Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988. 19 pv __________________________________________________________Meiming Hildigunnur Rúnarsdóttir, 24 ára tónskáld: Ennþá fullt af möguleikum á sviði klassískrar tónlistar „Uppáhaldstónlistin er Mahler, einkum 4. sinfónían. Ég er alæta á klassíska tónlist og djass, en hlusta ekkert á popp nema Sykurmol- ana,“ segir Hildigunnur Rúnars- dóttir, 24 ára . Hún er yngst þeirra átta tónskálda sem þessa viku taka þátt í tónlistarhátíð fyrir ungt fólk - UNM - í Osló. Þar verður flutt eftir hana kór- verkið Missa Brevis eða Stutt messa, og mátti einnig heyra það á tónleikum í Norræna húsinu á laugardaginn var. Það er ekkert skrýtið að Hildi- gunnur skuli ganga fram á tón- völlinn með kórverk. Móðir hennar er þekktur kórstjóri, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir-í Garðabæ. Fjöl- skylda hennar er yfirhöfuð mjög tónelsk og myndar meirihluta í sönghópnum „Hljómeyki" sem get- ið hefur sér góðan orðstír. „Ég var pínulítil þegar ég fór að búa til laglínur,“ segir Hildigunn- ur, „og nú hef ég verið í tónfræði- deild Tónlistarskólans í Reykjavík í tvö ár með tónsmíðar sem val- grein. Ég útskrifast næsta vor og prófverkefnið verður stutt verk fyrir hljómsveit. En nú er ég að skrifa verk fyrir flðlu sem var pant- að hjá mér frá Bandaríkjunum." Oft er sagt að allir möguleikar á því að skapa eitthvað nýtt á sviði klassískrar tónlistar séu löngu gjörnýttir, og meira en það, en Hildigunnur er á öðru máh: „Þetta var líka sagt á dögum Mozarts!“ Hún ætlar sér að halda áfram tón- smíðum að námi loknu: „Þegar maður er einu sinni byrjaður er Hildigunnur Rúnarsdóttir: „Eg var pínulítil þegar ég fór að búa til laglin- ur...“ DV-mynd:JVA erfitt að hætta,“ segir hún. Með- fram hyggst hún hafa tekjur af fiðluleik, sem hún hefur numið frá sjö ára aldri. Hún stundar sund og hjólar, fer lítið á böll en frekar á staði þar sem hægt er að tala við góða vini í næði. „Áður fór ég oft á Gaukinn.en nú er Geirsbúð uppáhaldsstaöurinn." Við spyrjum hana að lokum hvort vinirnir séu nokkuð hissa á þessu starfsvali, sem hingað til hefur ver- ið mjög svo óvenjulegt fyrir konur. „Nei,“ segir Hildigunnur. „Þeireru allir að syngja og spUa á hljóðfæri, svo þeim finnst flnt að fá einhvern til að semja fyrir sig.“ ihh VEISLA í jeppa á Ijalli eða í sumarhúsinu. Ekkert mál efþú hefur G-þeytirjómann meðferðis. Skál og gaffáll duga til að þeyt’ann. Hvort þú snarar svo fram heilli rjómatertu eða írsku kaífi fer eftir tilefninu. ««•01* \iSUy geymsluþolmn þeytinomi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.