Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 9
■ÞRIÐJUDAGFUK"9'j 'JAN OAK Mö. Utlönd Bandaríkin um tillögur um afvopnun á höfunum: Engin stefnu- breyting á döfinni 1985 en settíst í helgan stein á síðasta ári sökum aldurs, sagði í viðtali við bandaríska dagblaðið Washington Post að stjórnvöld í Bandaríkjunum ættu að breyta stefnu sinni og íhuga samningaviðræður við Svétríkin um afvopnun á höfunum. Viðbrögð Bandaríkjastjórnar voru á þann veg að vísa þessum tillögum á bug. Crowe „lét í ljósi sínar per- sónulegu skoðanir. Stefnu okkar setti forsetinn síðast fram á fundi með blaðamönnum að loknum leið- togafundi stórveldanna á Möltu. Sú er stefna okkar,“ sagði talsmaður utanríkisráðuneytís Bandaríkjanna, Margaret Tutwiler, í gær. Bandaríkjastjórn hefur ætíð lýst sig andvíga viðræðum um hömlur á kjarnorkuvopn um borð í skipum en þar hafa Bandaríkin talsverða yfir- burði. Á leiðtogafundi stórveldanna á Möltu í desember síðastliðnum ít- rekaði Bush Bandaríkjaforseti þessa stefnu stjórnar sinnar og hafnaði til- lögu Mikhails Gorbatsjovs Sovét- forseta um viðræður um hömlur á vígbúnaði á hafi úti. Reuter Bandarísk stjómvöld vísuðu í gær á bug tillögu William Crowe, fyrrum formanns bandaríska herráðsins, þess efnis að Bush-stjórnin ætti að I huga að viðræðum við sovésk stjórn- völd um útrýmingu kjarnorkuvopna á höfunum. Crowe, sem tók við æðsta tith innan bandaríska hersins árið William Crowe, fyrrum formaður herráðs Bandaríkjanna, heimsótti ísland í fyrra. Hér sést hann ásamt Jóni Baldvini Hannibalssyni utanríkisráðherra og Davíó Oddssyni borgarstjóra fyrir utan Höfða. Rúmenar bíða eftir matargjöfum fyrir utan kirkju i Búkarest. Gifurlegur skortur er á matvælum og orku í Rúmeniu og i sumum héruðum landsins eru aðeins til tíu daga matvælabirgðir. Símamynd Reuter Rúmenum veitt ferðafrelsi Rúmenar vöknuðu í morgun full- vissir um að þeir gætu ferðast hvert sem þeir vildu í fyrsta sinn í íjörutíu ár. Þjóðfrelsishreyfingin, sem tók við völdum eftir fall Ceausescus í des- ember, tilkynnti í gær ný vegabréfs- lög. í þeim er kveðið á um ferðafrelsi fyrir alla Rúmena heima og erlendis. Rúmenar, sem búsettir er erlendis án skilríkja, munu einnig eiga rétt á vegabréfum sem gefa verður út inn- an tuttugu daga frá því að umsókn berst. í gær tilkynnti bráðabirgðastjórnin einnig að slakað yrði á gjaldeyris- reglum, að háskólar fengju míeira sjálfstæði og kjör bænda yrðu bætt. Samtímis því sem menn fógnuðu þessum breytingum var kveðinn upp fyrsti dómurinn yfir félaga í öryggis- Jögreglunni í bænum Sibiu. Major Ion Bundea var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir morðtilraun. Hann var ákærðúr fyrir hafa skotið að fimm liðsforingjum og sært einn þeirra. Harðir bardagar urðu í Sibiu í des- emberlok þar sem Nicu, sonur Ceau- sescu, var flokksleiðtogi. Enn er ver- ið að yfirheyra hann. Þjóðfrelsishreyfingin, sem í eiga sæti fyrrum andófsmenn, hermenn, menntamenn og fyrrum kommúnist- ar, hefur hingað til ekki viljaö greina frá hversu margir meðlimir öryggis- lögreglunnar eru undir lás og slá né hversu margir féllu í byltingunni. Hin þekkta rúmenska andófskona, Doina Cornea, varaði í gær við því að hætta væri á að fyrrum kommún- istar í bráðabirgðastjórninni væru að reyna að stela byltingunni. Hvatti hún verkamenn til að mótmæla á götum úti. Cornea sagði að á hverjum degi kæmu til sín verkamenn og spyrðu hana hvort hún sæi ekki að sömu mennirnir væru enn við völd. Kvað hún verkamenn hafa greint frá því að þeim væri hótað óbeint þar sem þeim væri sagt að hafa hægt um sig og verða ekki til vandræða. Cornea var sett í stofufangelsi 1987 fyrir að skrifa opið bréf þar sem hún gagnrýndi þá stefnu Ceausescus að jafna viö jörðu þúsundir þorpa. Reuter •íi; t I Mótmælaundirskriftum gegn auknum réttindum Tyrkja safnað i Sofíu i Búlgariu. Simamynd Reuter Biðstaða í Búlgaríu Þjóðernissinnaðir Búlgarar hættu við verkfóll og létu af mót- mælum gegn auknum réttindum tyrkneska minnihlutans á meðan beðið er eftir niöurstöðum um- ræðna um þjóðernisdeilurnar. Búlgarska þingið skipaði á sunnu- daginn sérstaka nefnd vegna mót- mæla Búlgara sem þá höfðu staðið yfir í viku. Andrei Lukanov, félagi í stjórn- málaráðinu, er fulltrúi stjórnar- innar í viöræðunum viö stjórnar- ándstæðinga og fulltrúa búlgarska þjóðernissinna og Tyrkja. Einn fundur hefur þegar veriö haldinn og annar fer fram í dag. Eru menn bjartsýnir á að árangur náist. I stjórnartíð Zhivkovs voru réttindi Tyrkja til að iðka trú sína, múha- meðstrú, skert auk þess sem þeir urðu að taka búlgörsk nöfn. Þjóð- ernissinnaðir Búlgarar óttast að menning þeirra líði undir lok fái Tyrkir í Búlgaríu, sem eru ein og hálf milljón, aukin réttindi. Búlgarski kommúnistaflokkur- inn tók í gær í sátt þrjátíu embætt- ismenn flokksins sem reknir höfðu verið í stjórnartíð Zhikovs, fyrrum leiðtoga, sem settur var af í nóv- ember. Embættismennirnir höfðu verið látnir víkja þar sem skoðanir þeirra voru á öndverðum meiði við skoðanir stjórnarinnar. Reuter Vinningstölur laugardaginn 6. jan. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 2.351.342 2. 1 408.866 3. 4af 5 85 8.297 4. 3af5 3452 476 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.108.605 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.