Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1987, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1987. íþróttir • Kristján Sigmundsson. Frábær markvarsla Krist- jáns meisturunum sigur - íslandsmeistarar Víkings í basli með nýliða ÍR, sigruðu þó 27-20 • Sigurður Gunnarsson skoraði sex mörk í sínum fyrsta leik með Vikingum. Hér sjést hann kljást við ÍR-inga í gærkvöldi. DV-mynd: Brynjar Gauti „Ég fann mig mjög vel í leiknum og það kom mér skemmtilega á óvart. Ég er til þess að gera nýbyijaður að æfa, hef aðeins æft í þijá vikur. Það hefur hins vegar verið mikið að gera hjá mér í vinnunni svo aö ég er í góðu formi. Það voru sveiflur í þessum leik hjá okkur Víkingum og ég hef trú á því að liðið verði sterkt í vetur,“ sagði landshðsmarkvörðurinn Kristján Sig- mundsson eftir að íslandsmeistarar Víkings höfðu sigrað nýhða ÍR, 27-20, í 1. deUd í LaugardalshöU í gærkvöldi. Kristján var öðrum fremur maðurinn bak við sigur meistaranna - varöi 18 skot í leiknum, þar af 4 vítaköst. Ungu strákamir hjá ÍR komu talsvert á óvart með hröðum leik og skemmtileg- um fléttum. Hins vegar skorti þá úthald. Víkingar skoruðu fimm síð- ustu mörkin í fyrri hálfleiknum. Sex mörk gegn einu í lokakaflanum í þeim síðari. Framan af leiknum skiptust Uðin á að skora. Víkingur komst í 4-2 en ungu ÍR-ingamir létu það ekki á sig fá - snera dæminu við og komust yfir, 5-4. Jafnt síðan á öUum tölum upp í 9-9 og Víkingar gátu þakkaö Kristjáni aö ÍR komst ekki nokkrum mörkum yfir. En síðan sigu Víkingar fram úr. Staðan í hálfleik 16-10. Framan af síðari háhleik virtust Víkingar stefna í stórsigur, náðu níu marka forustu, 21-12. Þá hrökk aEt í baklás hjá meisturunum. Þeir skor- uðu ekki mark í 12 mínútur. ÍR-ingar gengu á lagið, skoraðu sex mörk í röð. AUt i einu komin spenna í leikinn og tíu mínútur til leiksloka. Staðan 21-18 og fjölmargir áhorfendur vel með á nótimum. Þá loks tóku Víkingar við sér á ný, skoraðu næstu þrjú mörk og úrslit vora ráðin. Það vora gífurlegar sveiflur í leik Víkinga að þessu sinni. Leikmenn vora lengi að ná sér á strik og urðu á ótrúlegar villur framan af leiknum og um miðjan síðari hálfleikinn. Á milli sáust svo stórkostlegar fléttur og glæsileg mörk. Liðsheildin er sterk - landsliðsmenn í nær hverri stöðu. Hins vegar virðast leikmenn ekki í mikiUi samæfingu og vamarleikurinn oft slakur. Sigurður Gunnarsson, sá snjaUi leikmaður, sem leikur með Vík- ingi á ný eftir að hafa leikið erlendis um árabil, skoraði falleg mörk þegar á leikinn leið. Var lengi að ná sér á strik enda nýkominn úr læknismeð- ferð - hðspeglun. Greiniiegt að hann á eftir að styrkja Víkingsliöið mikið þegar hann kemst í betri æfingu. Vík- ingar urðu fyrir áfalh í lokin. Einn leikmaður ÍR braut iha á Bjarka Sig- urðssyni án þess að fá brottvikningu. Bjarki var mjög bólginn á hné eftir leikinn. Guðmundur Þórðarson, sá gamal- reyndi leikmaður og þjálfari ÍR, stjóm- ar ungu strákunum í hði sínu með myndugleik. Þeir sýndu oft snjallan leik og ættu að geta náð í talsvert af stigum á mótinu þegar reynslan og úthaldið vex. Ólafur Gylfason og Frosti Guðlaugsson era mikh efni og margir aðrir í hðinu athyghsverðir. Mörk Víkings í leiknum skoraðu Sigurður 6, Guðmundur Guðmunds- son 4, Bjarki 4, Siggeir Magnússon 4/1, Karl Þráinsson 4/2, Hilmar Sigurgísla- son 3 og Ámi Friðleifsson 2. Mörk ÍR skoraðu Frosti 4, Guömundur 4/1, Ól- afur 4/2, Magnús Ólafsson 3/2, Finnur Jóhannsson 2, Matthías Matthíasson, Róbert Rafnsson og Sigfús Bohason eitt hver. Dómarar vora Ólafúr Har- aldsson og Stefán Amaldsson og vora mhdir í garð nýhðanna. ÍR fékk niu vítaköst í leiknum - Víkingur 4. Sex leikmönnum Víkings var vikið af vehi í 12 mínútur. Tveimur ÍR-ingum í fjór- ar mínútur. -hsim Nýliðarnir frá Akur- eyri steinlágu FH í landsliðsbúningunum Það vakti nokkra athygh í leik FH og Þórs í gærkvöldi að FH-ingar léku í íslensku landsliðspeysunum. Peysur beggja hða era hvítar svo að heimahðiö varð að víkja. FH-ingar áttu hins vegar engar varapeys- ur svo aö þeir fengu íslenska búninginn lánaðan. Landshðspeysumar vora aö sjálfsögðu th happs því FH-ingar unnu stórsigur. -RR - fýrir FH-ingum, 21-36 Nýhöamir í 1. dehd, Þór frá Akur- eyri, fengu stóran skeh í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar hðið mætti FH-ing- um. Lokatölur urðu 36-21, FH-ingum í vh, en staðan í hálfleik var 16-12 fyr- ir FH. Það er ljóst að Þórsarar eiga erfiðan vetur fyrir höndum. Liðið gerði mikið af mistökum þegar hða tók á leikinn en þó var barátta leikmanna ágæt. „Við gerðum ahtof mikið af óþarfa mistökum og gáfum þeim hreiniega boltann í hraðaupphlaupum. Það þýö- ir samt ekki að leggja árar í bát og við stefnum ótrauðir áfram," sagði Er- lendur Hermannsson, þjálfari Þórs, eftir leikinn. Héðinn Ghsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir 50 sekúndur en síðan var jafnræði með hðunum fyrstu 15 mín- útumar. FH-ingar komust síðan í 9-5 og héldu fjögurra marka forystu þar th flautað var th leikhlés. Þórsarar börðust áfram af krafti í upphafi síð- ari hálfleiks og munurinn hélst 3-4 mörk. En þá fór FH-hðið loks í gang og þá áttu norðanmenn ekkert svar. Heimamenn keyrðu upp hraðann og röðuðu mörkunum við gífurlegan fógnuð fiölmargra áhorfenda. Munur- inn í lokin var síðan 15 mörk, 36-21, og FH-ingar fógnuðu góðum sigri. „Sóknarleikur okkar var mjög góður en svo virðist sem vömin verði höfuö- verkur okkar í vetur. Ef við náum að styrkja vömina erum við meö topphð. Það var gaman að sjá hve áhorfendur fjölmenntu hér í kvöld og stemmning- in var frábær. Þórsarar eiga áreiðan- lega eftir að koma á óvart og ná áreiðanlega nokkrum stigum á mót- inu,“ sagði, Þorghs Óttar Mathiesen, fyrirhði FH-inga, í samtah við DV eftir leikinn. Bestu menn FH vora þeir Þorgils Ottar, Pétur Pedersen og Héðinn Ghs- son. Híá Þórsurum bar langmest á þeim Sigúrpáh Aðaisteinssyni og Sig- urði Pálssyni. Dómarar vora þeir Bjöm Jóhannes- son og Sigurður Baldursson og vora þeir ákaft púaðir niður af hafnfirskum áhorfendum fyrir að sýna Óskari Ár- mannssyni rauða spjaidiö. í hehdina dæmdu þeir ágætlega. Mörk FH: Þorgils Ottar 8, Pétur 6, Óskar H. 6 (1 v.), Héðinn 5, Óskar Á. 5 (1 v.), Guðjón 4, Gunnar 1. Mörk Þórs: Sigurpáh 9 (5 v.), Sigurð- ur 7, Jóhann 2, Gunnar, Ólafur og Ami eitt hver. -RR • Gunnar Beinteinsson, FH-ingur, sést hér í landsliðsbúningi íslands. Það var ekki að sökum aö spyrja - hann skoraði hjá Þór. DV-mynd Gunnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.