Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 5
MANUDAGUR 9. APRÍL 1990. MANUDAGUR 9. APRÍL 1990. Iþróttir Iþróttir Kristrún fyrsti meistarinn í glímu kvenna „Ég heföi gjaman viljað sjá fleiri keppendur á þessu móti í kvennailokknum og vonandi verða þeir fleiri í framtíðinni. Þetta var annars skemmtilegt mót og það var virkilega gaman að ná að sigra/‘ sagði Kristrún Sigurfmnsdóttir, HSK, en um helgina varð hún fyrsti íslandsmeistarinn í glímu kvenna. Meistaramót íslands, landsflokkaglíman var glímd á Laugarvatni um helgina og alls mættu 80 glímumenn til leiks, þar af voru 14 keppendur í kvennaflokki. Jóhannes Sveinbjömsson, HSK, sigraði nokkuð örugglega í þyngsta flokki, +90 kg og KR-ingurinn Ólafur Haukur Ólafsson vann mjög örugg- an sigur í -90 kg flokki. Islandsmeistari í -81 kg flokki varð Kristján Ingva- son, HSÞ, og félagi hans í HSÞ, Ingvi Kristjánsson, varð sigurvegari í -74 kg flokki. Torfi R. Kristjánsson, HSK, varð íslandsmeistari í -68 kg flokki. -SK/Hson Missir Stevens af HM á Ítalíu? Svo kann að fara að enski landsliðsmaðurinn í knattspymu, Gary Stev- ens, sem leikur með Glasgow Rangers í Skotlandi, missi af úrslitakeppni heimsmeistarakeppninnar á Ítalíu í sumar. Stevens er talinn hafa fót- brotnaö í leik Rangers gegn Aberdeen í gær (0-0) en hve alvarleg meiðsl- in em mun koma í ljós eftir læknisskoðun í dag. Stevens er mjög öflugur hægri bakvörður og það verður mikið áfall fyrir enska landsliðið ef hann getur ekki leikið á Ítalíu. Stevens varð að fara af leikvelli eftir fimmtán mínútna leik í gær gegn Aberdeen og lækn- ir Rangers, Donald Cruikshank, sagði í gær að mjög vafasamt væri að Stevens gæti leikið á Ítalíu. Þorvaldur bestur á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Þorvaldur Orlygsson var kjörinn íþróttamaður Akureyrar 1989 en kjör- inu var lýst á aðalfundi íþróttabandalags Akureyrar um helgina. í 2. sæti í kjörinu varð Haukur Eiríksson skíðamaöur, þriðji Erlingur Kristjánsson, fyrirliði íslandsmeistara KA í knattspymu og handknatt- leiksmaður, fjórði Stefán Jóhannesson blakmaður og Guðmundur Bene- diktsson, knattspymu- og handknattleiksmaður, í 5. sæti. Það ýoru fulltrú- ar félaganna í stjóm ÍBA ogfjölmiðlamenn sem greiddu atkvæði í kjörinu. Þá var á þinginu veittur bikar sem ÍSÍ gaf ÍBA og veittur er fyrir framúr- skarandi störf að íþróttamálum. Hann hlaut að þessu sinni Óðinn Áma- son sem hefur unnið geysilegt starf að málefnum skíðamanna. • íslandsmeistarar KR í körfuknattleik 1990. Liðið er vel að sigrinum komið og KR-ingar sýndu það og sönnuðu i úrslitakeppni úrvalsdeildar að þeir hafa á að skipa besta liðinu hér á landi um þessar mundir. DV-mynd GS Stórtap gegn USA í St. Louis • Bjami Jónsson, KA, á hér í höggi við tvo leikmenn bandaríska liðsins i gærkvöldi. Bandarikjamenn, sem eru á leiðinni i lokakeppni HM í knattspyrnu i fyrsta skipti í 40 ár, sigruðu í teiknum, 4-1. Simamynd Reuter „Þetta var dómaraskandall framan af. Við áttum að fá tvær vítaspymur á fyrstu 10 mínútunum en dómarinn dæmdi ekkert. Þá áttum viö í miklum vandræðum með bandarísku sóknar- mennina vegna þess að línuvörðurinn flaggaði aldrei rangstöðu á þá,“ sagði Pétur Pétursson í samtali viö DV í gærkvöldi. íslenska landshðið í knatt- spyrnu tapaöi illa fyrir því bandariska í St. Louis í gærkvöldi, 1-4, eftir að staðan í leikhléi hafði veriö 0-8. „Síöari hálfleikurinn var mun betri hjá okkur og þá vorum við óheppnir aö skora ekki nokkur mörk. Viö áttum tvö stangarskot og Kjartan Binarsson var mjög óheppinn að skora ekki. Bandaríska liðið er þokkalega sterkt og í góðu formi enda er liðið á leiö í úrslitakeppnina á Ítalíu. Þeir komust þó upp með mörg gróf brot gegn okkur og dómarinn var ótrúlega slakur," sagöi Pétur ennfremur. Steve Trittschuh náði forystunni fyr- ir Bandaríkin á 16. mínútu og Eric Wynalda bætti tveimur mörkum við fyrir leikhlé á 30. og 37. mínútu. Bruce Murray kom bandaríska liöinu í 4-0 á 57. mínútu en Pétur Pétursson skoraði mark íslenska liðsins úr vítaspymu fimm mínútum fyrir leikslok. 3.287 áhorfendursáuleikinn. -SK Landsflokkaglíman á Laugarvatni: - KR Islandsmeistari í körfuknattleik 1990 eftir öruggan sigur í þriðja úrslitaleiknum gegn Keflvíkingum, 80-73 • Jóhannes Sveinbjörnsson, HSK, íslandsmeistari í + 90 kg flokki, og Kristrún Sigurfinnsdóttir, HSK, fyrsti íslandsmeistari kvenna í glimu, bregða á leik fyrir Ijósmyndara DV eftir keppnina á Laugarvatni um helgina. DV-mynd Hson og upp frá því tók hðið öll völdin á vellinum. Um tíma í fyrri hálfleik náðu KR-ingar ellefu stiga forystu. Á þessum leikkafla fór Páll Kolbeinsson á kostum hjá KR, dreif liðið með áfram með sínum ógnarhraða. Óhætt er að segja að PáU Kolbeinsson er einn sterk- asti körfuknattleiksmaður sem komið hefur fram hér á landi um árabil. Lið með þannig leikmann á sínum snærum er ekki á flæðiskeri statt en sterk liðsheild KR-liðsins hefur þó öðru fremur fært þeim titilinn að þessu sinni. Matthías Einarsson hafði mjög góðar gætur á Guð- jóni Skúlasyni og kom það óneitanlega niður á leik Keflavíkurhðsins. Guðjón lenti ennfremur í vihuvand- ræðum snemma í leiknum en það sama var uppi á teningnum hjá Birgi Mikaelssyni. KR-ingar voru ör- yggið uppmálað í síðari hálfleik og náðu mest 16 stiga forskoti, 71-55. Keflvíkingar veittu Utla sem enga mót- spyrnu og virtist sem þeir væru búnir að játa sig sigr- aða um miðjan hálfleikinn. Eins og áður sagði var PáU Kolbeinsson yfirburða- maður á veUinum, einnig var Sovétmaðurinn í hði KR, Anatoli Kouvton, mjög skæður og hirti aragrúa frákasta. Guðni Guðnason hafði sig htiö í frammi fram- an af leiknum en óx þegar á leikinn leið. Axel Nikulás- son barðist af miklum krafti, var mjög góður að vanda í vörninni og drjúgur í sókninni. Annars á aUt KR- Uðið hrós fyrir frammistöðuna. Keflvíkingar náðu sér engan veginn á strik enda er ekki auðvelt verk að rífa sig upp eftir tvo tapleiki í röð. Einar Einarsson var bestur Keflvíkinga í leiknum en þar er á ferðinni vaxandi leikmaður. Sandy Ander- son var mjög slakur í leiknum og Guðjón lék undir getu. Magnús Guðfinnson var ágætur inn á milli. • Dómarar leiksins voru Bergur Steingrímsson og Leifur Garðarsson og á hefldina litið dæmdu þeir ágæt- lega. • Stig KR: Páll Kolbeinsson 15, Axel Nikulásson 15, Birgir Mikaelsson 14, Guðni Guðnason 14, Anatoli Kouvton 10, Matthías Einarsson 10, Hörður Gauti Gunnarsson 2. • Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 15, Sandy Anderson 14, Einar Einarsson 11, Magnús Guðfinnsson 11, Falur Harðarson 9, Nökkvi Jónsson 7, Sigurður Ingimundar- son 4, Ingólfur Haraldsson 2. -JKS Guðni Guðnason fyrirliði KR heldur hér á hinum risavaxna íslandsbikar sem KR-ingar unnu um helgina. KR-ingar þurftu aðeins þrjá leiki gegn Keflvíkingum til að tryggja sér íslandsmeistara- titilinn í ár en ellefu ár eru síðan vesturbæjarliðið varð síðast íslandsmeistari í meistaraflokki karla. DV-mynd GS • Lazslo Nemeth. „Sterk vöm færði okkur sigurinn“ „Éger að vonum mjög ánægður meö sigurinn á íslandsmótinu. Það var öðru fremur sterkur vamarleikur sem færði okkur sigurinn í þessum leík. Við ætluð- um okkur að hafa góðar gætur á Guðjóni Skúlasyni og það gekk eftir,“ sagði Lazslo Nemeth, ung- verski þjálfarimi hjá KR-ingum, í samtali við DV eftir leikinn gegn Keflvíkingum á laugardaginn. „Þegar ég lít yfir farinn veg á keppnistímabilinu er ég þokka- lega ánægður en helst af öllu hefði ég óskað þess að við hefðum einnig unnið bikarkeppnina. Lið- ið á eftir að verða enn betra og þegar við horfum til lengri tíma, eins og til næsta vetrar, þurlum við engu að kvíöa,“ sagði Lazslo Nemeth. -JKS Mikil vinna skilaði sér „Þessi úrslit sýna það að við eigum á að skipa besta liðinu. Mikil vinna og strangar æfingar hafa skilað sér. Við æfðum mest allra liða og árangurinn er eftir því. Þetta er búið að vera erfitt keppnístímabil og sigurinn á mótinu var ánægjulegur endir,“ sagöi Guðni Guðnason, fyrirliöi KR, í samtali við DV. „Þetta er besta liðið sem ég hef leikið með á mínum ferli. Anatoli Kouvton heíur styrkt liðið óherajuraikiö og ennfremur höf- um við verið með frábæran þjálf- ara. Lazslo Nemeth er mjög harð- ur en það er ekki spurning að hann er sá hæfasti. Við höfum sett stefnuna á að halda þeim báðum í herbúðum liðsins á næsta keppnistímabili,“ sagði Guðni Guðnason í samtalinu við DV. -JKS . KR-ingar tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik á Jyt laugardaginn var. KR sigraði Keflvíkinga í þriðju viðureign liðanna ——í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi en það lið sem var fyrra til að vinna þrjá leiki hreppti titilinn. Ellefu ár eru síðan KR vann íslandsmeist- aratitilinn í körfuknattleik og er liðið vel að þessum sigri komið en enguni blöðum er um það fletta að KR-ingar áttu besta liðið í keppninni. Leið liðsins að meistaratitlinum var glæsileg, liðið tapaði ekki leik og það eitt sannar styrk þess. KR sigraði Keflvíkinga, 80-73, og segja má að leikurinn hafi verið í öruggum höndum þeirra allan leiktímann. í hálfleik var stað- an 43-36, KR-ingum í hag. í upphafi leiksins virtust Keflvíkingar ekki ætla taugaveikluneinkenndileikbeggjaliðaáfyrstumínút- gefa neitt eftir enda leikurinn nánast upp á líf og dauða unum. Keflvíkingar náðu forystunni, 2-5, en þetta fyrir þá. Suðurnesjamenn byrjuðu betur en mikil reyndist skammgóður vermir því KR jafnaði fljótlega i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.