Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1988, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988. 3 DRAMATTSK TILÞRIF í BEINNI ÚTSENDINGU Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2: „Hlutirnir gerast fyrr og hraðar hjá okkur -sáermunurinn.“ Fréttastofa Stöðvar 2 hefur unnið marga glæsta sigra á skömmum tíma. Hún er fyrr áferðinni en keppinauturinn og oftar en ekki hefur hún skotið kollegum sínum ref fyrir rass með vandaðri umfjöllun um stórviðburði. Fréttastofan hefur ekki síður farið á kostum í beinum útsendingum. Tilþrif hennar hafa jafnvel valdið dramatískum þáttaskilum í íslenskum stjómmálum. Hver man ekki yfirheyrsluna yfir Þorsteini Pálssyni sem leiddi til stofnunar Borgaraflokksins? Eða sögulegan fund þeirra Jóns Baldvins og Steingríms í beinni útsendingu á „kvöldi hinna löngu hnífa'1? Og hver man ekki einvígi þeirra Jóhanns Hjartarsonar og Kortsnojs, þar sem Stöð 2 gekk lengra en aðrir og varð fyrst allra í veröldinni til þess að sýna skákkeppni í beinni útsendingu heimsálfa á milli. Páll Magnússon hefur verið fréttastjóri Stöðvar 2 frá upphafi. Hann kom heim frá Svíþjóð með Phil Cand próf í stjórnmálasögu og hagsögu fyrir níu árum síðan. Ferill Páls í blaðamennskunni hefur veriðjafn hraður og fréttirnar hans eru á Stöð 2. Hann gerðist blaðamaður á Vísi, varð fréttastjóri Tímans, síðan aðstoðarritstjóri lceland Review, annaðist fréttaskýringaþætti í ríkisútvarpinu, slósíðan í gegn á skjánum með „seinni fréttir" ríkissjónvarpsins og starfaði sem varafréttastjóri á þeim bæ þar til hann réðist til starfa á Stöð 2 sem fréttastjóri. „ Ég kom hérað tómu húsi 1986, staðráðinn í að gera fréttastofu Stöðvar2að bestu fréttastofnun landsins. Tilþess þurfti ég að ná til mín hæfasta fréttafólkinu. Það tókst. Kosningasjónvarp okkar í fyrra færði fólki heim sanninn um að við vorum ekki aðeins komin til að vera, heldurtilaðgerabetur. Um mannaráðningar, fréttamat og annað, sem snertirhina faglegu hlið hefég frelsi. Ég erbiessunariega laus við stirðbusalegarákvarðanirofanfráogpólitísktskrifræði. Þess vegna erum við komin lengra á 2 árum en keppinauturinn hefur náð á 20 árum“. APRÍL'86 JÚLÍ’88 10% 40% Fleiri og fleiri fylgjast með fréttum Stöðvar 2 í 19:19.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.