Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987. Fréttir_________________________________________pv Ökuleikni BFÖ og DV Tíundu íslandsmeistara- keppninni lauk um helgina Auður Yngvadéttir íslandsmeistari fímmta árið í röð Á laugardaginn var fór fram úrslita- keppni í ökuleikni Bmdindisfélagí ökumanna og DV og var hún jafh- framt íslandsmeistarakeppni. Kepp- endur komu víða að af landinu og voru þeir allir búnir að taka þátt í undankeppnunum sem fram fóru víða um landið í sumar. Mikið var um að vera enda í tíunda sinn sm úrslita- keppnin er haldin. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTiR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 14-15 Ab.Bb, Lb.Sb. Sp.Úb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-19 Úb 6 mán. uppsögn 16 20 Ib.Vb, Úb 12 mán. uppsogn 17-26,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 25.5-27 Bb.lb Tékkareikningar 6-8 Allir nema Vb Sér-tékkareikningar 4—15 Ab.lb. Vb Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3-4 Ab.Úb 14-24.32 Úb Innlán gengistiyggð Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Vb.Ab Sterlingspund 8.25-9 Ab.Úb, Vb Vestur-þýsk mörk 2.5-3,5 Ab.Vb . Danskarkrónur 9-10,5 Ib UTLANSVEXTIR (%) læg- St Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 28-28,5 Bb.Lb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 30-30,5 eða kge Almennskuldabréf 29,5-31 Lb.lb, Vb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 30 Allir Utlán verðtryggð Skuldabréf 8-9 Lb Útlán til framleíðslu isl.krónur 27-29 Bb SDR 8-8,25 Bb.Lb, Úb.Vb Bandaríkjadalir 8,5-8,75 Bb.Úb, Vb Sterlingspund 11,25- 11,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,5-5,75 Bb.Sp. Úb.Vb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 42 MEÐALVEXTIR Óverðtr. sept. 87 29,9 Verðtr. sept. 87 8,4% VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 1778stig Byggingavísitala 1 sept. 324 stig Byggingavlsitala 2 sept. 101,3 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði9%1.júlí VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestini arfélaginu): Ávöxtunarbréf 1,2201 Einingabréf 1 2,248 Einingabréf 2 1,328 Einingabréf 3 1,396 Fjölþjóðabréf 1,060 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,268 Llfeyrisbréf 1,130 Markbréf 1,120 Sjóðsbréf 1 1,100 Sjóðsbréf 2 1,100 Tekjubréf 1,213 HLUTABREF Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 114 kr. Eimskip 278 kr. Flugleiöir 194 kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 118 kr. Iðnaðarbankinn 142 kr. Skagstrendingur hf. 182 kr. Verslunarbankinn 125kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavixla gegn 30% ársvöxtum, Samv.banki 31% og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb=Búnaðarbankinn, lb = lðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um penlngamarkaöinn birtast í DV á fimmtudögum. Spennandi keppni Mikið var í húfi fyrir keppendur því að fyrir utan titilinn íslandsmeistari er keppt um sólarlandaferðir sem ferðaskrifstofa Terra gaf. Rúsínan í pylsuendanum var Mazda 626 sem beið allan daginn við enda keppnis- plansins eftir nýjum eiganda. Mazda- umboðið, sem dyggilega hefúr stutt ökuleiknina undanfarin ár, ákvað að leggja sitt af mörkum til að stuðla að góðum akstri. Því hét það þvi að tæ- kist einhveijum keppendanna að aka 100% brautina, þ.e. að vera með villu- lausan akstur, fengi hann þennan Mazda 626 bíl. Þetta gerði það einnig í fyrra og þá tókst tveimur ökumönn- um að aka villulaust og urðu þeir að keppa um bílinn. Það má segja að keppendur hafi lagt sig í líma við að aka vel en þrátt fyrir góðan ásetning tókst engum að aka villulaust. Aðeins hársbreidd frá því að hreppa bílinn Einn keppendanna var þó mjög ná- lægt því að hreppa bílinn því hann gerði aðeins eina villu í brautinni. Þetta var Guðmundur B. Guðmunds- son frá Akureyri. Honum gekk mjög vel að öllu öðru leyti í brautinni og háði harða baráttu um efsta sætið. íslandsmeistari í annað sinn En ekki tókst Guðmundi að vinna efsta sætið í karlariðli þó hart væri barist því að hann átti sér ofjarl í keppninni. Sá var Garðar Ólafsson, íslandsmeistarinn frá því í fyrra. Garð- ar vann keppnina í karlariðli léttilega og bar af hvað lipurð og léttleika varð- ar. Hann sigraði með 419 refsistig. Þaí var Garðar sem vann Mazda bílinn : fýrra. Guðmundur varð að láta sér nægja 2. sætið með 474 refsistig, tæp- lega mínútu lakari árangur. Guð- mundur mátti þó glaður við sitt una því að hann vann sólarlandaferðina frá Terru. Garðar hafði nefhilega unn- ið utanlandsferðina áður og þau skilyrði fylgja henni að aðeins er hægt að vinna utanlandsferð einu sirrni. Lítill munur var á Guðmundi og þeim er lenti í 3. sæti. Aðeins 10 sekúndur skildu þá að. Þráinn Jensson hét sá er það sæti hlaut. Þráinn vann það afrek í sumar að vera með besta tím- ann í þrautaplaninu yfir landið. Fyrir bragðið ákvað Casio-umboðið að gefa honum Casio-úr af vönduðustu gerð að eigin vali. Reyndar höfðu þeir gefið úr fyrir besta tímann í hverri keppni sumarsins. íslandsmeistari fimmta árið í röð I kvennariðli var strax augljóst eftir fyrri umferð að Auður Yngvadóttir, sem sigrað hefur í ökuleikninni síð- ustu 4 ár, myndi líklega sigra. Þó var möguleiki á að mágkona hennar, Fríða Halldórsdóttir, gæti skákað henni því að þær tvær voru langefstar í kvennariðli eftir fyrri umferð. En Auður jók bilið milli þeirra í seinni umferð og tryggði sér íslandsmeistara- titilinn í fimmta sinn með öruggri forystu. Hún hlaut 551 refsistig. Fríða varð önnur með 622 refsistig. Hörkubarátta um þriðja sætið Baráttan í kvennariðli var einkum um þriðja sætið. Eftir fyrri umferð var Guðbjörg Bjamadóttir í því sæti og munaði aðeins 9 sekúndum á henni og Ingu Kristinsdóttur, sem ógnaði henni og var til alls líkleg, því Inga var efst yfir landið í kvennariðli í sum- Terra gaf, kom í hennar hlut þar sem allar hinar höfðu unnið slíka ferð áð- ur. Úrslit hjólreiðakeppninnar Samhliða ökuleikninni í sumar var haldin hjólreiðakeppni og fóru úrslit hennar einnig fram á laugardag. Til keppninnar mættu 10 efstu keppendur yfir landið í yngri riðli, 9-11 ára bama. í þeirri keppni var það einn keppandi sem bar af hvað akstur varðaði. Sá heitir Reynir Strandberg Ámason. Hann keppti í Bolungarvík í sumar og var með langbesta tímann og fæstu villumar í brautinni og sigraði því með yfirburðum. Hann fékk 215 refsi- stig. Um annað sætið var meira barist og reyndar vildu allir verða í tveim efstu sætunum, þar sem verið var að velja tvo keppendur sem fulltrúa ís- lands í norrænni hjólreiðakeppni sem fer fram eftir hálfan mánuð i Svíþjóð. Sá er annað sætið hlaut var Agúst Þór Margeirsson frá Fáskrúðsfirði. Hann hlaut 263 refsistig. Þeir Reynir og Ágúst hlutu því utanlandsferð í verðlaun. Þó vom aðeins 3 sekúndur sem skildu Ágúst og næsta keppanda að. Allir hinir keppendumir hlutu sams konar viðurkenningu þar sem þeir höfðu allir staðið sig svo frábær- lega að vera meðal 10 efstu keppenda yfir landið. Gjæsileg verðlaunaafhending Okuleikninni lauk um kvöldið með verðlaunaafhendingu í kaffisamsæti sem tryggingafélagið Ábyrgð hf. efndi til í tilefhi keppninnar. Þar vom af- hent bikarverðlaun til efstu keppenda ökuleikninnar ásamt fararbikurum og utanlandsferðum frá Terru í karla- og kvennariðli. Bílaborg hf. gaf öll bikar- verðlaun og hefði reyndar gefið bílinn hefði hann gengið út. Þá var fúlltrúi Casio-umboðsins, Gísli Úlfarsson, mættur með öll fallegustu Casio-úrin því að hann ætlaði að gefa þeim kepp- endum sem bestan tímann höfðu í báðurn riðlum í hjólreiðakeppninni og ökuleikninni úr af vönduðustu gerð. I ökuleikninni vom það Þráinn Jens- son, eins og fyrr sagði, og Þóra Víkingsdóttir sem úrin hlutu en í hjól- reiðakeppninni þeir Axel Friðgeirsson og Garðar Sigvaldason. Forráðamenn ökuleikninnar vilja færa Casio- umboðinu innilegustu þakkir fyrir þess framlag. Þar sem ekki var keppt til úrslita í eldri flokki hjólreiðakeppninnar ák- vað Fálkinn hf., sem reyndar hefúr verið í samstarfi við BFÖ um hjól- reiðakeppnina, að gefa eitt DBS reiðhjól af vönduðustu gerð einhveij- um heppnum keppanda i eldri riðli. Dregið var um hjólið og sá heppni var 13 ára Seyðfirðingur, Dýri Jónsson. Hjólið var afhent í kaffisamsætinu af Einari Guðjónssyni, fúlltrúa Fálkans. Vinur Dýra tók við því þar sem Dýri komst ekki sjálfur. Þá afhenti hann sigurvegaranum í hjólreiðakeppninni utanlandsferð en Fálkinn gaf hana einnig. Þá má geta þess að öll verð- laun í undankeppnum sumarsins vom gefin af Fálkanum. Yfir 1000 keppendur í sumar Að lokum vilja forráðamenn öku- leikninnar færa öllum þeim sem studdu ökuleiknina á einhvem hátt í sumar þakkir fyrir þeirra framlag. 10. keppnisári ökuleikninnar er nú lokið. Vom keppendur á bílum og hjólum í sumar rúmlega 1000 talsins og hefur hún aldrei verið jafnfjölmenn. EG ar eftir undankeppnimar. Inga lagði því allt að veði til að komast upp fyr- ir Guðbjörgu og tókst það með aðeins 3 sekúndna forskoti. Hún hlaut því 3. sætið með 701 refsistig en Guðbjörg varð að láta sér nægja það fjórða með 704 refsistig. Guðbjörg gat samt verið ánægð því að sólarlandaferðin, sem Hér á myndinni sést Garðar Ólafsson í síðustu brautinni og ekki vantar ein- beitinguna enda skilaöi hún sér þvi að hann sigraði annað árið í röð. íslandsmeistarar i ökuleikni ’87, þau Auður Yngvadóttir og Garðar Ólafsson, eru að vonum glöð og ánægð með árangurinn. Hér eru þau nýbúin að taka við verðlaununum. Gísli Úlfarsson sést hér afhenda Þráni Jenssyni vandað Casio-úr fyrir frábær- an árangur í undanúrslitum ökuleikninnar. Þráinn var með besta tímann yfir landið í karlariðli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.