Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1988, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988. LífsstQl Neytendur þurfa að vera vel á verði: Meira en sjöfaldur munur á uppsetningu loftneta Neytendur þurfa sífellt að vera á verði til að þeir séu ekki hlunnfarn- ir. Fyrir rúmu án létu íbúar fjöl- býlishússins að Álftamýri 24-30 í Reykjavík setja upp sjónvarpsloft- net sem gæti tekið við sendingum Sjónvarpsins og Stöðvar 2. Sjón- varpsþjónustan sf. áð Síðumúla 2 setti upp loftnet og magnara sem náði báðum stöðvunum auk send- inga frá kapalkerfi sem í gangi er í hverfínu. Reikningur Sjónvarps- þjónustunnar hijóðaði upp á rúmar níu þúsund krónur. í nóvember síðastliönum rofnaði sendingin og ljóst var að loftnetið eða magnarinn hafði bilað. Þetta gerðist um helgi og íbúar fjölbýlis- hússins urðu að sjálfsögðu felmtri slegnir þar sem þeir sáu fram á sjónvarpslausa helgi. Við svo búið mátti ekki standa og hringt var út og suður en engin viðgerðarþjón- usta svaraði kallinu fyrr en náðist í mann nokkurn sem rekur sjón- varpsloftnetaþjónustu í frístund- um. Hann kom á staðinn og sagði eftir stutta skoðun að fyrri upp- setning hefði verið „fúsk“. Hann tók að sér verkið, lauk því og sendi inn reikning upp á rúmar 76 þús- und krónur. í verðinu voru inni- faldir þrír magnarar, hver upp á tæpar nítján þúsund krónur, og eitt stykki „power supply“ eða straumgjafi upp á tæp tólf þús- und. Neytendur þurfa að gæta sín á kostnaðinum við að setja upp sjónvarpsloftnet eins og á öllum öðrum svið- um. Það sanna dæmin. Þegar viðgerðarmaöurinn hafði lokið sínu verki kom í ljós að Sjón- varp og Stöð 2 sáust prýðilega en kapalkerfið var dottið út. Sagðist viðgerðarmaðurinn geta bætt við enn einum magnaranum til að ná þeirri sendingu en magnarinn kostaði tæp 19 þúsund. Var þá heildarverðið komið upp í tæp hundrað þúsund krónur! íbúar íjölbýlishússins voru ekki sérlega hrifnir af reikningnum og báru hann undir sérfræðinga sem töldu magnarana allt of sterka og að þeir myndu nánast duga sæmi- lega stóru byggðarlagi. Starfsmenn Sjónvarpsþjónustunnar kváðu sýnt aö magnarinn sem þeir settu upp hefði bilað og hann væri enn í ábyrgð og því hefði ekkert kostað húsfélagið aö skipta um magnara sem fyllilega hefði dugað fiölbýhs- húsinu. Nú var farið fram á það að við- gerðarmaðurinn góði tæki niður magnara sína, endurgreiddi þá en eftirhéldi vinnulaunum sínum, tækjaleigu og bílakostnaði. Þessu neitaði hann. Það fór því svo að Sjónvarpsþjónustan sf. tók niður kerfið sem viðgerðarmaðurinn hafði sett upp og kom fyrir magn- ara eins og þeim sem fyrir hafði verið. Verslun Georgs Ámunda- sonar & Co, sem selt hafði viðgerð- armanninum magnarana alla, tók við þeim af húsfélaginu og ætlar að annast sölu á þeim fyrir íbúa fiölbýlishússins. Sú staðreynd stendur sem sé eftir að til eru iðnaðarmenn hér í bæ sem pranga inn á fólk meira en sjö- falt kostnaðarsamari þjónustu en nauðsynlegt er og rétt er fyrir fólk að kynna sér vel állar hliðar mál- anna áður en það gengur til samninga. -ATA i BLAÐ BURDARFÓLK t 1? 1? i i i Samtún ************************* Borgartún 22-34 ************************* Hverafold Funafold ************************* Miðtún ************************* Vesturás Klapparás Kleifarás Lækjarás Malarás ************************* t 111 ÞVERHOLTI 11 AFGREIÐSLA t 111 SÍMI 27022 Manðr fúskarar ■ faginu „Ég held að ekki séu mörg dæmi um svona mál því samkeppnin er hörö á þessu sviöi. En þetta sýnir kannski vel aö fólk á að leita tilboða í verk eins og þetta. Þá fær það bestu vöruna á lægsta verðinu,“ sagði Georg Ámundason en fyrirtæki hans seldi viðgerðarmanninum magnara og önnur tæki fyrir fiölbýlishúsið í ÁiftamýrinnL „Það er fúllt af fuskurum í faginu og fólk ætti því aö leita til fyrirtækja sem sérhæfa sig í iöninni því annars getur farið illa eins og dæmin sanna. Viö höfum tekið að okkur aö selja tækin sem sett voru upp fýrir fiölbýl- ishúsið í Álftamýrinni en þess skal getið að í millitíöinni hefur komið tollalækkun á þessar vörur sem að sjálfsögöu lækkar verömæti þeirra. Við höfum reynt að koma til móts við íbúa hússins eins og við getum en samt verður þaö óneitanlega fyrir töluveröum kostnaði vegna vanþekk- ingar viðgerðarmannsins,“ sagöi Georg. -ATA Þekkingarieysi eða bara hreinn stuldur - segir Gunnar HJá Sjónvarpsþjónustunni „Það er óalgengt að fólk lendi í svona slæmum málum í þessari grein. Eg er að vona að hér hafi þekkingarleysi viðgerðarmannsins verið inn að kenna. Ef ekki þá er þetta hreinn stuldur,“ sagði Gunnar HUmarsson þjá Sjónvarpsþjónustunni sf„ Síðumúla 2. „Þama var um að ræða stærsta magnarakerfi sem til er fyrir fiölbýlis- hús og er svipað kerfi og við settum upp á Grandanum nýlega fyrir nokkur hundruð íbúöir. Að setja svona kerfi í venjulegt Qölbýlishús er svipað og ef fimm manna fiolskylda seldi fólksbíliim siim og keypti sér rútu,“ sagði Gunnar. Hann benti jafnframt á að fólk ætti að snúa sér til fyrirtækja sem ynnu að slíkum málum dags daglega, ekki einhverra manna sem væru að vinna að þessu í frístundum, vinnu sem hvergi væri gefin upp og því væri er- fitt að sækja menn til ábyrgðar. -ATA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.