Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 16
16 DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986. Spurningin Hver eru helstu áhuga-' mál þín? in spurning, handbolti og fótbolti. Ég æfi hvort tveggja. Aðalsteinn Einarsson, starfs- maður Marels: Söngur, og þá helst einsöngur. Ég ætla að læra það næsta vetur. Axel Clausen verkamaður: Ég er áhugasamur um popptónlist, já og kvenfóik líka. Lilja Laxdal skrifstofumaður: Það er svo margt. Sund, ferðalög, skíði og svo að sjálfsögðu vinnan. Finnur Kristinsson nemi: Skák og fótbolti. Ég geri lítið annað en að iðka þetta. Guðveig Hrólfsdóttir, starfsmað- ur Skálatúns: Ég hef ýmis áhuga- mál, til dæmis tónlist og elda- mennsku. Lesendur Lesendur Lesendur Meingallað miðasolukerfi Hildur Gunnlaugsdóttir skrifar: Mig langar að vekja athygli á ein- kennilegu fyrirkomulagi varðandi aðgöngumiða að popptónleikum Listahátíðar. Aðgöngumiðinn er einnota armband sem tónleikagestir skulu bera á úlnlið. Eftir að arm- bandinu hefur verið lokað er ekki hægt að rjúfa innsiglið án þess að þar með sé aðgöngumiðinn ónýtur. Dóttir mín festi kaup á einu slíku armbandi en ekki tókst betur til en svo að fyrir klaufaskap var arm- bandinu lokað og það svo þröngt að ekki er nokkur leið að hún komi því upp á höndina. Armbönd þessi eru með nokkuð mörgum götum þarrnig að unnt sé að festa þau mátulega þröngt á handlegg eigandans. Til- gangurinn með þessu fyrirkomulagi mun vera að koma í veg fyrir að fólk skiptist á um að nota aðgöngu- miða. Ekki taldi ég þetta óhapp alvarlegs eðlis þar sem tæp vika var til stefhu og fórum við mæðgur í miðasölu Listahátíðar til að fá annan miða í stað þess ónýta. Þar reyndist enga fyrirgreiðslu að fá. Okkur var bent á að semja við dyraverði um nýjan miða ef ekki yrði uppselt á tónleik- ana en þvemeitað um nýjan miða á þeirri forsendu að ekki væm til fleiri aimbönd en sem svaraði nákvæm- lega þeim fjölda sem mætti selja inn í Laugardalshöllina, armbönd þessi væm þar að auki framleidd í Banda- ríkjunum og útilokað að nálgast fleiri. Meðan við stöldmðum við í miða- sölunni var verið að selja fólki svona miða og lagt ríkt á við það að gæta þess að loka þeim ekki, jafhvel gætu tvö armbönd læst saman. Vandi okk- ar virtist sem sé ekki einsdæmi. Heldur þykir okkur nú illt í efhi. Verði til miðar, þegar tónleikamir heflast, verða þeir vafalaust seldir við innganginn og ekki veit ég hve- nær kvöldsins hætt verður að seha inn og þeir óheppnu fá áheym. Ég tel ólíklegt að dóttir mín sé sú eina sem svona fer fyrir og hart að þurfa að kaupa nýjan miða eða verða af gamninu ella. Annað mál er svo hvort dyravörðum er ætlað að ganga úr skugga um að þeir sem koma á tónleikana með armbönd sín um úln- liðinn hafi fest þau svo þröngt að tryggt sé að ekki megi smeygja þeim fram af og lána næsta manni. Fróð- legt gæti orðið að fylgjast með því. í bæklingi, sem afhentm* var með armbandinu, er fólki bent á að festa á sig armböndin sama dag og tón- leikamir verða haldnir þannig að ekki virðist gert ráð fyrir að at- höfnin fari fram í viðurvist starfs- manna. Þetta fyrirkomulag sýnist mér með eindæmum klúðurslegt og á bágt með að átta mig á hverra hagsmunir em hafðir i huga. Ég get ekki séð að með þessu sé komið í veg fyrir að miðamir séu misnotaðir og óþæg- indi og fjárútlát blasa við hinum óheppnu. Þetta hefði eiphvem tíma verið kallað að gera einfalda hluti flókna. Öll vandamál leyst Á skrifstofu Listahátíðar fengust þau svör að fleiri vandamál sem þessi hefðu komið upp varðandi böndin. Ástæðan fyrir að fólk fengi böndun- um ekki skipt væri sú að við það ruglaðist tala seldra miða. Hins veg- ar yrðu öll mál sem þessi leyst sama dag og hljómleikamir fæm fram eða við innganginn. Ennfremur var tek- ið fram að þessi svokölluðu armbönd væm notuð á öllum sambærilegum festivölum erlendis enda væri þetta mun hentugra fyxir alla aðila heldur en hefðbundnir miðar. Nægilegt eftir- lit með Barna- vemdamefnd? Hrafnhildur Guðmundsdóttir skrifar: Síðan 29. janúar 1986 hef ég, einstæð móðir, staðið í miklu þvargi við nefnd sem á að heita Bamavemdamefnd. Þannig er að ég er talin alkóhólisti (ein af hundruðum íslendinga sem eiga böm og eiga við áfengisvandamál að etja) og hef vegna dóttur minnar átt nokkuð saman við Bamavemdar- nefiid að sælda. Dóttir mín hefur verið tekin frá mér. Mér finnst sem gramsað hafi verið á mjög óvirðulegan hátt í einkamálum mínum. Þegar verið er að svipta mann lágmarksmannréttind- um getur maður ekki orða bundist. Þessi valdamikla nefhd (skipuð af Bamavemdaráði) hefur meira að segja komið með tillögur um að ég verði send í geðrannsókn. Sem móðir stend ég ráðþrota gagn- vart valdi þessarar nefhdar. Mér finnst sem verið sé að bijóta mig skipulega niður. Nefndin hefur öll mín ráð í hendi sér. Þetta bréf mitt er hróp á hjálp. Það eina sem ég þrái og vil er að fá dóttur mína aftur til mín. Og það sem hún þráir mest af öllu er að kom- ast heim til mömmu sinnar. Er því forsvaranlegt að slíta bamið burt frá móður sinni? Orðsending til ráðherra Jóhann Þórólfsson skrifar: Mig langar að koma á framfæri hér smákveðju til ráðherranna. Þið biðjið fólk oft um í fjölmiðlum að spara. Þið ættuð að líta ykkur nær og spara í ríkisrekstrinum. Það eina sem þið hafið gert er að ráðast á lægst launaða fólkið. í því sambandi má benda á að þið hafið allir 10 bílstjóra á fúllu kaupi, þó svo að þið séuð sjálfir með bílpróf. Þar að auki eruð þið með 2 menn á föstum launum við að opna og loka fyrir ykkur þinghúsdyrunum Hvemig er þetta þegar þið komið heim? Eru þá dymar opnaðar fyrir ykkur sérstaklega? Nei, ömgglega ekki. Það em ekki þjóðhollir fulltrúar þjóðarinnar sem viima svona. Þó vil ég hér undanskilja Ragnhildi Helgadóttur sem ég veit að er þjóð- hollur fulltrúi. En á hina skora ég að venda nú sínu kvæði í kross og spara fyrir ríkið. Engin hjálpartæki, takk Inga, 13 ára, hringdi: Eg fékk um daginn bréf í póstkröfu frá einhverjum G. Ásmundssyni. Ég aflaði mér upplýsinga um hver þetta væri og þá kom í ljós að bréf þetta var listi um hjálpartæki ástarlífsins. Mér varð hverft við vegna þess að ég hafði pkki pantað r>eipn ,list|i. ,, , Ég veit um fleiri stelpur á mínum aldri sem hafa fengið svona í pósti. Þetta hlýtur að vera klikkaður maður að reyna koma öðm eins upp á krakka. Ég vil ekki sjá svona lista og hef því ekki náð í þessa póstkröfu þrátt fyrir ítrekanir. Þrælgóðir Hótelþættir Ásta og Ragnheiður, 14 ára, skrifa: Ekki skiljum við í sumu fólki. Það skrifaði einhver í DV um daginn að sér fyndist Hótel vera lélegir þættir. Það finnst okkur alls ekki og við vitum um marga fleiri sem finnast þessi þætt> ir góðir. Af hveiju má ekki einhvem tímann sýna það sem fólki finnst skemmtilegt? Þarf alltaf að vera eitthvað listrænt í sjónvapinu. Hótelþættimir em mjög vel leiknir og leikaramir sumir æðis- lega sætir. Við hvetjum sjónvarpið eindregið til að sýna þessá þætti áfram. Ásta op Ragnheiður eru rniög ánægðar með þættina Hótel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.