Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 29
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985. 29 Glorhungruð á kjúklinga- stað Frá Reginu, Selfossl: Viö hjónin vorum nýlega á ferö í Reykjavík að útrétta ýmislegt áður en við förum i sumarbústað okkar á Ströndum. Við vorum lengur en við gerðum ráð fyrir og var klukkan orðin eitt og við orðin sársvöng, sérstaklega ég, sem þarf svo mikið að borða. Við vorum stutt frá Candys, Eddufelli 6, í Breiðholti. Við skruppum þar inn. Þar var allt mjög þrifalegt, bara flott. Við gátum bara fengið kjúklinga og ham- borgara. En við étum ekki kjúkiinga. Eg bað um eitt læri af kjúkUng. Mér fannst það svo gott á bragðið að ég bað um annað í viðbót og svo þriðja og fjóröa. Svo spurði ég Inga Magnússon matreiðslumann hvemig hann færi að því að matreiða svona góða kjúklinga. Hann sýndi mér það því aö hann var að setja kjúklinga í einhverja vél sem blandaði kryddinu saman viö. Síö- an er kjúklingurinn settur í háþrýsti- pott. Ég spurði Inga hvort alltaf væri nóg að gera. Hann sagði að svo væri, en mest um helgar og alla þá mörgu fridaga sem væm hér á landi. Þá væri alveg örtröð. Einnig væri mikið um að fólk keypti kjúklinga með öllu tilheyr- andi og borðaði heima hjá sér. I Breið- holti búa 16—17 þúsund manns. Við hjónin fórum glöð af staðnum eftir góða og ódýra máltíð. Við höfum held- ur ekki smakkað eins góðar franskar kartöflur áður. Eg spurði Inga hver ætti þennan flotta skyndibitastað og sælgætisverslun. Hann heitir Haf- steinn Alfreðsson, var svarið. Kjúkl- ingamir þarna voru miklu betri en ég fæ í veislum fyrir austan en þar eru þeir alltaf hálfhráir og lítið gimilegir. Leiðrétting vegna ritdóms: LETRIÐ BREYTTI UÓÐINU Ljóð em margslungin. í ritdómi Arnar Ólafssonar um nýja ljóðabók Gyrðis Elíassonar, I DV síðasta dag maímánaðar, kom ekki fram rétt letur I einu ljóðinu. Þar með brengluðust tilvitnanir og kafli í dómnum varð markleysa. Hér á eftir fer kaflinn og ljóðið, vonandi í réttu samhengi: ,,Athugum nú annað ljóð, þar hcfi ég skáletrað orð úr yfirborðslegustu heimsmynd blaðanna (já, þxr eru jafnan fleiri en ein í sama blaði, eða heimsmyndin er á fleiri en einni hæð), en feitletrað orð úr veðurfræði. Gyrðir beitir hér tvíræðni, alkunna er að felli- byljir beri kvennanöfn: P glerkennd augu lognmolla brennidepill haustsól á niðurleið (geislasneitt ozonlag) tvær stúlkur haveacoceandasmile skilti fjallahringur azúrblár andstuttir bílar að hraða sér heim (fellibylurinn diana væntanlegur á leið sinni suðaustur til buckingham) mistur sem þéttist Eitthvað kann að orka tvímælis í þessum merkingum mínum, en það skiptir varla miklu. Sama gildir um túlkanir mfnar, þær geta vcrið um- deilanlegar, en ég vona að þær veki þá lesendur til andsvara! Aðalpersónan í þessu ljóði er nánast ósýnileg, það eru svo hversdagslegir, miðaldra menn, sem eru persónugerðir með líkingunni „andstuttir bílar”, af því að þeir em alltaf að flýta sér heim til sín, eða þá f vinnuna, allavega í rútínuna. Og yfir líf þessa fólks ryðjast auglýsingar og fréttir af kóngafólki, rétt eins og veðrið.” mm Nýjung í Iðnskólanum í Reykjavík: OLDUNGADEILD UTSKRIFAR NEMA í SETNINGU — eingöngu konur á f yrsta námskeiðinu „Nú erum við með sama próf og strákamir frammi,” sagöiFríða Björg Aðalsteinsdóttir setjari og benti fram í umbrotssalinn í prentsmiðju Frjálsrar fjölmiðlunar. Friða lauk nýlega prófi i setningu og umbroti frá öldungadeild Iðnskólans í Reykjavík. Með þessu prófi hefur hún lokið staðfestu rétt- indanámi og leyfi til að þreyta sveins- próf. Það voru 13 nemar á námskeiðinu, allt konur. Þær höfðu allar unnið i a.m.k. 6 ár við setningu á innskriftar- borð eða tölvuskerma. Þetta var fyrsta námskeið sinnar tegundar á vegum skólans, en ætlunin er að taka upp kennslu í prentiðn við öldungadeild Iðnskólans innan tíðar. Fríða sagði að hún og Vigdís Osk Sig- urjónsdóttir, sem einnig starfar hjá Frjálsri fjölmiðlun, hefðu reynt fyrir nokkrum árum að fá heimild til að taka sveinspróf með ráðherraundan- þágu eftir 10 ára starf, en þá hefði það ekki gengið. Nú væri þessum áfanga náð og væru þær vissulega ánægðar með það. Næsta skref væri að komast i umbrotið, sem þær tvær stefna hik- laustað. Hvað varðar stöðu kvenna innan Fé- lags bókagerðarmanna sagði Friða að þær væru enn sem komið er í meiri- hluta ófaglærðs fólks innan félagsins. Hún vonaðist þó til aö öldungadeildin og námskeið sem þetta myndu bæta þar úr. SJ. Vigdis Ósk Sigurjónsdóttir og Fríða Björg Aðalsteinsdóttir glaðar á svip við Ijósaborðið. DV-mynd GVA. Evrópskan eða japanskan? Mitsubishi, Suzuki, Daihatsu, Isuzu, Mazda, Nissan, Honda, Toyota . . . Þessi nöfn hafa valdið evrópskum bilaframleiðendum ótal andvökunótt- um. Hvernigeiga þeirað bregðastvið stöðugum tækninýjungum og útsjónarsemi Japananna? Hvernig geta Evrópumenn haldið sínum hlut, eða bætt um '"'WlTV betur? Eina leiðin til að standast þá feiknarlega hörðu samkeppni sem ríkir á bílamarkaðinum er að framleiða betri bíla en keppinautarnir. Það vita þeir hjá OPEL. Höfuðkostir evrópskra bíla eru góð hönnun, traustur öryggisbúnaður, mikil ending - auk góðra aksturseigin- leika. Hér eru evrópskir bílar taldir standa betur að vígi en aðrir. Þess vegna hafa þeir hjá OPEL lagt mikla rækt við þessa þætti. Þeir hafa einnig gert sér grein fyrir því að eitt veigamesta svarið við framgangi japönsku bllanna er að vanda ÖLL stig framleiðslunnar. Það hefur skilað sér. OPEL KADETT var kosinn bíll ársins 1985 af evrópskum blaðamönnum (og skaut þar mörgum „japönum" afturfyrir sig) og salan um allan heim hefur gengið frábærlega. Svarið við upphafsspurningunni er þvl ekki evrópskur, heldur OPEL! BILL ARSINS 1985 BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.