Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 9
.jCE'i >1 / 0fiM'1 ['i lUi)^(Ll/ri'J/ul LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1991. 9 Þótt ótrúlegt megi virðast er þáttaröðin America’s Funniest Home Video á góðri leið með aö verða eitt vinsælasta sjónvarpsefni í Bandaríkjunum. Stöð 2 hóf nýlega sýningar á þessari þáttaröð á laug- ardagskvöldum undir heitinu Fyndnar fjölskyldusögur. Hvað er svona fyndið? Og hvað er síðan svona fyndið? Brúður sem kastar vendinum og brúðarmeyjarnar detta allar í kös þegar þær reyna að grípa hann. Maður hleypur afturábak og ætlar að grípa bolta og dettur flatur um girðingu og stendur upp buxna- laus. Skokkari missir hattinn í snöggum vindgusti og hatturinn flýgur stuttan spöl og lendir á höfð- inu á næsta hlaupara. Tíu þúsund dollarar í boði Þetta eru allt myndir sem áhorf- endur hafa sjálfir tekið og sent inn til sjónvarpsstöðvarinnar. Tíu þús- und dollara verölaun eru í boði í viku hverri fyrir fyndnasta mynd- bandið. Upphaílega var ekki búist við mikilU þátttöku en fyrrihluta síðasta árs höfðu tæplega 50 þús- und spólur verið sendar inn til skoðunar. Svo virðist sem mynd- bandsvélar séu orðnar afar. út- breidd almenningseign og flestir noti þær eins og ljósmyndavél áð- ur. Eigendurnir taka myndir af börnunum sínum að leik, bæði Fyndnar fjölskyldusögur eru að verða eitt vinsælasta sjónvarpsefnið vestra. hversdags og við hátíðleg tækifæri. Þeir filma barnaafmæli, brúðkaup, merkisafmæU og ýmsar gleði- stundir á mannsævinni. Oft kemur fyrir að einhver hrasar eða eitt- hvað fer úrskeiðis og þá er at- burðurinn orðinn ódauðlegur og ennfremur er hægt að senda mynd- ina inn og láta alla þjóðina hlæja að ófórunum og verða kannski 10 þúsund dollurum ríkari. Spillir þetta börnunum okkar? En það er einmitt þetta með ófar- irnar sem hefur farið fyrir brjóstið á mörgum sem gagnrýnt hafa þátt- irin. Þeir segja að sýningar af þessu tagi ýti undir ranghugmyndir með- al barna og kenni þeim að hlæja að ófórum annarra. Auk þess geri há peningaverðlaun það aö verkum að hætta sé á að óprúttnir sviðsetji óhöpp og slysfarir og þannig stuðli þátturinn og vinsældir hans óaf- vitandi að misþyrmingum á börn- um. Þessu mótmæla aðstandendur þáttanna harðlega og segja að hver einasta mynd sé vandlega skoðuð og ekkert sýnt án þess að haft sé samband við sendandann og gengið hafi verið úr skugga um að engin brögð séu í tafli. Beint inn í líf venjulegs fólks „Það sem er sérstakt við þessa þætti er að þarna fáum við innsýn beint inn í líf venjulegs fólks,“ seg- ir framleiðandinn Steve Paskay. „Það er ekkert ofbeldiskennt við þessa þætti og börnum stafar engin hætta af þeim. Við viljum aðeins gefa fólki tækifæri á að brosa að mannlegum mistökum og ýmsum skrautlegum uppákomum daglega lífsins. Við reynum að hafa þáttinn hverju sinni sem fjölbreyttastan. Það væri ekkert gaman ef þetta væri alltaf sama myndin af manni að detta á rassinn." Hvað sem því líöur er ljóst að velgengni þáttanna og vinsældir komu öllum í opna skjöldu. Aðeins sex vikum eftir að sýningar hófust var þátturinn kominn í efsta sæti vinsældalistans og hefur haldist meðal tíu efstu æ síðan. Myndverið þurfti í hasti að ráða sérstakt starfslið til þess að skoða og halda öllum spólunum í röð og reglu. 600 til 1.600 spólur berast á hverjum degi. Þær þarf að skoða, hcifa sam- band við þá sem koma fram og fá leyfi þeirra og koma spólunni í safn og merkja hana. Tími sápu- óperanna liðinn Vinsældir þessa þáttar, þáttarað- arinnar um Tvídranga og teikni- myndanna um Simpson fjölskyld- una sýna ef til vill betur en margt annað að smekkur amerískra sjón- varpsáhorfenda er óðum aö breyt- ast. Stöðugt fleiri virðast vera bún- ir að fá sig fullsadda á áferðarfall- egum endalausum sápuóperum sem svo mjög hafa einkennt amer- ískt sjónvarp síðustu tvo áratugi. Tími þeirra er sennilega liðinn. Falcon Crest, Dallas, Dynasty og Santa Barbara eru óðum að stirðna eins og náttröll í sterku ljósi nýrra tíma. -Pá VOLVO — Bifreid sem þá getur treyst! /\ VOLVO 960 VERÐURFRUMSÝNDU HELGINA 23. OG 24. FEBRÚAR \/ FAXAFENI 8 • SÍMI 68 58 70 BRIMBORG Við lcynnum nú fuilkomnustu bifreið sem Volvo hefur nokkru sinni framleitt. Volvo 960 er búinn nýrri 204 hestafla, 24 ventla, sex strokka línuvél sem hefur verið í þróun allan 9. áratuginn. Með þessari vél er ný fjögurra þrepa tölvustýrð sjálfskipting sem án efa er ein sú fullkomnasta sem komið hefur fram á síðari árum. Hemlalæsivörn (ABS) og sjálfvirk driflæsing eru staðalbúnaður í Volvo 960 og veitir það bifreiðinni einstaka eiginleika í snjó og hálku. Mýkri línur svara kröfum nútímans um minni loft- mótstöðu og rennilegt útlit. Leður- eða plussklædd innrétting, fullkomin hljómflutningstæki með geisla- spilara, vökva- og veltistýri, samlæsing á hurðum, rafknúin sóllúga, hraðastilling (Cruise control) og margt fleira svara hins vegar kröfum um há- marks þægindi öku- manns og farþega. Við hönnun á Volvo 960 var hvergi vikið frá hug- myndafræði Volvo um hámarks öryggi far- þeganna. Volvo hefur nú fyrstur bílaframleiðanda komið fyrir innbyggðum barnastól í aftursæti og hefur þessi uppfinning þegar unnið til alþjóðlegra verðlauna. Þetta er talið vera eitt markverðasta ffamlag til öryggismála í bifreið- um síðan Volvo fann upp þriggja punkta öryggis- beltið sem bjargað hefur fjölda mannslífa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.