Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Blaðsíða 8
28 MÁNUDAGÚR 9. APRÍL 1990. íþróttir Sund: Úrslitin í Eyjum • Ragnheiður Runólfsdóttir hvetur keppendur til dáða á innanhússmeistaramóti Islands í Vestmannaeyjum um helgina en mótinu lýkur í dag. Ragnheiður keppir þá meðal annars í 200 metra bringusundi. DV-mynd Ómar Þurfum Helga Tryggvadóttir, DV, Eyjum: „És er mjög ánægður enn sem komiö er. Mér reiknaðst svo til að yflr 50% tímanna séu betri en á mótinu í fyrra. Þaö vantar að vísu fleiri met. Framkvæmd og alit sipulag mótsins er til fyrirmynd- ar,“ sagði Conrad Cawley, iands- liðsþjálfari í sundi, í samtalí við DV. „Ég er bjartsýnn fyrir hönd sundíþróttarinnar á íslandi en að- stööuleysi háir íþróttinni mikið og það er deginum ijósara að við þurf- um nauðsynlega 50 metra inni- iaug. Þá um leiö getum viö haldið alþjóðleg mót og i kjölfariö fylgja fleiri góðir sundmenn. Sundsam- bandið þarf að fá meiri fjárstuðn- ing frá ÍSÍ en í því sambandi get ég nefht aö í fyrra fékk sundsam- bandið 400 þúsund króna styrk frá ÍSÍ en í ár nemur þessi styrkur 350 þúsundum króna,“ sagöi Conrad Cawley. Er að komast ígottform „Mér hst á mótið sem af er. Ágætis timar hafa náðst í mörgum greinum en metaregniö vantar hins vegar alveg. Þaö er alitaf gam- an að keppa í Eyjum og það er eki spuming að þetta er besta laugin á landinu,“ sagði Eðvarö Þór Eð- varðsson, sundmaður úr Njarðvík, í samtali við DV. „Ég tók mér hvíld í eitt ár en ég fmn það á mér að ég er óðum aö koraast í gott form. Ég vonast til þess að ná raínu fyrra formi í sum- ar en þetta tekur allt sinn tíma. Það hefur komið augljóslega fram á mótinu að breiddin er alltaf að aukast í sundinu, sagði Eðvarð Þór. -JKS „Synd að geta ekki gert betur1 - sagði Ragnheiður Runólfsdóttir eftir 100 m bringusundið Helga Tryggvadóttir, DV, Eyjum: Slnnanhússmeistara- móti íslands í sundi lýkur í Vestmannaeyj- um í dag en mótið hef- ur staðið yflr frá því á laugardag. Um 111 keppendur hafa tekið þátt í mótinu og það sem af er hafa fjögur íslandsmet verið sett. Mó- tið hefur í alla staði farið vel fram. Allir bestu sundmenn eru á meðal þátttakenda en þeir hafa bætt sig óverulega og má rekja ástæður þess aftur til síðustu ára en þá bætti sundfólkið sig veru- lega. Af þeim sökum verður alltaf eríxöara að slá met. í dag keppir Ragnheiður Runólfsdóttir meöal annars í 200 metra bringusundi og Eðvarð Þór Eðvarðsson í 100 metra baksundi. íslandsmet, sem sett hafa verið fram þessu eru eftirtalin: Kvennasveit Ægis setti íslands- met í 4X100 metra skriðsundi, synti á tímanum 4:09,05 mín en sveit Vestra átti gamla metið. Sveit Ægis skipuðu Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Hulda Rós Há- konardóttir, Þórunn Kristín Guð- mundsdóttir og Ingibjörg Helga Arnardóttir. Arnar Freyr Ólafs- son setti piltamet í 400 metra fjór- sundi á 4:41,64 mín og bætti gamla metið um níu sekúndur. Birna Björnsdóttir, SH, setti stúlkna- met í 50 metra bringusundi, synti á 34,88 sekúndum og loks setti Gunnar Ársælsson piltamet í 100 metra flugsundi á 59,49 sekúnd- um. Sigurvegarar í einstökum greinum til þessa á mótinu eru eftirtaldir: • Magnús Ólafsson, HSK, sigr- aði í 50 metra skriðsundi karla á 24,28 sek. Helga Sigurðardóttir, Vestra, sigraði í 50 metra skrið- sundi kvenna á 27,35 sek. Karla- sveit SH sigraði í 4x100 metra skriðsundi á 3:46,18 mín. Eðvarð Þór Eðvarösson, SFS, sigraði í 200 metra fjórsundi karla á 2:07,67 mín. Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA, sigraði í 200 metra fjórsundi kvenna á 2:20,80 mín. Óskar Guö- brandsson, IA, sigraði í 1500 metra skriðsundi karla á 17:10.68 rpín. Ingibjörg Arnardóttir, ÆGI, sigraöi í 800 metra skriösundi kvenna á 9:27,31 mín. • Magnús Ólafsson, HSK, sigr- aöi í 100 metra flugsundi karla á 58,82 mínútum. Bryndís Ólafs- dóttir, HSK, sigraði í 100 metra flugsundi kvenna á 1:05,40 mínút- um. Eðvarð Þór Eðvarðsson, SFS, sigraöi í 200 metra baksundi karla Helga Tryggvadóttir, DV, Eyjum: „Þaö er alltaf gaman að koma heim til íslands að keppa og öll skipulagn- ing mótsins hefur veriö Eyjamönn- um til sóma. Ég er í ágætu formi um þessar mundir en aftur á móti vantar mig meiri snerpu. Hvaö 100 metra bringusundið varðar byrjaði ég alltof hægt og það réði því öðru fremur að tíminn var ekki betri. Það var synd að ég náði ekki að bæta mig en ég stefni að því að gera betur í 200 metra bingusundinu í dag,“ sagði sund- konan Ragnheiður Runólfsdóttir í samtali við DV á innanhússmeistara- mótinu í sundi í Vestmannaeyjum í gær. Ragnheiður hefur dvabð í Banda- ríkjunum frá því í haust og kom gagngert til íslands til að keppa á mótinu í Eyjum en mótinu, sem hófst á laugardag, lýkur í dag. „Það er einn dagur af mótinu eftir og þaö er um að gera að vera bjart- sýn fyrir 200 metra bringusundið í dag. Það setur eflaust strik í reikn- ingin að ég ég kom til landsins á fimmtudag og það reynist of stuttur tími fyrir mót að þessu tagi. Ég geri miklar væntingar til mín, mun meiri en almenningur gerir og það er stefn- an mín að slá Norðurlandametið í 100 metra bringusundi þó síöar verði. Það yrði óneitanlega gaman fyrir ís- land að eignast annan Norðurlanda- methafa og um leið fyrstu konuna. Ég verð að vera hugrökk og setja mér markmið en þegar hlutimir ganga ekki upp er ekkert annað gera en að reyna aftur," sagði Ragnheiður Runólfsdóttir. „Varðandi 200 metra bringusundið í dag er ég bjartsýn og mér líður vel í sundlauginni í Eyjum. Ég syndi með því hugarfari að bæta árangur minn en ekki endilega að setja met. Ég held utan til Bandaríkjanna á fóstu- dag en ég hef ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort ég æfi ytra eða á íslandi í sumar. Ég stefni að þátt- töku í heimsbikarkeppninni í Róm í haust,“ sagði Ragnheiður Runólfs- dóttir. Hún sagði ennfremur í samtali við DV að hún væri sérstaklega ánægð með frammistöðu Arnars Freys 01- afssonar frá Þorlákshöfn. Gaman væri að sjá ungan og efnilegan sund- mannmeðfalleganstíl. -JKS á 2:06,73 mínútum. Eygló Trau- stadóttir, Ármanni, sigraði í 200 metra baksundi kvenna á 2:33,14 mínútum. Magnús Ólafsson, HSK, sigraði í 200 metra skriö- sundi karla á 1:53,21 mínútu. Bryndís Ólafsdóttir sigraði í 200 metra skriðsundi kvenna á 2:08,14 mínútum. Karlasveit ÍA sigraði í 4x100 metra fjórsundi á 4:08,40 mínútum. Kvennasveit Ægis sigraði í 4x100 metra fjór- sundi á 4:42,55 mínútum. • Amar Freyr Ólafsson, HSK, sigraði í 400 metra fjórsundi karla á 4:41,64 mínútum. Arna Þórey Sveinmbjömsdóttir, Ægi, sigraði í 400 metra fjórsundi kvenna á 5:17,60 mínútum. Amþór Ragn- arsson, SH, sigraði í 100 metra bringusundi karla á 1:05,92 mín- útum. Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA, sigraði í 100 metra bringu- sundi kvenna á 1:11,30 mínútum. -JKS „Efmviðurinn er nógur í sundinu“ Helga Tryggvadóttir, DV, Eyjum: „Eg er ánægö með árangurinn hjá mínum bömum. Sérstaklega kom árangurinn hjá Amari Frey mér skemmtilega á óvart. Hann hefur bætt sig verulega það sem af er inn- anhússmeistaramótinu,“ sagöi Hrafnhildur Guðmundsóttir, þjálfari hjá Þór frá Þorlákshöfn, í samtali viö DV á innanhússmeistaramótinu í sundi í Vestmannaeyjum í gær. Hrafnhildur var hér á áram áður ein fremsta sundkona landsins en á mótinu í Vestmannaeyjum á hún þrjú böm á meðal keppenda og verö- ur það aö teljast nokkuð óvenjulegt. Yngsta bam hennar, sem er á meöal keppenda, Amar Freyr Ólafsson, hefur komið skemmtilega á óvart með frammstöðu sinni og þykir víst að þar sé á ferðinni sundmaður sem eigi eftir að láta talsvert að sér kveöa í næstu framtíð. „Bryndís og Magnús tóku ekki fulla hvíld fyrir þetta mót en þau vom nokkuð frá sínu besta. Það hef- ur ekki nóg af íslandsmetum séð dagsins ljós og ennfremur hafa ungl- ingametin látið á sér standa. Aftur á móti hafa margir einstaklingar bætt sig verulega. Efniviðurinn er nógur í sundinu en hafa verður í huga að það er ekki nóg aö vera efnilegur og unglingarnir þurfa aö halda vel á spöðunum til að verða góðir,“ sagði Hrafnhildur Guðmundsdóttir í sam- tahviðDV. -JKS • Hrafnhildur Guðmundsdóttir ásamt börnum sínum á mótinu i Vestmanna- eyjum. Frá vinstri er Magnús Ólafsson, Arnar Freyr Olafsson, Hrafnhildur og Bryndis Ólafsdóttir. DV-mynd Ómar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.