Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988. Fréttir Kaupmenn rukkaðir um skuldir landbúnaðarins Bankaveð fylgir framleiðslunni allt ofan í maga neytenda „Þaö stóð til að hafa þann mögu- leika opinn að innheimta veðskuld- ir framleiðenda hjá þeim kaupmönnum er keyptu fram- leiðslu þeirra. En ég tel að það sé 90 prósent öruggt að svo verði ekki gert,“ sagði Þorvaldur G. Einars- son, lögfræðingur Búnaðarbank- ans, í samtali við DV þegar hann var inntur eftir því hvort bankinn ætlaði að gera alvöru úr þeirri hót- un sinni að rukka kaupmenn um andvirði skulda þeirra framleið- enda sem þeir keyptu landbúnað- arafurðir af. í bréfi, sem bankinn sendi kaup- mönnum í lok síöasta árs, er stuðst við ákvæði í veðlögum frá 1960 þar sem segir að veðréttur haldist þótt framleiðandi hafi selt vöruna. Sam- kvæmt þessum lögum helst veð fyrir afurðalánum allt þar til neyt- andinn borðar það ef skuldin er ekki gerð upp við bankann. Kaupmannasamtökin brugðust hart við þessum bréfum bankans og skilaði Sveinn Snorrason hæsta- réttarlögmaður áhtsgerð um máhö. Þar segir að mjög hæpið sé að rétt- ur bankans verði viðurkenndur af dómstólum ef hann láti verða af hótun sinni. „Segja má að ástæðan fyrir því að þetta bréf var sent út hafi bæði veriö aö ýta við þeim framleiðend- um sem eru í vanskilum viö bankann og eins að benda mönnum á þetta ákvæði í lögunum,“ sagði Þorvaldur G. Einarsson. „Það er mjög óeðlilegt að veðsetning hald- ist þótt framleiðandi selji vöruna eins og lögin kveða á um.“ -gse Nýju umferðariögin: Lögreglan kemur ef hennar er óskað issaksóknara hefur nú til ákvörðun- ar hversu háar sektir verði viö brotum þessum. Annað atriði sem breytist er að við minni umferðaróhöpp, þar sem ekki verða slys á fólki, er ætlast til þess að þeir ökumenn sem lenda í tjóninu geri sjálfir upp tjónið, án afskipta lögreglu. Þaö eru margir sem óttast þessa breytingu. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglu er óttinn ástæðulaus. Lögreglan mun ekki hætta að koma á árekstrarstað, sé aðstoðar hennar óskaö. í hveijum bíl eiga að verða skýrslu- form sem ökumenn eiga að geta útfyllt sjálfir. í þeim löndum sem þessi regla gildir hefur raunin orðið sú að flestir ökumenn sem lenda í slysalausum umferðaróhöppum gera upp tjónin án þess að kalla tíl lög- reglu. Lögreglan í Reykjavík á von á að töluverður tími hði þar til fólk fer almennt að gera upp tjón án afskipta lögreglu. -sme Liklegt má telja að þessir ökumenn hefðu getaö gert upp tjónið án af- skipta lögreglu. DV-mynd GVA Þegar nýju umferðarlögin taka gildi hinn 1. mars næstkomandi verða ýmsar breytingar frá núgildandi umferðarlögum. Meðal annars verða tekin upp sektarákvæði varðandi bíl- beltanotkun og ökumönnum verður gert skylt að aka með ökúljós allan sólarhringinn, allt áriö. Embætti rík- Ef tíllögur Jóns Sigurðsonar viö- af þóknun greiöslukortafyrirtækj- skiptaráðherra um að eigendur anna, fjármagnskostnaöi og tapi greiðslukorta beri- sjálfir kostnaö- vegna þess aö staðgreiðsluafsláttur inn sem hlýst af þessum viöskipt- heildsala nýtist ekki. Að sögn um, ná fram að ganga, má búast Bjöms Friðfmnssonar, aðstoðar- viö því að mismunur þess að greiða manns viðskiptaráóherra, má ætla með korti eða peningum verði um aö þessi kostnaðarauki nemi um 8,3 prósent. Þetta þýðir aö þeir sem 2-3 prósentum af sraásölunni. greiða með peningum borguðu í samtali við DV sagði Bjöm að 97,50 krónur fyrir vöru sem kostar enginn ákvörðun heföi verið tekin 100 krónur nú. Korthafar. þyrftu um hvort tvöfóld verðlagning yrði hins vegar að greiða 105,70 krónur tekin upp í verslunum. Alit eins fyrir sömu vöru. væri líklegt aö greiöslukortafyrir- Sveinn Björasson, fuiltrúi við- tækin yrðu sjálf að innheimta skiptaráðherra í Verðlagsráöi, þennan kostnað og þyrftu þá hand- lagöi fram tillögu ráðherra um að halar kcitanna að standa skil á verslanir veittu þeim sem borguðu honum um leið og mánaðarlegu með peningum 5 prósent afslátt. uppgjöri. Þessi leiö kynni að valda Þetta var fellt enda þyrftu verslan- lækkun á almennu vöruverði sem ir þá aö bera kostnaðinn án þess nemur kostnaði verslunarinnar að eigendur kortanna bæru byrð- vegna greiðslukortanna, eða 2-3 arnar. Þessi ráðstöfun myndi því prósentum. Handhafar kortanna leiöa til hækkunar á vöruverði. þyrftu hins vegar að greiða um 8 Tahð er að greitt sé fyrir um 30 prósent kostnað af sínum viöskipt- prósent af smásöluversluninni með um ef miðað er við núverandi hlut greiöslukortum. Kostnaður versl- kortanna í smásölunni. ana vegna þessara viöskipta hlýst .gSe í dag mælir Dagfari Flugstöðin enn Þeir eru enn famir að deila um flugstöðina á Alþingi. Það er aö segja, menn eru að rífast um það hvað byggingarkostnaðurinn fór langt fram úr áætlun og hvers vegna. Dagfari hélt nú raunar að þetta mál væri löngu útrætt. Það hefur komið fram áður að bygging- amefnd flugstöðvarinnar er algjör- lega saklaus af hækkun kostnaðar. Gerð var áætlun áður en verkið hófst og ef tekið er tilht til verð- hækkana á byggingartíma, breyt- inga á stöðu dollars, breytinga á hönnun, breytinga á reikningsupp- hæðum og breytinga á viðhorfum manna yfirleitt um hvað sé dýrt og hvaö sé ekki dýrt þá voru ráða- menn sammála um að þama hefði bara gerst þaö sem alltaf væri að gerast og ekkert við því aö gera. Að visu heföi kostnaður farið millj- arð fram úr áætlun en það var bara vegna þess hve vel var að verkinu staðið. Auk þess kom í ljós að menn höfðu bara ekki verið nógu víðsýn- ir í upphafi þegar þeir smíðuðu þessa áætlun. Húsameistarar, ráð- herrar og byggingamefndarmenn hölluðu sér því aftur á hitt eyrað þegar umræðum lauk um þetta mál á Alþingi síðasthðið haust. En nú skeður sá fjandi að kvennalistakonur fara aftur aö þenja sig út af kostnaði við flug- stöðina. Það var nú ljóta sendingin að fá þessar kellur inn fyrir veggi þinghússins. Geta aldrei verið th friðs og skhja greinilega ekki um hvað póhtík snýst. í stað þess að halda sig viö umræður er varða barnaheimhismál, jafnréttiskjaft- æði og þar fram eftir götunum æsa þær enn til ófriðar út af einni lítilh flugstöð og ekki stóð á Steingrími J. Sigfússyni að grípa tækifærið feginshendi og lýsa því enn einu sinni hvað þetta væri vond flug- stöð. Kehurnar eru búnar að hggja yfir skýslu Steingríms'Hemiannssonar' um byggingarkostnaðinn sem og skýrslu Ríkisendurskoðunar um sama efni. Þessar konur hafa auð- vitað ekkert annað að gera en hggja yfir svona langlokum því ekki þurfa þær að stjóma landinu sem er ákaflega erfitt og tímafrekt verk eins og staöan er í dag. Eftir að hafa rýnt í þessi plögg í langan tíma þurftu þær endilega að reka nefið í smáósamræmi. Steingrímur sagði nefnilega í sinni skýrslu af flug- stööin kostaði tvo og hálfan mihj- arö en þeir hjá Ríkisendurskoðun segja kostnaðinn vera nær þrem milljörðum. Og út af þessum tittl- ingaskít ætla kellurnar að ærast og hafa uppi stóryrði. Segja meira að segja að það verði aö draga ein- hvern th ábyrgðar í þessu máli. Nú er það auðvitað út í hött að vera að rífast um nokkrar krónur svona eftirá. Eytt er eytt og vita vonlaust að ná því til baka. En það tekur út yfir ahan þjófabálk ef þaö á að fara að elta uppi menn út af litlum fimm hundmð milljónum. Fyrr má nú aldeibs fyrrvera, eins og þjóðskáldið sagði. En Steingrím- ur Hermannsson er ekki vinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar fyr- ir ekki neitt. Hann viðurkenndi aö vísu að margt hefði farið úrskeiöis við hönnun byggingarinnar enda kom þar enginn framsóknarmaður við sögu, heldur Ameríkumenn og íslenskir sjálfstæðismenn. Stein- grímur benti líka á í umræðunum á Alþingi að þaö mætti nú ekki taka allt í skýrslu Ríkisendurskoðunar of alvarlega. Þetta er hárrétt hjá utanríkisráðherra. Þessir endur- skoðendur em upp til hópa smámunasámir menn, taka tölur ahtof bókstaflega og standa í þeirri meiningu að ekki sé hægt að stemma af bókhald nema sam- kvæmt ákveðnum formúlum stærðfræðinnar. Stjórnmálamenn nota hins vegar aðrar reikningsað- ferðir og það ættu þeir hjá Ríkis- endurskoðun að vera búnir að fatta fyrir löngu. Þá komst Steingrímur að þeirri bráðsnjöllu niðurstöðu að það munaði sko alls ekki hálfum milljarði á sínum tölum og þeirra hjá Ríkisendurskoðun. Þegar búið væri að hta allar tölur velvildar- augum þá kæmi í ljós að það munaði ekki nema svona 88 mihj- ónum króna á sínum tölum og tölum endurskoðendanna. En það kom líka fram hjá ráðherranum að ýmislegt væri enn ógert við flug- stöðina, til dæmis ætti eftir að koma fyrir hitaveitu og reisa hsta- verk þar fyrir utan. Því kann svo að fara fyrir rest að lokatölur Stein- gríms verði þær sömu og Ríkisend- urskoðunar og þá ættu allir aö vera ánægðir. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.