Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 17
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986. 17 Lesendur Lesendur Lesendur Ámi var ánægður með tónleika Hancocks hér á landi Takk fyrir Herbie Hancock Árni hringdi: Ég vil koma á framfæri þakklæti fyrir tónleika Herbie Hancock á lista- hátíð. Ég hef verið aðdáandi Hancock í mörg ár og þetta var einstakt tæki- færi til að hitta hann fyrir einan á píanóið. Slíkt er mjög sjaldgæft. Ég hef heyrt kvartað undan hús- næðinu sem tónleikamir voru í og ég vil taka undir það að nokkru leyti. Þó vil ég líka benda á að ekkert betra. húsnæði er hægt að fá í Reykjavík og reyndar á öllu landinu. Þess vegna eigum við að vera þakklát fyrir að meistari eins og Hancock vilji yfir höfuð koma og spila fyrir okkirr hér uppi á klaka. Það sýnir best að tónlist- ih á engin landamæri. Ég vil þakka listamanninum og ekki síst þeim sem stóðu að komu hans hingað fyrir frá- bæra tónleika. Korsöngur eða sokkabandssýningar Margrét Pálmadóttir kórstjóri skrifar: Það hlýtur að teljast eðlilegt, nú sem áður, að ungviðið kreíjist athygli hinna fullorðnu í uppvextinum. Vald hinna eldri er því meira en þá grunar hvað varðar val þeirra yngri til allra athafna. Markaðsstefhan hefur sett svip sinn á kórstarf eins og annað í þjóðfélag- inu. Þar sem eftirspum á þriggja til sex radda þjóðlögum, sungnum af ynd- islegum krökkum og unglingum, er hverfandi er ekki von að krakkamir gefi sig að slíku. Skaðinn er sá að menning sem þessi hverfur. Braskarar og knattspymumenn þjóðarandans treysta á þolinmæði velunnara gam- alla heföa og vita að þeir láta nú ekki menningarperlumar týnast í ólgusjó gæðakapphlaupsins. Ég ólst upp við að ákveðin viiðing væri borin fyrir því að maður gæti fjöl- raddað íslensk þjóðlög og sungið í fimmundum tólf ára gamall. Þessa virðingu var meðal annars að finna hjá ráðamönnum og ég man ekki bet- ur en að fimmtán ára hafi ég sungið með kór Öldutúnsskóla á fagnaði al- þingsmanna á Hótel Sögu. Kannski var það vegna áhrifa Gylfa Þ.? Launin vom svo þau að góðir kórar fengu styrki annað slagið til utanlandsferða og var heldur annar bragur yfir ís- lensku bömunum en maðm- hefur séð hjá landanum víða á sólarströndum. Ég efast ekki um að mikið er kvabb- að á menntamálaráðuneytinu. En ég vil benda menntamálaráðherra á að gefa sér aðeins meiri tíma til að leggja mat á þjóðfélag sitt og menningu þess. Það hefur einhverju hnignað þegar almenningur velur frekar að gæjast á ber læri í gegnum svört sokkabönd en að hlýða á góðan söng frábærra krakka. BLÖNDUÓSHREPPUR - SVEITARSTJÓRI Starf sveitarstjóra á Blönduósi er laust til umsól<nar, í boði eru góð laun, góð vinnuaðstaða, og starfinu fylgir nýtt einbýlishús. Upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri í síma 95-4181 á skrifstofutíma eða heima í síma 95-4413. Umsóknir, þar sem fram koma upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf, berist skrifstofu Blönduós- hrepps fyrir fimmtudag 26. júní 1986. Sveitarstjóri Blönduóshrepps. FJÖLBRAITTASKÚUNH BREIÐHOUl Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Auglýstar hafa verið til umsóknar eftirtaldar kennara- stöður við skólann: Tvær stöður í hjúkrunarfræðum, ein staða í eðlis- fræði, ein staða í félagsfræði, ein staða í málmiðnum og enn fremur hálfar stöður í bókmenntum, efnafræði og rafmagnsfræðum. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Skólameistari verður til viðtals í sambandi við stöður þessar á skrifstofu sinni dagana 18., 19. og 20. júní kl. 10.00-12.00 árdegis. Skólameistari. SENDUM I PÓSTKRÖFU Opið daglega kl. 10-18, föstudaga kl. 10-19, laugardaga kl. 10-16, sunnudaga lokað. Smiðjuvegi 4e, c-götu á horni Skemmuvegar. Símar 79866 og 79494. HVAR ENDAR ÞETTA! Þeir kröfuhörðustu velja AUDIOLINE í bílinn Enn og aftur getur Sjónvarpsmiðstöðin boðið ótrúlega lágt verð vegna mjög hagstæðra samninga við verksmiöjur. AUÐÍOUNE AOTp' KíVfRSÉ; Wi<«f f éítKt •Átikwt'j k'W <wan v. w áðós'rC^-- asv ■ úö -»()¥, AT-44 kr. 3.760,- AL—429 kr. 6.490,- AL-405 kr. 9.225,- AL-416 kr. 14.650,- Sjónvarpsmiðstöðin hf. Síðumúla 2 — slmi 39090

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.