Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1987, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987. 11 Utlönd Samdráttur í skipaiðnaði veldur víða atvinnuleysi Risaolíuskip og flutningaskip liggja nú við festar í mörgum hafnar- borgum viðs vegar um heim vegna skorts á farmi og pantanir á nýjum skipum liggja niðri. Þessu ástandi er lýst í tveimur skýrslum sem annars vegar Alþjóða vinnumálastofhunin og hins vegar alþjóðleg samtök málmiðnaðar- manna hafa birt. í báðum skýrslunum er ástandið taiið stafa af mörgum samverkandi þáttum. Almennt verra efiiahags- ástand í heiminum ásamt orku- spamaðaraðgerðum, sem fylgdu í kjölfar blómatímabilsins í byijun áttunda áratugarins, hefur haft það í fór með sér að ekki er jafnmikil þörf á flutningi á olíu, kolum, málm- grýti og komi. Einnig hafa byltingarkenndar tækninýjungar leitt til þess að hægt hefur verið að framleiða minni og léttari vöm sem auðveldara hefur verið að senda í flugi. Sjálfvirkni Samtímis því sem minni þörf var fyrir skipaflutninga varð meiri sjálf- virkni um borð um leið og eigendur skipanna drógu úr kostnaði og fækk- uðu í áhöfnum í samkeppninni um þá fáu farma sem í boði vom. Með tölvum var hægt að hafa eftirlit með ýmsu um borð þar sem áður höfðu verið menn að verki. { Japan em hundrað og fimmtíu stór skip með átján manna áhöfn hvert. Áður vom þrjátíu til fjömtíu áhafnarmeðlimir um borð í jafnstór- um skipum. Aörar þjóðir íhuga að hafa ekki fleiri í áhöfn en tólf til fimmtán á skipum í úthafssiglingum og verið er að gera tilraunir með smiði skips sem yrði fjarstýrt og ómannaö. Ráðstefna í Genf er nú haldin ráðstefna um skipaiðnaö og sækja hana sjö hundr- uð fuiltrúar ríkisstjóma, skipaeig- enda og sjómanna frá sjötíu og sjö löndum. Á ráðstefhunni kom fram að efdr hálfrar aldar vaxtatímabil í skipaiðnaði er nú samdráttur í öllum þáttum hans. Verst var ástandið árið 1983 þegar tæpum sautján hundmö skipum var lagt víðs vegar um heim- inn. í skýrslu Alþjóða vinnumálastofh- unarinnar segir að of mikiilar bjartsýni hafi gætt meðal skipafé- laga og áætlanir þeirra hafi verið of viðamiklar. Margir drógust að þess- ari blómlegu starfsemi þar sem mörg lönd buöu hagstæð skilyrði til skipa- skráninga og áhafhir á lágum launum. Verri skilyrði Mörg gömul og virðuleg skipafélög hafa farið á hausinn og atvinnuleysi í landi og á sjó hefur aukist við breyttar aðstæður. Síöastiiðin sex ár hefur yfirmönnum á breskum kaup- skipum fækkað um helming. Undir- mönnum fækkaði um fjörutíu prósent. Á árunum 1980 til 1982 fækkaði atvinnutilfellum á sjó hjá Frökkum um tuttugu og þijú prósent og á Spáni um tuttugu pró- sent. Til þess að halda vinnunni hafa margir sjómenn samþykkt lengri tímabil um borð úti á sjó, styttri leyfi og lægri laun. Með fáeinum undan- tekningum hefur aðstaöa skipveija um borð batnað litið á undanfómum árum þar sem sparað er við smíðar skipanna. Rúmlega helmingur starfsmanna skipasmíðastöðva í Vestur-Evrópu hefur misst atvinnuna undanfarin tíu ár og búist er viö að fjörutíu og fimm þúsund til viðbótar hafi misst vinnuna 1989. í Japan, Singapore, Taiwan og í Suður-Kóreu hefur at- vinnutilfellum einnig fækkað. í byrjun áttunda áratugarins var blómaskeið hjá skipasmíðastöðvum sem hleyptu hverju skipinu af öðru af stokkunum. Því skeiði er nú lokið og rík- ir atvinnuleysi bæði meðal sjómanna og skipasmiða. Kontraskæruliðar þiggja sakaruppgjöf Stjómvöld í Nicaragua hafa nú hert til muna herferð þá sem miðar aö því að fá skæruliða kontrahreyfing- arinnar til þess að leggja niður vopn og snúa aftur til síns heima. Allt frá árinu 1983 hefur stjómin í Managua heitið þeim sem hætta baráttu gegn stjómarhemum fullri uppgjöf saka. Lengst af hefur boð þetta borið frem- ur takmarkaðan árangur en margt bendir til þess að undanfarið hafi sífellt fleiri skæruhðar leiðst til að þiggja það, jafnvel svo margir að verulegrar fækkunar gæti í sveitum kontrahreyfingarinnar. Fjölskyldan bíður Samkomulag það sem forsetar fimm Mið-Ameríkuríkja gerðu með sér í Guatemala þann 7. ágúst síðast- hðinn, um frið í löndum sínum, felur meðal annars í sér ákvæði um sak- amppgjöf til handa þeim sem barist hafa gegn stjómarheijum landanna. í þrem af ríkjunum flmm stendur nú yfir skæruhemaður, eða E1 Salvador og Guatemala auk Nic- aragua. Aðeins Honduras og Costa Rica búa við sæmhegan frið. í samræmi við þennan friðarsátt- mála forsetanna reka stjómvöld í Nicaragua nú harðan áróður fyrir því að kontraskæruhðar nýti sér boðið um sakamppgjöf. Borðar hafa verið festir upp í mörgum bæjum og þorpum landsins og kynning á boðinu er rekin í útvarpi og öðrum fjölmiðlum. Helstu slagorð herferðarinnar em: „Þiggðu sakarappgjöf. Fjöldskylda þín bíður heima. Leggðu niður vopn- in.“ Undanfarið hefur verið lögð mikil áhersla á að sanna að boðið sé raunhæft, einkum með opinber- um framburði þeirra er þegar hafa þáð það. Hafa stjómvöld reynt að sannfæra skæruhða um að þeir muni ekki mæta ihri meðhöndlun, yfirheyrslur yfir þeim verði í lág- marki og að íbúar heimabyggða þeirra þekki söguna um týnda son- inn næghega vel th að taka vel á móti þeim. Ferfjölgandi Sem fyrr segir bar boðið um sakar- uppgjöf htinn árangur lengst af en ýmislegt bendir th þess að þeim er þiggja það fari nú fjölgandi og muni enn fjölga á komandi mánuðum. Að sögn vamarmálaráðuneytis Nicaragua hafa um fjögur þúsund skæruhðar þáð sakauppgjöf frá ár- inu 1983. Af þeim segja stjómvöld að hálft fjórða hundrað hafi ekki verið í röðum skæruhða sjálfvhjugir heldur hafi þeim verið rænt og þeir þvingaöir th að berjast gegn stjóm- arhemum. Fremur sé þvi hægt að segja að þeir hafi flúið frá skæruhð- unum. Opinberar tölur um hversu margir hafa lagt niður vopn sín eftir að for- setamir fimm undirrituöu friðarsátt- málann hggja ekki fyrir. Yfirmaður Rauða kross Nicaragua segir hins vegar að samtök sín hafi aðstoðað um fimmtíu skæruhða við að fá upp- gjöf saka og komast th heimabyggða sinna undanfarinn mánuð. x „Þiggið sakaruppgjöf, fjölskyldan bíöur heima, leggið niður vopnin," segir rikisstjórnin i Nicaragua og nokkur fjöldi skæruliða kontrahreyfingarinnar hefur þegið boðið. Simamynd Reuter Ekkert bolmagn Talsmenn stjómvalda í Nicaragua halda því fram aö skæruhðar kontrahreyfingarinnar séu nú ekki nema um sex þúsund talsins. Tals- menn hreyfhigarinnar sjálfrar segjast hafa um tólf þúsund manns undir vopnum og vestrænir stjóm- arerindrekar segja raunveruleikann hggja einhvers staðar á rnihi þess- arra tveggja fuhyrðinga, líklega nálægt níu þúsundum. Hver sem hinn endanlegi sannleik- ur er í málinu má vera ljóst að kontrahreyfingin getur varla gert sér vonir um endanlegan sigur í baráttu sinni gegn hersveitum sandinista en í stjómarher Nic- aragua em nú um sjötíu og fimm þúsund manns. Stjómin í Managua bindur einmitt vonir sínar mikið viö þessa erfiðu aðstöðu kontrahreyfingarinnar og þá staðreynd aö þótt fjöldi þeirra sem þiggja sakarappgjöf sé ef th vhl ekki mikih getur hreyfingin hla fyht þau skörð sem þegar myndast. Jafn- fram þvi að kynna hugmyndir sínar um sakarappgjöf leggja stjómvöld því nokkra áherslu á aö sýna fram á vonleysi baráttu kontra. Telja þau að ef skæruhðamir sannfærast um að jafnvel dygghegur stuöningur stjómvalda í Bandaríkjunum dugi ekki gegn ofurefh sandinista muni raðir skæruhðanna riðlast næghega th þess að barátta þeirra deyi alger- lega út. Flestum ber enda saman um að eftir fimm ára styrjaldarástand, með tiíheyrandi manntjóni og eignatjóni, þarfnist landið friöar th þess aö geta hafið uppbyggingu af fullum krafti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.