Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1985, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1985, Blaðsíða 32
FR ETTASKOTIÐ (68) *(78)*(58) Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gœtt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 25. JULI 1985. Kvennaráð- stefnuráfimm ára f resti? „Það er unnið að því að fá þjóðimar til að sameina tillögur svipaös efnis því það eru engar líkur á því að þær eitt hundrað og fimm ályktunartillögur sem fram eru komnar fái allar af- greiðslu,” sagði Guðríður Þorsteins- dóttir, formaður Jafnréttisráðs og einn íslensku fulltrúanna á Kvennaráð- stefnunni í Nairóbí. Sagði Guðríður að 372 greinar væru komnar fram sem ræða þyrfti í tveimur nefndum eða vísa til sérstakrar samninganefndar. A ráðstefnunni er mikið rætt um nán- ustu framtíð eða fram til aldamóta. Uppi hafa verið hugmyndir um að halda ráöstefnur sem þessa á fimm ára fresti, eins svæðaráöstefnur og ráðstefnu á aldamótaárinu. Aö sögn «*>Guöríðar hafa menn viljað biða með að taka ákvörðun um frekara ráðstefnu- hald þar til á síöari stigum eða undir lok þeirrar sem nú stendur yfir. Hún sagði að mikill vilji væri almennt fyrir því að leysa málin sem upp koma. Snarpar deilur urðu sl. mánudag, að hennar sögn, um stööu kvenna í Palest- ínu. Þeim deilum átti að vísa til samn- inganefndarinnar. Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í lok kvennaára- tugarinslýkur á föstudag. Fimm íslenskar konur skipa ís- ^lenskn sendinefndina, þær eru auk Guðríðar Sigríður A. Snævarr sendi- ráöunautur, formaður, María Péturs- dóttir, formaður Kvenfélagasambands Islands, Esther Guðmundsdóttir, for- maður Kvenréttindafélags Islands, Gerður Steinþórsdóttir cand mag og borgarfulltrúiíReykjavík. -ÞG Vestmannaeyjar: Eldur laus í íbúðarhúsi Eldur varð laus í ibúöarhúsi við Faxastíg í Vestmannaeyjum í gær- kvöldi. Kom eldurinn upp í risi hússins sem er þriggja hæða með tveimur “Ibúöum. I risinu eru aöeins geymslur. Ibúar á annarri hæð urðu varir við eldinn um hálfníuleytiö í gærkvöldi. Þá var eldur laus í risinu og barst reykur niöur á hæðirnar. Gekk greiðlega að slökkva eldinn. Talsverðar skemmdir urðu á risinu. Aö sögn lögreglunnar i Vestmannaeyjum urðu engar umtals- verðar skemmdir á íbúðunum. Eldsupptök eru ókunn. -EH. TALSTÖÐVARBÍLAR UM ALLA BORGINA SÍMI 68 50-60. ^OlBlLAsr ÞR0STUR SÍÐUMÚLA 10 LOKI Tölvan stendur fast á sínu! Sjö danskir sjó- iiiiiiiiilllllill liðar í fangelsi Sjö Danir voru handteknir í nótt og eru nú í vörslu lögreglunnar í Reykjavík. Eru þetta sjóliöar af danska skipinu Hvítabirninum sem liggur í höfn í Reykjavík. Tóku mennirnir sig til og veltu bifreið sem stóð við Þjórsárgötu í Skerja- firöiinníhúsagarð. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru mennimir mikið ölvaðir. Gerðist atburðurinn um þrjúleytið í nótt. Einhverjar skemmdir urðu á bílnum. Nokkuð bar á sjóliðunum af danska skipinu í borginni i nótt. Ekki er þó vitaö til þess aö fleiri hafi efnt tilvandræða. -EH. Kröfluvirkjun seld á morgun A morgun verður gengið frá sölu Kröfluvirkjunar. Fulltrúar ríkisvalds- ins og Landsvirkjunar munu undirrita samning þess efnis klukkan tvö • Sá samningur veröur siðan aö hijóta endanlega blessun Alþingis í vetur. „Eg er ánægður með þessi endalok. Þetta er það sem ég hef beitt mér fyrir. Eg tel enga skynsemi í öðru en að það sé samrekstur á þessum virkjunum,” sagði Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra við DV í morgun. -APH. Byssumaðurínn íslenskur: Skaut í reiðikasti Borgarfulltrúar i Reykjavik fjölmenntu i golf í gsar. Ekki er okkur kunnugt um úrslit en af tilburðum borgarstjóra má ráða að þar hafi miklir kylfingar verið á f erð. Myndina tók Sveinn á Grafarholtsvelli. Byssumaðurinn sem skaut á banda- ríska sendiráöið aðfaranótt sunnudags er fundinn. Er hér um að ræða 26 ára gamian Reykvíking, sem ekki hefur komið við sögu hjá lögreglunni áður. Málsatvik voru þau að maðurinn var aö koma úr ferð utan af landi. Knúöi hann dyra á starfsmannabústað bandaríska sendiráösins við Þingholts- stræti þar sem hann þekkti til. Þegar honum var meinuð innganga reiddist hann. Náði haiui þá i aðra af tveimur byssum, sem hann hafði meðferðis í bilnum sínum, og skaut úr henni í eld- húsglugga í starfsmannabústaðnum. Byssan sem um ræðir er hagiabyssa en einnig hafði maðurinn riffil n.eðferðis í bifreiðinni. Að sögn RLR er mál þetta að fullu upplýst. Var maöurinn yfirheyrður í gær en sleppt að yfirheyrslu lokinni. Maðurinnermeðbyssuleyfí. -EH. Hugsanleg sala Flugleiðabréfa til útlendinga: „LÍSTILLA Á ÞAÐ „Mér líst illa á, ef erlendiraðilar kaupa þessi bréf. Það þyrfti að athuga mjög vandlega áöur en af þvi yrði. Mér þætti mjög slæmt ef erlendir aðilar fengju svo sterk áhrif í fyrirtæki eins og Flugleiöum,” sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra í samtali við DV. Eins og kunnugt er eru hlutabréf í Flugleiðum og Eimskip til sölu. Eru þau seld á um tíföldu nafnverði, en það er sú niðurstaða sem sér- fræðingar Fjárfestingafélagsins komust að. Forsvarsmenn fyrirtækjanna tveggja hafa hins vegar sagt að þetta verösé alltof hátt' ^ — segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og þeir viti ekki um neinn sem kaupi á þessu verði. En Fjárfestinga- félagið ætlar að selja þessi bréf og þar hefur verið sagt að þau muni fara til erlendra aðila ef enginn innlendur aðili fæst. -KÞ loðnuverðið: Ekkert sam- komulag Fjögurra tíma fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins lauk í gærkvöldi án þess að samkomulag næðist um loðnuverð. Var ákvörðun um loðnuverð vísað til yfimefndar en oddamaður hennar er frá Þjóðhagsstofnun. Yfirnefnd er skipuð fimm mönnum, tveimur frá hvorum aðila, kaupendum og seljendnm, ásamt oddamanni. Eitt tilboð kom frá kaupendum á fundinum í gærkvöldi en því var haf nað. Akveöið var óuppsegjanlegt verð út vertíðina sem hefst nú um mánaöa- mótin og stendur út september. - þg . Tólf ára drengur í Gardi fær skattheimtuseðil f annaö sinn: SKULDIN ORÐIN 250 ÞUSUND Tóíf ára drengur úr Garðinum er að verða með skuldseigustu mönnum þar um slóðir, ef marka má skatt- heimtuseðil er honum barst nú á dögunum. Þar er stráksa tilkynnt að hann skuldí rúmar 250 þúsund krón- urí opinbergjöld. I janúar síðastliðnum komst stráksi á þann aldur að honum var úthlutaö nafnnúmeri. Skömmu síðar barst honum skattheimtuseðill, þar sem honum var tjáð að hann skuld- aði 221.699 krónur i opinber gjöld, sem féllu i gjalddaga 1. febrúar siöastliöinn og DV sagði fré. Faöir drengsins haföi samband viö bæjar- fógetann í Vestmannaeyjum, sem sent hafði álagningarseðilinn. Kom i ljós að drengnum haföi veriö út- hlutað nafnnúmeri nýlátins manns og af því stafaflí ruglingurinn. Var lofaö aö kippa þessu i lag. En nú fyrir nokkrum dögum endurtók sig sama sagan, nema nú hefur skuldin hækkað um 30 þúsund krónur. Er nú 251.341 króna og fellur ígjalddagal.ágúst. „Drottinn minn dýri. Er bamið enn að fá senda rukkun,” sagði Kristján Torfason, bæjarfógeti í Vestmannaeyjum, i samtali við DV. „Eg haföi samband viö ríkisböc- haldið þama i febrúar og þar var lofað að kippa þessu i lag þannig aö drengurinn eða skuldin fengi nýtt nafnnúmer. Eg vissi ekki annað en að málið væri úr sögunni. Viö hér i embættunum úti á landi höfum ekki sjálfir tök á að laga svona rugling. Þetta er nú orðið hálfháðulegt. Eg verð að gera nýja atlögu til að fá málíð úr sögunm,” sagöi Kristján. „Maður er orðinn hálfþreyttur á þessu," sagði faðir drengsins, Valur Kristinsson. „Þetta er búið aö kosta ófá simtöl og ekki viröist hægt aö fá leiöréttingu á þessu. Þessi vitleysa viröist ætla aö ganga endalaust” Og á meöan smyrja tölvur rikis- bókhaldsins dráttarvöxtum á skuld- ina, sera i upphafi var 82.084 krónur. -KÞ. ▼ :nnhi.vtum»cjr Hkissjóos SKATTSTJÓKi Þinggjalda- og alagningarseðill 1985 JANIEL ÞOR VALSSON 15 73 - 56 43 28.02.73 VESTNANNAEYJAR 8000 VI 0 EYJAHOLT 14 250 GAROUR GERÐAhREPPUR 2504 E O 0.» :. ... .i.-,,, . 8.JULI 1985 > 82.084 169.257 251.341 i i O r C'm-h »•»«*»'■» t.f. r 251.341 c .251.341 I 4 * i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.