríkjunum. A meðan deyr fólk þúsundum saman úr hungri. Þetta er skelfilegt dæmi um hvernig bilið á milli ríkra þjóða og fátækra breikkar. Islenska matvæla- framleiðslan er skólabókardæmi um þá efnahagslegu neyð sem hin al- þjóölega verslun stendur frammi fyrir. Matvælaframleiöslan á Vesturlöndum eykst en markaðurinn ekki að sama skapi þrátt fyrir öra fólksfjölgun sem margir telja megin- orsök fátæktar og hungurs í heimin- um. Söfnun matvæla í íslenskar birgðageymslur er ekki séríslenskt vandamál Það er alþjóðlegt á sama hátt og hungríð i heiminum er málefni er við berum ábyrgð á ekki síður en þeir sem líða og þjást af hungrí og fátækt. Gunnlaugur Stefánsson. Óréttlæti í lífeyriss jóðsmálum „Fólk I fjölmörgum stéttum fordœmir Alþingi fyrir aðgerðaleysi i lif- eyrissjóðsmálum, en það fordœmir lika forsvarsmenn stéttarfélaga." Hvernig í ósköpunum stendur á því að forystumenn þeirra stéttar- félaga sem ekki hafa mannsæmandi lífeyrissjóðsréttindi leyfa sér að steinþegja um það mál nema ef minnst er á að hækka fjárbindingu í húsnæðislánakerfið frá þeim ca 100 ófullnægjandi sjóðum sem eru í land- inu. Þá ætla þeir sem ráðskast með fé sjóðanna vitlausir að verða en það heyrist ekkert í sjóðfélögum því þeir em að bíða og vona að staðið verði við þau loforö sem flestir stjóm- málaflokkar hafa gefið um að komið verði á fót einum lifeyrissjóði fyrir alla landsmenn. Á mörgum vinnu- stöðum og víða í þjóðfélaginu er mik- ið rætt um þessi mál. Fólk í fjöl- mörgum stéttum fordæmir Alþingi fyrir aðgerðaleysi í lífeyrissjóðsmál- um en það fordæmir líka forsvars- menn stéttarfélaga. Þeim má ekki líðast að meta meira aö geta réðið í hvaða peningastofnun fé sjóðanna er geymt heldur en að hugsa um brýnustu hagsmunamál sjóó- félaganna. Oþolandi misrétti A síðustu stundu fyrir þingslit síð- asta kjörtímabils, þegar ekki var lengur tími til umræðu, samþykktu þingmenn að starfsmenn stjóm- málaflokkanna mættu vera í alvöm lifeyrissjóði, það er lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. Þingmenn vom líka komnir að því aö kveðjast í þingsölum þegar þeir samþykktu að auka lífeyrissjóðsréttindi bænda GUÐMUNDUR J. KRISTJÁNSSON VEGGFÓÐRARAMEISTARI með greiðslu úr ríkissjóði. Þúsundir manna hér á landi búa við óþolandi misrétti í eftirlaunamálum. Það er fullvist aö þetta fólk mundi vilja láta gömlu sjóöina i húsnæðissjóðakerfið og væri lika tilbúið að meta í kjara- samningum ef einn lífeyrissjóður y rði stofnaður fy rir alla landsmenn. Átaks erþörf Ohætt er að fullyrða að hver sá stjómmálaflokkur sem tæki sig til og geröi átak í lífeyrissjóðsmálum myndi ríkulega njóta þess. Það yrði stór hópur og mjög þakklátur sem sæi til þess. Sama gildir um einstaka þingmenn. Til dæmis núverandi f jár- málaráðherra sem er einn af fáum sem virðist hafa áræði og getu til aö gera stóra hluti. Hinum unga for- manni stærsta stjómmálaflokksins má segja það að með réttum tökum í þessu máli gæti hann lyft sér upp í formannsstólnum svo um munar. Þaö þarf áræði og framtakssemi til að verða stór í hugum fólks. Frumvarp Guðmundar H. Garðarssonar Einn er sá maður sem á þakkir skildar fyrir virðingarverða tilraun til að leiðrétta órétt í lífeyrissjóðs- málum landsmanna, það er Guð- mundur H. Garðarsson. Fyrir nokkr- um árum lagði hann fram á Alþingi frumvarp til laga um lifeyrissjóð Islands. Því miður bám þingmenn ekki gæfu til að sinna þvi máli þá. Kannski verður enn einu sinni, svona rétt í þinglok, samþykkt eitthvað já- kvætt varðandi lífeyrissjóðsmál. Frumvarpið hans Guðmundar um lífeyrissjóð Islands hlýtur að vera til ennþá. Guðmundur J. Krístjánsson. ^ „Öhætt er að fullyrða að hver sá stjórnmálaflokkur sem tæki sig til og gerði átak í lífeyrissjóðsmálum myndi ríkulega njóta þess.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.