Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1987, Page 22
22
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987.
Stjómmál
A-listi Alþýðuflokksins:
1 .Árni Gunnarsson,
ritstjóri, Ásenda 13, Reykjavík.
2.Sigurbjörn Gunnarsson,
verslunarmaður, Dalsgerði 2C, Akur-
eyri.
3.Hreinn Pálsson,
bæjarlögmaður, Heiðarlundi 5D, Ak-
ureyri.
Á.Arnór Benónýsson,
leikari frá Hömrum, Víðimel 44,
Reykjavík.
B-listi Framsóknarflokksins:
LGuðmundur Bjarnason,
alþingismaður, Húsavík.
2. Valgerður Sverrisdóttir,
húsmóðir, Lómatjörn.
3. Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
bóndi, Öngulsstöðum.
4. Póra Hjaltadóttir,
form. Alþýðus. Norðurl., Akureyri.
D-listi Sjálfstæðisflokksins:
1 Halldór Blöndal,
alþingismaður, Tjarnarlundi 13 k,
Akureyri.
2. Björn Dagbjartsson,
alþingismaður, Álftagerói, Reykja-
hlið.
3. Tómas Ingi Olrich,
menntask.kennari, Álfabyggð 20,
Akureyri.
4. Vigfús B. Jónsson,
bóndi, Laxamýri, Suður-Þing., Húsa-
vík.
G-listi Alþýðubandaiagsins:
1 .Steingrímur J. Sigfússon,
alþingismaður, Þistilfirði.
2.Svanfríður Jónasdóttir,
kennari, Sognstúni 4, Dalvík.
3.Sigríður Stefánsdóttir,
bæjarfulltrúi, Vanabyggð 10 C, Akur-
eyri.
4.Björn Valur Gíslason,
stýrimaður, Bylgjubyggð 1, Ólafsfirði.
J—Iisti Samtaka um jafnrétti
og félagshyggju:
1 Stefán Valgeirsson,
alþingismaður, Auðbrekku, Hörgárd-
al.
2. Pétur Þórarinsson,
sóknarprestur, Möðruvöllum, Hörg-
árdal.
3. Auður Eiríksdóttir,
Oddviti, Hleiðargarði, Eyjafirði.
4. Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri, Langanesvegi 35,
Þórshöfn.
M—listi Flokks mannsins:
LRagnheiður Siguróardóttir,
tölvunarfræðingur, Akureyri.
2. Melkorka Freysteinsdóttir,
bankastarfsm., Reykjavík.
3. Friðrik Einarsson,
nemi, Akureyri.
4. Hrafnkell Valdimarsson,
verkamaður, Dalvík.
S—listí Borgaraflokksins:
LGuðmundur E. Lárusson,
deildarstjóri, Ránargötu 17, Akureyri.
2. Valgerður N. Sveinsdóttir,
kaupmaður, Möðruvallarstræti 2, Ak-
ureyri.
3. Héðinn Sverrisson,
húsasmíðameistari, Geiteyjarströnd,
Mývatnssveit.
4. Gunnar Frímannsson,
rafvirkjameistari, Arnasíðu 12 A, Ak-
ureyri.
V—listi Samtaka um kvenna-
lista:
LMálmfríður Sigurðardóttir,
Jaðri, Reykjadal.
2. Jóhanna Þorsteinsdóttir,
Þórunnarstræti 89, Akureyri.
3. Jóhanna Rögnvaldsdóttir,
Stóru-Völlum, Bárðardal.
4. Edda H. Björnsdóttir,
Aðalbraut 24, Raufarhöfn.
Þ-listi Þjóöarflokksins:
LPétur Valdimarsson,
tæknifr., Þrastalundi, Akureyri.
2.Anna Helgadónir,
kennari, Duggugerði 2, Kópaskeri.
3.Sigurður Jónsson,
byggingafr., Þórunnarstræti 112, Ak-
ureyri.
4.Margrét Bóasdóttir,
söngkona, Grenjaðarstað, S-Þing.
DV á framboðsfundi á Þórshöfn:
„Steingrímur J. fari
á kvennaklósettið"
„Ósköp yrði hjónalífið snautt ef við
reyndum ekki að krydda það með alls
kyns uppákomum." „Eru það kjafts-
högg sem eiga að ráða í þessu þjóð-
félagi?" „Mikið skelfing hefur hann
Steingrímur Hermannsson oft verið
plataður." „Þegar ég hef hlustað á orð
sumra héma dettur mér í hug máltæk-
ið það veit hundur hvað étið hefur.“
„Aumingja ljósmyndarinn sem Albert
grisjaði tennumar í.“ „Ég held að það
væri rétt fyrir þær konur, sem áðan
töluðu um getnaðarvamir, að falla
alveg frá þeim, þá færi okkur kannski
að fjölga aftur." „Við höfum ekki millj-
ónir til að kaupa rauðar rósir." „Við
viljum banna fjárlagahalla." „Alþing-
ismenn tóku við miklu meiri launa-
hækkunum en fólkið í landmu.“ „Hvar
er góðærið? Það er ekki í vösunum
okkar.“ „Ég mælist til þess að Stein-
grímur J. Sigfússon fári á kvennakló-
settið á næsta fundi.“
Þrátt fyrir þessar eldfjömgu setning-
ar. sem flugu á sameiginlegum fram-
boðsfúndi flokkanna á Þórshöfn
síðastliðið þriðjudagskvöld, snerist
fundurinn fyrst og fremst um byggða-
mál, fólksflóttann til Reykjavíkur og
hversu landsbyggðin væri útundan í
fjármagni og almennri þjónustu.
Byggðamál hafa sennilega aldrei fyrr
verið sett jafnhressilega á oddinn af
öllum flokkum.
Fundarstjórinn vopnlaus
Fundurinn á Þórshöfn hófst rúmlega
átta um kvöldið og stóð til að verða
hálfeitt um nóttina. Rúmlega hundrað
Þórshafiiarbúar mættu. Fimm mínút-
um fyrir átta leit reyndar út fyrir að
frambjóðendur yrðu fleiri en áhorfend-
ur. En fólkið streymdi inn. Fundar-
stjórinn hafði á orði að hann væri
vopnlaus, hann hefði ekki einu sinni
fundarhamar.
Það var Málmfríður Sigurðar-
dóttir kvennalistakona sem fyrst fór
í púltið en til gamans má geta að það
var feikistórt og smíðað úr vatnsheld-
um krossviði. Málmfiíður sneri sér
röggsöm beint að stöðu fjölskyldunnar
í þjóðfélaginu.
„Láglaunastefna ríkisstjómarinnar
er aðför að ríkisstjóminni," sagði
Málmfríður. „Mikil vinna er að leggja
fjölskyldumar i rúst. Það er mótsögn
í viðhorfi til bama. Þegar þau eru
fædd er þjóðfélagið þeim fjandsam-
legt.“
Forréttindi ríkra að vera með
börnum sínum
Málmfiíður sagði að sér yrði tíðrætt
um fjölskylduna. „Það er verið að stía
bömum og foreldrum í sundur. Fjöl-
skyldan sem homsteinn þjóðfélagsins
er í hættu. Það em forréttindi jreirra
ríku að fá að vera með bömum sínum
heima.“
„Gerum viðhorf kvenna að stefnu-
mótandi afli í þjóðfélaginu," sagði
Málmfríður. „Bætt staða kvenna skil-
ar sér í réttlátara þjóðfélagi."
Jóhanna Rögnvaldsdóttir
kvennalistakona tók næst til máls.
„Sjónarmið landsbyggðarinnar hafa
orðið út undan. Laun em um 8 pró-
sent hærri að meðaltali í Reykjavík
en úti á landsbyggðinni sem þó útveg-
ar allan gjaldeyrinn.“
Jóhanna Þorsteinsdóttir kvenna-
listakona kom næst og ræddi um að
auka þyrfti þjónustuna í heilbrigðis-
málum og málefiium aldraðra „en hjá
öldmðum ríkir neyðarástand.
Það þarf að auka fræðsluna í skólum
um kynlíf, kynsjúkdóma, getnaðar-
vamir og bameignir. Þá er áberandi
á íslandi hve slys á bömum em al-
Yfir hundrað Þórshafnarbúar mættu á fundinn og fylgdust með af áhuga. Fundurinn hófst klukkan átta og lauk
honum ekki fyrr en klukkan hálfeitt um nóttina.
gengari en gengur og gerist erlendis.
Þá vona ég að spomað verði við
einkarekstri í heilbrigðisþjónustunni
sem leitt geti til mismununar,“ sagði
Jóhanna Þorsteinsdóttir kvennalista-
kona.
Fjölmiðlafárið vegna Alberts
Bjöm Dagbjartsson, Sjálfstæðis-
flokki, ræddi fjölmiðlafárið að undan-
fömu og sagði að mál hefðu verið
blásin út. Engum duldist að hann átti
við Albertsmálið. Hann vék að stjóm-
arandstöðunni á Alþingi. „Hún dæmir
sig sjálf af ómerkilegum málflutningi."
Kurr varð í salnum þegar Bjöm
beindi orðum sínum skyndilega að
samstarfsflokknum. „Framsóknar-
flokkurinn berst við óstöðvandi fylgis-
hmn. Það segir sitt um frammistöðuna
síðustu ár.“
Hann sakaði síðan Framsóknar-
flokkinn um óheilindi í samstarfi.
Brúnin á Guðmundi Bjamasyni þyng-
dist þá heldur betur. „Ummæli forsæt-
isráðherra um okkur sjálfstæðismenn
og forystumenn flokksins em marg-
fræg að endemum. Það þarf ekki að
rekja þau frekar," sagði Bjöm. Og
Guðmundur átti síðar eftir að svara
fyrir sig.
„Aðkoman var 130 prósent verð-
bólga þegar núverandi ríkisstjóm tók
Yngsti fundarmaðurinn var aðeins
3ja mánaða. Hann lét sér líöa vel í
fangi föður síns. DV-myndir JGH
við,“ hélt Bjöm áfram. „Við snarm-
innkuðum verðbólguna, höfum
lækkað skatta, innlendur spamaður
hefur aukist og skuldasöfnun verið
stöðvuð. Gengisfellingar heyra brátt
fortíðinni til.“
Bjöm minntist síðan á að ráðstöfun-
artekjur heimila hefðu aldrei verið
meiri, atvinnuvegimir stæðu sig vel
eftir að verðbólgan minnkaði og ætti
það sérstaklega við um fyrirtæki í
sjávarútvegi sem stæðu sig nú betur.
„Stefna okkar sjálfstæðismanna er
skýr; að halda áfram á sömu braut.
Við ætlum að halda verðbólgunni í
skefjum, draga frekar úr skuldasöfn-
un, minnka skattbyrðina. Við teljum
ekki unnt að hverfa frá stjómun fisk-
veiða en viljum aukið frjálsræði í
veiðunum þar sem því verður komið
við,“ sagði Bjöm.
Ekki 2. flokks manneskjur
Ingunn Svavarsdóttir frá Þ-lista,
Þjóðarflokknum, kom upp í kross-
viðarpúltið á eftir Bimi. Hún vék beint
að kjama máls síns. „Ég tek ekki í
mál að litið verði lengur á fólkið úti
á landsbyggðinni sem 2. flokks mann-
eskjur.“
Ingunn sagði að fólk á landsbyggð-
inni væri auðmýkt. Það þyrfti að
skríða fyrir einhveija menn í Reykja-
vík til að fá fjármagn þrátt fyrir að
fólkið úti á landi hefði aflað fjárins.
„Peningamir em teknir suður en svo
þurfúm við að fara suður og biðja um
þessa peninga aftur. í .þokkabót líta
þeir í Reykjavík svo á þetta sem styrki
til handa okkur, að við séum að biðja
um einhverjar ölmusur," sagði Ing-
unn.
Einn eyðir - annar aflar
Hún bætti snaggarlega við: „Það er
ekki farsælt að einn eyði en annar afli.
Það er stefna okkar í Þjóðarflokkn-
um að stofnuð verði fylki og í hveiju
fylki verði fylkisbanki. Þetta tiyggir
að peningamir fari ekki suður, heldur
haldist innan fylkisins, kjördæmisins.“
Ingunn hvatti síðan til þess að allir
fengju notið sín og að ekki yrðu allir
steyptir í sama mótið.Lífið sjálft skipti
mestu máli og það yrði að vera blóm-
legt.
„En fyrst og síðast verður núna að
auka virðinguna fyrir okkur úti á
landsbyggðinni. Ég kýs Þjóðarflokk-
' „ u
ínn.
Á eftir Ingunni kom Guðmundur
Lárusson frá S-listanum, Borgara-
flokknum. „Af hveiju framboð Borg-
araflokksins? Jú, vegna yfirgangs og
kerfispots gömlu flokkanna. Við horf-
um upp á valdagræðgi flokksappara-
tanna. Islenska þjóðin stendur á
krossgötum. Á að velja áfram gamlar
leiðir kerfisflokkanna eða nýjar, eins
og hjá Borgaraflokknum, þar sem fólk-
ið sjálft er sett í öndvegi og fær notið
sín.“
Guðmundur sagði ennfremur að
stefna Borgaraflokksins væri aukið
lýðræði, að landsfjórðungamir yrðu
ábyrgari og fjárhagslega sjálfstæðari.
„Við dreifbýlisfólk eigum ekki að
þurfa að ganga betlandi til Reykjavík-
ur.“
Fólk verður að vinna myrkr-
anna á milli
Ákveðinn í fasi biýndi Guðmundur
raustina: „Sjáið þið ekki hvernig pen-
ingamir em notaðir i skrauthallar-
byggingar syðra? Á meðan verður
fólkið að vinna myrkranna á milli til
að sjá sér farborða."
Guðmundur lauk máli sínu að þessu
sinni á orðunum: „Það þarf að hefja
lýðræðið til virðingar á ný. Það er
stefna Borgaraflokksins."
Gunnar Frímannsson hjá Borg-
araflokki vatt sér strax á eftir
Guðmundi upp í ræðupúltið. Hann
leiddi talið að sjávarútveginum og
landsbyggðinni. „Útgerð er sá at-
vinnuvegur sem við þurfum að leggja
áherslu á. Við verðum að gera honum
hærra undir höfði. Það þarf að greiða
sjómönnum og fólki í fiskvinnslu hærri
laun. Þetta fólk fær engan veginn
greitt í samræmi við þau verðmæti sem
það skapar.“
Gúnnar var tæpur á tíma eins og
aðrir ræðumenn og endaði því ræðuna
stutt og laggott: „Borgaraflokkurinn
býður sig fram til þjónustu fyrir alla
landsmenn."
Valgerður á Lómatjörn
Þá var komið að Framsókn. Val-