Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987. Atvinnumál Snyrtimennska hjá Útgerðarfélagi Akureyringa Útgerðarfélag Akureyringa Það var fimmtudaginn 24. júlí að ég fór í heimsókn í Útgerðarfélag Akur- eyringa. Það var verið að landa úr b.v. Kaldbak en afli hans var að mestu karfi. Landaði hann að þessu sinni 260 lestum. Þessa viku höfðu tveir af tog- urum íyrirtækisins landað í vikunni, báðir með mikinn afla. Eftir að hafa Fiskmarkaðimir Ingólfur Stefánsson 'skoðað mótttökuna, sem var með sama snyrtilega yfirbragðinu og umhverfi fiystihússins er, varð mér litið út fyrir biyggjuna og þótti mér liturinn á sjón- um íurðulegur. Við nánari athugun kom í ljós að þama rann í sjóinn skol- vatn af mamingi og þótti mér miður að sjá þetta skolp hjá fyrirtæki sem annars virtist ganga vel um umhverf- Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað innstæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mán- aða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundiö i tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris- sjóðum eöa almannatryggingum. Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 18% og ársávöxtun 15,5%. Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 15% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttekt- ar upp í 21%. Hvert innlegg er meðhöndlað sérstaklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður við ávöxtun þriggja mánaöa verðtryggðs reiknings, nú með 2% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxta- leiðréttingu. Vextir færast misserislega. Metbók er meö hvert innlegg bundiö í 18 mánuöi á 27,0% nafnvöxtum og 28,8% árs- ávöxtun, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert inn- legg er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir misserislega. iönaöarbankinn: Bónusreikningur er óverð- tryggður reikningur og ber 20% vexti. Verð- tryggð bónuskjör eru 3%. Á sex mánaða fresti er borin saman verðtryggð og óverðtryggð kjör og gildir þau sem hærri eru. Heimilt er aö taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Hreyfö- ar innstæður innan mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á mánuði, og verðbætur reikn- ast síðasta dag sama mánaðar af lægstu inn- stæðu. Vextir færast misserislega á höfuðstól. 18 mánaöa bundinn reikningur er með 27% ársvöxtum. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 22,5% nafnvöxtum og 23,8% ársávöxtun. Af óhreyfðum hluta innstæðu frá síðustu áramót- um eða stofndegi reiknings síðar greiöast 23,9% nafnvextir (ársávöxtun 25,2%) eftir 16 mánuði og 24,5% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 25,8%). Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburöur á ávöxtun 6 mánaöa verötryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir fær- ast misserislega á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta- tímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuðina 14%, eftir 3 mánuði 19%, eftir 6 mánuði 23%, eftir 24 mánuði 25% eða ársávöxt- un 26,6%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verð- tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta- reikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 24% nafnvexti og 25,4% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæöu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggös reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast misserislega. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfæröum vöxt- um síðustu 12 mánaöa. - en slæmt að sjá skolvatn af mamingi renna í sjóinn Kaldbakur, togari Útgeröarfélags Akureyringa. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 23,21% (ársávöxtun 24,10%), eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggös reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda al- mennir sparisjóðsvextir, 15%, þann mánuð. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess aö ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn- aðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá í 25,26-28,79%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg- inreglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða bundins óverðtryggs reiknings, nú með 21,0% ársávöxt- un, eða 6 mánaöa verðtryggðs reiknings, nú með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxt- un fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notiö þess- ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa veriö á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt í fjórðungi reiknast almennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virk- an dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlutfalls- legar verðbætur m.v. dagafjölda í innleggsmán- uði, en ber síðan kaskókjör út fjórðunginn. Reikningur, sem stofnaður er síðar fær til bráða- birgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfyllt- um skilyrðum. Sparisjóöir: Trompreikningur er verðtryggð- ur og meó ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun meó svokölluðum trompvöxtum, 22,5% með 24,12% ársávöxtun. Miðað er við lægstu innstæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæöan eldri en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóðsvexti, 15%. Vextir færast misserislega. 12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð- tryggða en á 26,5% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggös reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við óverö- tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóöa er með inn- stæðu bundna í 18 mánuói óverðtryggða á 25,5% nafnvöxtum og 27,6% ársávöxtun eða á kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á eftir. Sparisjóðirnir ( Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Nes- kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavík- ur og nágrennis bjóöa þessa reikninga. Almenr. verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð- bréfasölum. Þau eru almennt tryggö með veði undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in eru ýmist verötryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna fasteignaviöskipta eru 20%. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins getur numið 2.562.000 krónum á 2. ársfjórð- ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúö á síðustu þrem árum, annars 1.793.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.793.000 krónum, hafi viökomandi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.255.000 krónum. Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna. Lánin eru til aJlt að 40 ára og verðtryggö. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mánuöir. Sumir sjóðir bjóöa aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5-6,75% vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxta- vextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni (6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæö leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan þvi 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 2,8% á mánuði eða 33,6% á ári. Vísitölur Lánskjaravisitala í júli 1987 er 1721 stig en var 1687 stig i maí. Miðað er við grunninn 100 f júní 1979. Bygglngarvisitala fyrir júli 1987 er 320 stig á grunninum 100 frá 1983. Húsaleiguvisltala hækkaði um 9% 1. júlí. Þessi vlsitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miöað sérstaklega I samn- ingum leigusala og leigjenda. Hækkun vlsi- tölunnar miöast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá mánuöi á undan. INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóðsbækur ób. 14-15 Lb.Sp, Úb.Bb. Ab Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-18 Ab 6 mán. uppsögn 16-20 Ib.Vb 12 mán. uppsögn 17-26.5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 25,5-27 Ib.Bb Avísanareikningar 4-15 Ab.lb. Vb Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-8 lb,Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3-4 14-24 Ab.Úb Bb.Sb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Sp.Vb, Ab Sterlingspund 7,5-9 Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Danskarkrónur 8,5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennir víxlar(forv.) 27-28,5 Lb Viðskiptavixlar(forv.)(1) 25-26 eöa kge Almenn skuldabréf 25-31 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningaríyfirdr.) Útlán verðtryggð 28,5-30 Lb Skuldabréf Að2.5árum 7,5-9 Úb Til lenaritíma Útlántilframleiðslu 7,5-9 Úb Isl. krónur 23-29 Vb SDR 7,75-8 Bb.Lb, Úb.Vb Bandaríkjadalir 8,5-9,25 Bb.Lb, Úb.Vb Sterlingspund 10-10,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,25-5,5 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 36 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júli 1721 stig Byggingavísitafa 320 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 9%1.júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestim arfélaginu): Ávöxtunarbréf 1,1634 Einingabréf 1 2,163 Einingabréf 2 1,283 Einingabréf 3 1,337 Fjölþjóðabréf 1,030 Kjarabréf 2,158 Lífeyrisbréf 1,088 Markbréf 1,075 Sjóðsbréf 1 1,058 Sjóðsbréf 2 1,058 Tekjubréf HLUTABRÉF 1,174 Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 255 kr. Flugleiðir 175 kr. Hampiðjan 118 kr Hlutabr.sjóöurinn 114 kr. Iðnaðarbankinn 137kr. Skagstrendingur hf. 182 kr. Verslunarbankinn 120 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160kr. „ I (1) Við kaup á viðskiptavixlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavíxla gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25% og nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. ið. Steinsnar er frá skipshlið inn í fiskgeymslur hússins og er þar sami snyrtilegi bragurinn yfir öllu. Eftir að hafa skoðað sjávar megin fór ég að aðalinngangi og skoðaði fyrst vinns- lusalinn en þar var margt manna við að vinna aflann sem sumt var unnið fyrir Ameríkumarkað og annað fyrir Japansmarkað. Alls staðar var sami snyrtilegi bragurinn yfir öllu. Þegar gengið er á efri hæðina liggur leiðin upp snyrtilega skreyttan stiga og þeg- ar upp er komið eru skrifstofur til beggja handa. Vilhelm Þorsteinsson framkvæmdastjóri var á skrifstofu sinni sem snýr út að sjónum og er skemmtilegt út að líta. Hitti ég þá báða að máli, Vilhelm og Gísla Kon- ráðsson, létu þeir vel yfir fiskiríi og kvörtuðu ekki yfir fólksfæð eins og víðast hvar er yfir sumartímann. í lok þessarar hemsóknar sýndi Vilhelm mér nýinnréttaðan matsal fyrir starfs- fólkið. Salur þessi er smekklega innréttaður og mættu mörg veitinga- hús þykjast góð ef þau væru með jafhsmekklega gerðan matsal sem þennan. Við hliðina er fullkomið eld- hús þar sem kokkamir laga mat fyrir fólkið en það greiðir aðeins kostnað- inn við hráefniskaupin. Verkaskipting er hjá framkvæmdastjórunum þannig að Vilhelm mun sjá um útgerð skip- anna og það sem til þarf enda mun hann þekkja það manna best vegna þess að hann hefur sjálfur starfað á sjónum sem skipstjóri og veit hvað til þarf. Afli Kaldbaks var að mestu karfi. Bretland: í síðastliðinni viku má segja að verð á fiski hafi verið gott. Úr gámum var seldur afli, alls 856 lestir. Þar af 596 lestir af þorski, meðalverð kr. 64,20. Ýsa, alls 10 lestir, á kr. 75,07. Rauð- spretta, 56 lestir, á kr. 71,80. í Bretlandi seldi m.b. Otto Wathne alls 180 lestir fyrir kr. 9,3 millj., meðal- verð kr. 51,86. B.v. Óskar Halfdórsson seldi einnig í Bretlandi 86 lestir fyrir kr. 6,2 millj., meðalverð kr. 73,11. Bv. Halkion seldi 106 lestir fyrir kr. 6,2 millj., meðalverð kr. 56,27. Á miðviku- dag landaði b.v. Börkur 126 lestum, mest þorski. Þýskaland I síðustu viku var landað og selt úr gámum alls 95 lestir. Meðalverð á ufsa kr. 43,76, karfa kr. 70,67, þorski kr. 59,93. B.v. Snorri Sturluson landaði í Bremerhaven alls 280 lestum. Meðal- verð kr. 31,29. 47 lestir fóru í gúanó. B.v. Sigluvík landaði á miðvikudag í Þýskalandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.