Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 20
20 í MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 1989. Iþróttir Þorvaldur örlygsson, landsliösmaður úr KA, hefur þarna snúiö á tvo Valsmenn, þá Sævar Jónsson og Atla Eövaldsson, sem báðir eru félagar Þorvalds í íslenska landsliðinu. DV-mynd Brynjar Gauti Norðanmeim KA hleypa spennu í slaginn um íslandsmeistaratitilinn: Valur lá í nepjunni - KA-menn unnu Valsmenn, 0-1, í tvísýnum leik á Hlíðarenda Valur.... KR....... Akranes... KA....... FH....... Fram..... Keflavík... Vlkingur.. 1 2 9-3 16 1 2 12-9 13 2 9-6 13 2 11-8 12 2 9-9 12 3 6-7 10 3 8-12 9 4 13-11 8 Fylkir.... Þór....... .8215 7-14 7 .7 1 2 4 5-10 5 í kvöld lýkur 8. umferð en þá leika Fram-|A og Þór-KR. í vikunni fer 9. umferð fram en þá leika Fylkir - FH á miðvikudag, á fimmtudag verða þrír leikir, KA-ÍBK, Víkingur-Fram og ÍA-Þór. Á föstudag leika loks KR-Valur. KA-menn hleyptu lífi í slaginn um Islandsmeistaratitilinn í gærkvöldi. Unnu þeir þá sigur á Valsmönnum á Hlíðarenda, 0-1. Þeir síðartöldu tróna þó enn á toppi fyrstu deildarinnar. Eina mark leiksins gerði Antony Karl Gregory er hann fékk knöttinn um miðbik síðari hálfleiks, óvaldaður í vítateig Vals. Kom færi hans í kjölfar aukaspymu frá Gauta Laxdal en boltinn barst til Antony eftir mikinn háloftabardaga í vítateig bikarmeistaranna. Átti Antony, sem áður lék í framlínu Hlíðarendamanna, ekki í vand- ræðum með að senda boltann fram hjá Bjama Sigurðssyni sem varði annars vel í leiknum. Viðureignin var í heildina dapurleg. Lítið var um áferðarfallega knatt- spymu en meira um tilefnislítil hlaup, spörk og hvimleiö brot. Leikmenn vom raunar ekki öfundsverðir af hlutskipti sínu. Spilað var í kalsagarra á hálum og blautum velli. „Þessi sigur okkar er móralskur og mikilvægur," sagði Guðjón Þórðar- son, snjall þjálfari norðanmanna, eftir leikinn. Bestir í liði KA vom þeir Þorvaldur Örlygsson og Erlingur Kristjáns- son. Sá fyrrtaldi skóp oftsinnis usla en hinn var traustur í vöm. Hjá Val ríkti meðalmennskan en Bjami stóð þó upp úr í markinu. Þess má geta að Valsmaðurinn Sævar Jónsson meiddist nokkuð tila á höfði eftir árekstur við fyrrum félaga sinn, Jón Grétar Jónsson. Báðir urðu aö yfirgefa völlinn vegna slyssins. - Sævar strax eftir óhappið en Jón Grétar nokkm síðar. Dómari leiksins náði ekki tökum á honum. Gunnar R. Ingvarsson. ý? Maður leiksins: Þorvaldur Örlygsson úr KA. -JÖG Brann-bræður hreppa góðan byr - Björgvinjarliöiö vann Lilleström, 2-0 Brann, liði bræðranna Ólafs og Teits Þóröarsona, gekk vel í norsku fyrstu detidinni um helgina. Brann mætti þá efsta liðinu, stórveldinu Lilleström, og haföi betur í góðum leik, 2-0. Björgvinjarliðið, sem lék á heimavelli sínum, sýndi loks þá knattspyrnu sem aðdáendur þess væntu afþví í upphafl móts og áttu meistaraefnin aldrei möguleika. Ólafur Þórðarson, Skagamaöur- inn snjalli og harði, lék ekki með Björgvinjarliðinu að þessu sinni en honum var sem kunnugt er vikiö af leikvelli í síöustu umferð. Þessi úrslit auka spennuna í norsku deildinni og gefúr Brann byr í öll segl. Láðiö hefur siglt lygn- an sjó um miðja deild en er nú nær toppnum en áður. Það heíúr 16 stig í 6. sæti. Lilleström er enn efst þrátt fyrir ósigurinn gegn Brann með 23 stig en Molde og Vaalerengen koma þar á eftir með 22 stig. -JÖG Kodak ^ Express % ■ A IS/KET rviírsrúTZJR jiiirrmiiiniiiiim mimnm HTm LJÓSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178 • SÍMI 68 58 11 rmaiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiuimiiin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.