Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1986, Blaðsíða 23
DV. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1986.
23
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„Hef ekki enn gert upp við
mig hvaða spjót ég vel“
- segir Einar Vilhjálmsson. Möguleiki á að hann keppi í Kalifomíu um helgina
Svo gæti farið að Einar Vilhjálms-
son spjótkastari keppti í sinu fyrsta
móti með nýja spjótinu um næstu
helgi. Einar hefur fengið boð um að
keppa á móti í Kaliforníu þar sem
meðal keppenda verður Tom Petran-
off frá Bandaríkjunum.
„Ég hef fengið nokkuð mörg tilboð
um að keppa á mótum en ég hafði
hugsað mér að byrja ekki fyrr en í
júní. Ég er að velta því fyrir mér að
taka boðinu um að keppa í Kaliforn-
iu 25. þessa mánaðar en hef ekki
gefið ákveðið svar. Ég er ekki fastur
nemandi í háskóla hér þannig að ég
er ekki skuldbundinn til að keppa á
mótum háskólanna. Þá hef ég verið
að prófa nýjar tegundir af spjótum
og hef ekki enn gert það upp við mig
hvaða gerð ég vel“.
Heldurðu að þú náir að halda þér í
heimsklassa með nýja spjótinu? „Það
er að sjálfsögðu ekki komin nein
reynsla á það. Ég mæli ekki köst
• Einar Vilhjálmsson.
mín á æfingum en hins vegar hef ég
náð að kasta nær því eins langt með
nýja spjótinu eins og því gamla án
atrennu eða um 60 metra. Atrennan
skiptir allt að þrjátíu metrum með
gamla spjótinu en maður getur talist
góður ef hún nær að skipta tuttugu
metrum með því nýja vegna þess hve
það svífur lítið. Sumir kastarar hafa
átt í miklu basli með nýja spjótið og
má þar nefna Tom Petranoff. Hann
kastaði gamla spjótinu tæpa 100
metra en hefur aðeins náð að kasta
því nýja tæplega sjötíu metra. Petr-
anoff hefur neitað tilboðum um að
keppa á mótum til þessa vegna þess
að hann er að reyna nýjar gerðir".
Hver heldur þú að verði toppárang-
ur í ár?.
„Keppnistímabilið er ekki hafið í
Evrópu svo erfitt er að segja hvað
menn ná að kasta spjótinu langt. Ég
hef þó þá trú að árangur Sigurðar
Einarssonar muni verða ofarlega á
afrekaskránni."
Hefur þú sett þér eitthvert markmið
fyrir sumarið?
„Aðalmálið hjá mér er Evrópu-
meistaramótið - að ná góðu sæti
þar. Ég er ekki með neina metra-
lengd i huganum og ég á eftir að
reyna ný spjót frá sænska fyrirtæk-
inu Saridvik. Ég vonast til með að
verða kominn í gott form í júní. Ár-
angur minn þá mun segja til um
hvar ég mun standa," sagði Einar.
Þess má geta að ekki mun verða
keppt í spjótkasti á Grand Prix frjáls-
íþróttamótunum í ár. Keppt var í
tveimur kastgreinanna á mótunum í
fyrra, spjótkasti og kringlukasti, og
i ár verður keppt í kúluvarpi og
sleggjukasti.
-fros
Oxford vann óvæntan stór-
sigur á OPR í úrslitaleiknum
Staðan í
Þýskalandi
Staðan í Bundesligunni í V-Þýska-
landi eftir lcikina á laugardag.
Werder
Bayern M.
Gladbach
Stuttgart
Uerdingen
Hamburger
Leverkrusen
Mannheim
Bochum
Schalke
Frankfurt —
Nurnberg
Dusseldorf
Kaiserslautern
Köln
Dortmund
Saarbrúcken
Hannover
32 20
32 20
32 15
32 16
30 16
32 16
32 14
32 11
32 13
32 11
31 7
32 11
32 10
32 8
32 8
32 9
32 5
31 5
82-39 48
76-31 46
64—43 42
66-42 39
54-56 38
51-33 37
59-48 37
40-41 32
53-54 30
50-55 28
i 34-44 28
48-52 27
- 50-72 27
42-54 26
42-58 26
I 44-63 25
í 36-61 19
I 41-86 17
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
ritara DV í London.
Það er ekki hægt að segja annað
en að litla félagið Oxford hafi komið
á óvart með stórgóðum leik ó Wemb-
ley í gær. Liðið hafði ekki náð sigri
í átta síðustu leikjum sínum og er í
fallsæti í deildinni. Þrátt fyrir þetta
sýndu leikmenn liðsins mjög góðan
leik og hefðu allt eins getað unnið
stærri sigur.
Leikmenn Oxford nóðu þegar í
upphafi góðum tökum á leiknum og
þrátt fyrir að vera að spila þar í
fyrsta sinn nýttu þeir sér vel breidd
vallarins. Fyrsta markverða atvik
leiksins varð þegar Trevor Hebberd,
besti maður leiksins, sendi góða
sendingu inn á John Aldridge sem
var skellt. Vildu margir fá viti en
dómarinn lét leikinn halda áfram og
kom síðar í ljós þegar atvikið var
sýnt í sjónvarpinu að þetta var hár-
réttur dómur. Eftir þetta tóku
leikmenn Oxford leikinn í sínar
hendur og sóttu stíft. Fyrsta markið
kom ó fertugustu mínútu þegar
Aldridge sendi boltann á Hebbden
sem sneri sig frá varnarmanni og
skaut í nærhornið framhjá Barron í
marki QPR.
Seinni hólfleikurinn var mjög vel
leikinn hjá Oxford og leið ekki á
löngu þar til það bætti öðru marki
við. Kom það á 53. mínútu. Charles
sendi glæsilega sendingu inn á Hebb-
den sem brunaði upp að markinu og
gaf boltann á Houghton sem átti
ekki í vandræðum með að senda
hann i netið. Var þetta rothöggið
fyrir QPR. Skömmu síðar átti
Áldridge að bæta við marki en hann
hitti ekki boltann fyrir opnu mark-
inu. Síðasta mark Oxford kom síðan
ó 86. mínútu þegar Aldridge átti
hörkuskot ó markið sem Barron
varði vel en hann hélt ekki boltanum
og Jeremy Charles renndi boltanum
í netið.
„Hissa á því hve vel
við lékum“
Á blaðamannafundi eftir leikinn
var Morris Evans framkvæmdastjóri
Oxford í sjöunda himni. „Ég er mjög
hissa á því hve vel við lékum því við
höfum ekki leikið svona vel í deild-
inni hingað til. Tvö fyrstu mörkin
hefðu ekki getað komið á betri tíma
og eftir að við höfðum róað leikinn
éftir annað markið var aldrei spurn-
ing um hver myndi vinna,“ sagði
Evans. Athygli vakti að Evans fór
ekki upp að taka við verðlaununum
heldur sendi hann hinn 72 ára gamla
þjálfara Oxford, Ken Fish, til að taka
við þeim.
-SMJ
NM nilta í handknattteik:
Tobbi bestur
á vellinum
- er Saab tapaði í bikam-
um fýrir Drott
Fró Gunnlaugi Jónssyni, fréttaritara
DV í Svíþjóð:
Þorbergur Aðalsteinsson var álit-
inn besti maður vallarins er lið hans,
Saab, lék tapaði gegn Drott í undan-
úrslitum sænska bikarsins fyrir
helgi, 19-17. Leikið var ó heimavelli
Drott.
Með ósigrinum er Saab fallið út
úr bikarkeppninni og keppnistíma-
bilið því á enda hjó leikmönnum
liðsins. Þorbergur, sem skoraði níu
mörk í leiknum, ætti þó að geta unað
vel við við árangur sinn. hann
tryggði Saab sæti í Allsvensken sem
hefst í september.
-fros
Island í 3. sæti
Frá Gauta Grétarssyni, fréttaritara
DV á NM.
Norðurlandamót pilta, 19 ára og
yngri, fór fram um helgina í Dan-
mörku. Fyrsti leikur okkar var við
Svía á föstudaginn og tapaðist sá
leikur með 8 marka mun, 27-19, en
Svíar reyndust vera með yfirburðalið
ó mótinu. Þeir Ólafur Kristjánsson
og Hafsteinn Bragason voru marka-
hæstir í þessum leik með 4 mörk
hvor.
Á laugardagsmorguninn var leikið
við Norðmenn og tapaðist sá leikur,
25-23, eftir að Island hafði verið yfir
mestan tímann. í þeim leik skoraði
Konráð H. Ólafsson 5 mörk og Einar
Einarsson og Bjarki Sigurðsson 4. I
þessum leik leit lengi vel út fyrir sig-
ur íslands en þegar staðan var 16-13
fyrir ísland var þremur Islendingum
vikið af leikvelli og skoruðu þá
Norðmenn 5 mörk í röð. Síðar sama
dag vannst síðan stórsigur á Græn-
lendingum, 44-17, en Grænlendingar
voru nú með í fyrsta skipti. I þessum
leik skoruðu Konráð og Stefán
Kristjánsson 9 mörk hvor.
Á sunnudaginn vannst síðan sætur
sigur á Dönum, 21 17, eftir að staðan
í hálfleik var 12-9 okkar piltum í
vil. I þessum leik var það fyrst og
fremst góð markvarsla og varnar-
leikur sem skóp sigurinn. Marka-
hæstir voru þeir Halldór Ingólfsson
með 7 mörk og Bjarki Sigurðsson
með 4. Þeir Konráð og Stefán skor-
uðu 3 mörk hvor í þessum leik.
I síðasta leik sínum sigruðu strók-
arnir Færeyinga og tryggðu sér þar
með þriðja sætið. Leikurinn vannst,
29-19, og var Konráð markahæstur
með 7 mörk en Bjarki skoraði 5.
Svíar unnu mótið en Norðmenn
urðu í öðru sæti. Með smáheppni
hefðu okkar strákar getað náð öðru
sætinu. Ströng dómgæsla í mótinu
kom á óvart og varð íslenska liðið
sérstaklega fyrir barðinu á henni.
-SMJ
Hearts færist
nær titlinum
Hearts færist nær titlinum í skosku
knattspyrnunni. I gær gerði liðið
jafntefli við Aberdeen í Edinborg.
Hearts hefur nú 48 stig og þarf tvö
stig úr tveimur siðustu umferðunum
til að hljóta skoska meistaratitilinn
i fyrsta sinn síðan 1960.
hsím
• Ubaldo Fillol, - ekki í HM-
Ihópnum.
HM-lió Argentinu:
Fillol var
ekki valinn
„Það má mikið ske ef ég breyti
þessum hópi fyrir HM-keppn-
ina,“ sagði Carlos Bilardo, lands-
liðsþjálfari Argentínu í knatt-
spyrnunni, i Buenos Aires á
laugardag þegar hann tilkynnti
landsliðshóp sinn fyrir landsleiki
við Norðmenn í Osló 30. maí og
ísrael í Tel Aviv 4. maí. Mest kom
á óvart að hann valdi ekki Ubaldo
Fillol markvörð sem var einn
besti leikmaður Argentínu í sigr-
inum á HM 1978 og einnig mjög
snjall 1982. Fillol er nú 36 ára og
leikur með Atletico Madrid á
Spáni.
í hópnum eru þessir leikmenn
og þó væntanlega leikmenn Arg-
entínu á HM í Mexíkó. Markverð-
ir: Nery Pumpido, Luis Islas og
Hector Miguel Zelada. Varnar-
menn: Jose Brown, Jose Cuc-
iuffo, Nestor Clausen, Oscar
Garre, Oscar Ruggert og Daniel
I Passarella. Framverðir: Julio OI-
articoechea, Sergio Batista,
i Ricardo Bochini, Ricardo Giusti,
Jorge Burruchaga, Diego Mara-
dona, Marcelo Trobbiani, Hector
Enrique og Carlos Tapia. Fram-
herjar: Jorge Valdano, Sergio
Almiron, Pedro Pasculli og
I Claudio Borghi.
hsim
Stórir sigrar
í Litla
bikamum
Keppnin í Litlu bikarkeppninni
er nú hálftiuð og er keppnin jöfn
og spennandi. Úrslit í ieikjum
hingað til eru sem hér segir: ÍB-
K -UBK 2-2, ÍA-Haukar 7-0 og
UBK-FH 1-1. Og á laugardaginn
voru úrslit sem hér segir: Hauk-
ar-ÍBK 0-3 og UBK-ÍA 1-1.
Þeir leikir, sem eftir eru, verða
sem hér segir: Sunnudaginn 27/4
leika FH-Haukar og IA-ÍBK en
laugardaginn 3/5 leika ÍBK-FH
og Haukar-UBK. Hvenær leikur
FH og IA fer fram hefur ekki enn
verið ókveðið. -Róbert
Góður mara-
þontími í
Rotterdam
Eþíópíumaðurinn Belannyenh
Densimo nóði ógætum tíma þeg-
ar hann sigraði í Rotterdam-
maraþonhlaupinu i gær. Hljóp
vegalengdina á tveimur klst., níu
min. og níu sekúndum. Annar
varð Daninn Allan Zachariassen
á 2:11,56. 1 þriðja sæti varð Cor
Lambregts, Hollandi, á 2:12,57.
Fjórði Jean-Pierre Peumen,
Belgiu, á 2:13,12 og fimmti John
Graham, Bretlandi, á 2:13,42.
Þátttaka í hlaupinu var mjög
mikil að venju.
-hsim